Samsæriskenningar og skiptar skoðanir um uppljóstrarann

Stjórn­mála­menn, álits­gjafar og fjöl­miðla­menn hafa gagn­rýnt og hæðst að þeim sem hljóð­rit­aði þing­menn­ina á Klaustri auk þess sem komið hafa fram kenn­ingar um að upp­ljóstr­ar­inn sé hand­bendi til­tek­inna afla.

Samsæriskenningar og skiptar skoðanir um uppljóstrarann

Skiptar skoð­anir eru um hátt­erni gests­ins á Klaustri bar þann 20. nóv­em­ber sem varð vitni að háværum sam­ræðum sex þing­manna og gerð­ist svo frakkur að taka þær upp.

Ekki beri að hljóðrita samtöl

Eins og Stundin greindi frá þann 29. nóv­em­ber blöskr­aði gest­inum hvernig þing­menn töl­uðu og ákvað að kveikja á upp­töku­for­riti á sím­anum sínum. Nokkrum dögum síðar sendi hann Stund­inni, DV og Kvenna­blað­inu upp­tök­urnar undir dul­nefn­inu Marvin og eft­ir­leik­inn þekkja flestir.

„Marvin er maður árs­ins fyrir að upp­lýsa okkur,“ skrifar Kristjón Kormákur Guð­jóns­son, rit­stjóri DV, á Facebook. Blaða­mað­ur­inn Atli Þór Fanndal tók í sama streng í við­tali við Harma­geddon þar sem hann sagði almenn­ing á Íslandi standa í þakk­ar­skuld við upp­ljóstr­ar­ann. Þá tjáir OKtavía Hrund Jóns­dóttir, vara­þing­kona Pírata, sig um málið á Facebook og segir „hug­rekki upp­ljóstr­ara“ gríð­ar­lega mik­il­vægt.

„Marvin er maður árs­ins fyrir að upp­lýsa okkur“

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, er ann­arrar skoð­unar, hefur hæðst að Marvin og kallað hann „litla sóma­mann­inn“ í Reykja­vík­ur­bréfi Morg­un­blaðs­ins.

„Þar sem menn koma sam­an á veit­inga­stað við borð, jafn­vel hvít­þvegn­ir engl­ar, bind­ind­is­menn og vegan sem hinir, þá er ekki þar með sagt að þeir þurfi að sæta því að sam­töl þeirra séu hljóð­rituð og birt,“ skrifar Davíð.

Vill upplýsa um uppljóstrararnn

Spila­fé­lagar Davíðs, þeir Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor og Baldur Her­manns­son fram­halds­skóla­kenn­ari, setja fram kenn­ingar á Facebook um hvaða hvatir kunni að liggja að baki hátt­erni Marvins. 

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­sonstjórn­mála­fræði­pró­fessor

„Nú hlýtur að sjást í mynda­vélum Klaust­urs, hver lá á hleri og tók upp. Var það ein­hver vanda­bund­inn Stund­inni? Veit­inga­stað­ur­inn ætti að upp­lýsa þetta,“ skrifar Hannes og bætir við: „Af hverju gefur sá, sem lá á hleri, sig ekki fram? Ég sé ekki, að hann eða hún hafi neinu að tapa, og það myndi hreinsa and­rúms­loftið.“ Aðrir hafa velt því upp hvort Marvin hafi verið staddur á Klaustri Bar að und­ir­lagi DV. 

„Hermt er að til­tek­inn stjórn­málafor­ingi hafi gert mann út af örk­inni til þess að njósna um sína menn á fund­inn og kom­ast að því hvern skoll­ann þeir væru eig­in­lega að bralla með fólki úr öðrum flokkum,“ skrifar Baldur. „Vel má vera að þetta sé hreinn upp­spuni en sýnir þó að rann­saka þarf málið til botns.“ 

Sigmundur: „Brotist inn í síma“

Á Facebook-síðu Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, eig­in­konu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, má sjá stuðn­ings­kveðju frá aðdá­anda Sig­mundar sem segir Klaust­urs­málið ein­kenn­ast af öfund. „Gaman þætti mér að vita hver eða hverjir hafa sent þennan skúnk með sím­ann. Mið­flokknum hefur gengið of vel að auka fylgi sitt og það ætla þeir að eyði­leggja.“

Þegar Stundin og DV fluttu fréttir af Klaust­urs­upp­á­kom­unni birti Sig­mundur Davíð  yfir­lýs­ingu þar sem hann hélt því fram að „brot­ist hafi verið inn í síma ein­hvers þeirra sem þarna voru staddir eða beitt hler­un­ar­bún­aði“. Um leið kall­aði hann eftir aðgerðum gagn­vart þeim sem staðið hefðu að „hler­un­inni“. 

Alvarleikinn „hlerunin“

Viðar Guðjohn­sen, sem titl­aði sig lyfja­fræð­ing og sjálf­stæð­is­mann í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu, telur þing­menn­ina sem sátu á Klaustri hafa sætt mann­rétt­inda­brotum. „Mál sex­menn­ing­anna er alvar­legt en alvar­leiki máls­ins felst ekki í því hvort þing­menn­irnir töl­uðu ógæti­lega um hina og þessa heldur fremur hvort við sem sam­fé­lag sam­þykkjum að brotið sé á grund­vall­ar­mann­rétt­indum fólks. Hvort við sam­þykkjum að einka­sam­töl séu tekin upp, að ein­stak­lingar séu hleraðir án dóms­úr­skurðar,“ skrifar hann. 

„Slíkt bún­ings­klefa­tal, manna og kvenna, 
er eitt­hvað sem allir hafa gerst sekir um“

Athygli vekur að Viðar kallar sam­ræður þing­mann­anna „bún­ings­klefa­tal“ sem er sams konar orða­lag og Donald Trump not­aði eftir að upp­lýst var um að hann hefði gortað af því að grípa í klof kvenna. „Auðvitað er það góður mann­kostur að haga sér og tala vel um annað fólk en það er svo sem ekk­ert nýtt að menn segi eitt­hvað van­hugsað í einka­sam­tölum, hvað þá þegar öl er við hönd. Slíkt bún­ings­klefa­tal, manna og kvenna, er eitt­hvað sem allir hafa gerst sekir um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Klausturmálið

Bergþór gerður að nefndarformanni með tveimur atkvæðum – Fulltrúar annarra flokka sátu hjá
FréttirKlausturmálið

Bergþór gerður að nefnd­ar­for­manni með tveimur atkvæðum – Full­trúar ann­arra flokka sátu hjá

Bergþór Ólason klæmd­ist og úthúð­aði stjórn­mála­konum á veit­inga­stað í fyrra og tal­aði um mennta­mála­ráð­herra sem „skrokk sem typpið á [sér] dygði í“. Í dag tryggðu nefnd­ar­menn umhverfis- og sam­göngu­nefndar honum for­mennsku með hjá­setu í atkvæða­greiðslu, en aðeins Bergþór og Karl Gauti Hjalta­son greiddu atkvæði með því að hann yrði for­maður.
Skýringar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli
FréttirKlausturmálið

Skýr­ingar Bergþórs og Gunnars Braga á ummælum um Albertínu skiptu ekki máli

Eftir að siða­nefnd komst að þeirri nið­ur­stöðu að ummæli Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar um Albertínu Frið­björgu Elí­as­dóttur og MeToo væru brot á siða­reglum sögð­ust þing­menn­irnir hafa verið að lýsa erf­iðri reynslu, áreitni og „kyn­ferð­is­broti“. „Hvað við­kemur lýsingu BÓ og GBS á sam­skiptum þeirra við Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, sbr. kafli 2.5., verður ekki séð að lýsingar þeirra á þeim skipti máli við mat á þeim málavöxtum,“ segir for­sætis­nefnd.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár