Hljóðmynd 111 kemur út á vínyl

Sjö manna brass­band leik­andi þekkt Clash-lög vakti verð­skuld­aða athygli í útgáfu­hófi bók­ar­innar 111 eftir Spessa síð­ast­liðið vor, enda mættu með­limir sveit­ar­innar til sýn­ing­ar­innar í skrúð­göngu. Nú hefur verið ákveðið að gefa lögin út á vínyl og fylgir verk úr bók­inni hverri plötu.

Hljóðmynd 111 kemur út á vínyl
Heill­aður af 111 Spessi fékk oft þá spurn­ingu hvers vegna hann væri eig­in­lega að sýna Efra-Breið­holtið á þann hátt sem hann gerir í bók­inni 111. Svarið er ein­falt. Hann vill segja sann­leik­ann og sýna hlut­ina eins og þeir eru. Mynd: Heiða Helgadóttir

Efra-Breið­holtið er í aðal­hlut­verki ljós­mynda­bók­ar­innar 111 eftir Spessa, sem kom út í vor á vegum JPV útgáfu. Bókin vakti tals­verða athygli og seld­ist fyrsta upp­lag hennar fljótt upp. Hún var end­ur­prentuð nú fyrir jólin og verður án efa í jóla­pökkum þeirra fjöl­mörgu sem dýrka Breið­holtið – og örugg­lega hinna líka, sem hræð­ast það pínu­lítið en eru þó for­vitnir um þetta goð­sagna­kennda úthverfi.

Venus í Breið­holtiEftir að 111 kom út var Spessa bent á lík­indi kápu­myndar bók­ar­innar og hinnar frægu myndar Fæðingar Venusar eftir Botticelli.

Um það leyti sem önnur prentun var sett í gang hófst söfnun á Karolina Fund, til að fjár­magna fram­leiðslu og útgáfu á vínyl-plötu með fjórum lögum bresku pön­k­rokksveit­ar­innar The Clash, útsettum fyrir brass­band. Öllum útgáf­unum fylgja mynd­verk eftir Spessa. Hannaðar voru þrjár mis­mun­andi týpur af umslögum í 111 ein­tökum hvert. Takmarki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár