Uppljóstrarinn af Klaustri stígur fram í Stundinni

Hver er Marvin og hvers vegna sat hann á Klaustri á sama tíma og þing­menn­irnir? Hvað varð til þess að hann byrj­aði að taka upp það sem hann heyrði? Upp­ljóstr­ar­inn stígur fram undir nafni og mynd í for­síðu­við­tali við Stundina í fyrra­málið.

Uppljóstrarinn af Klaustri stígur fram í Stundinni

Ein­stak­ling­ur­inn sem sat á barnum Klaustri þann 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, varð vitni að sam­ræðum sex þing­manna og ákvað að hljóð­rita þær, stígur fram undir sínu rétta nafni og mynd í við­tali í prentút­gáfu Stund­ar­innar á morgun.

Hingað til hefur upp­ljóstr­ar­inn verið þekktur undir dul­nefn­inu Marvin sem hann not­aði þegar hann sendi fjöl­miðlum upp­tök­urnar. 

Ýmsar kenn­ingar hafa verið settar fram um hver upp­ljóstr­ar­inn Marvin sé. Hver er bak­grunnur hans? Hvers vegna var hann staddur á Klaustri á sama tíma og þing­menn­irnir og hvað varð til þess að hann byrj­aði að taka upp það sem hann heyrði?

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hélt því meðal ann­ars fram að brot­ist hefði verið inn í síma þing­mann­anna. Þá hefur því verið velt upp, meðal ann­ars af Hannesi Hólm­steini Giss­ur­ar­syni stjórn­mála­fræði­pró­fessor og Arnþrúði Karls­dóttur útvarps­stjóra, hvort Marvin sé útsend­ari Stund­ar­innar. 

En upp­ljóstr­ar­inn hafði sínar ástæður til þess að taka sam­talið upp og mun útskýra þær skil­merki­lega og segja frá sjálfum sér í for­síðu­við­tali sem birt­ist í Stund­inni á morgun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár