Hnýta flugur á meðan beðið er eftir matnum

Hringur Hilm­ars­son land­vörður hefur haldið mat­ar­boð reglu­lega með vinum sínum allt frá því að þeir voru saman í mennta­skóla. Hann endar sjálfur oft­ast í eld­hús­inu, hvort sem matseldin er á hans ábyrgð eða ekki. Hringur segir að það sé mik­il­vægt að gefa sér tíma í eld­hús­inu og nostra við elda­mennsk­una.

Hnýta flugur á meðan beðið er eftir matnum
Eldaði með pabba Hringur eld­aði mikið með pabba sínum og segir að þaðan sé áhugi hans á matseld kom­inn. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Við erum allir vinir úr mennta­skóla, úr Mennta­skól­anum við Hamra­hlíð, og vorum byrj­aðir að halda mat­ar­boð þegar við vorum ennþá í skól­anum. Það varð svo bara að hefð og við reynum að hitt­ast sem oft­ast og elda en það verður nú kannski ekki eins oft og við vildum samt. Stundum förum við líka út að borða saman, þegar tím­inn er naumur til að elda.“

Nostrar við elda­mennsk­unaMik­il­vægt er að gefa sér góðan tíma þegar elda á góðan mat.

Elda­mennsk­unni er skipt á milli félag­annna, segir Hringur, þó að hann komi æði oft að verkum sjálfur. „Það er engin regla á því hver eldar en ég enda nú samt oft­ast í eld­hús­inu, ef ég er ekki að elda sjálfur þá hjálpa ég nú samt til. Ég hef áhuga á matseld og hef gaman af henni, ég og pabbi …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Líf mitt í fimm réttum

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár