Varaþingmaður Miðflokksins segir samning S.Þ. „aðför að hinum frjálsa, vestræna heimi“

Jón Þór Þor­valds­son, vara­þing­maður Bergþórs Ólasonar, segir að samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um flótta­fólk og inn­flytj­endur myndi fram­selja full­veldi íslensku þjóð­ar­innar.

Varaþingmaður Miðflokksins segir samning S.Þ. „aðför að hinum frjálsa, vestræna heimi“
Óttast um hinn frjálsa, vest­ræna heim Vara­þing­maður Bergþórs Ólasonar í Mið­flokknum ótt­ast að sam­þykki Ísland samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um flótta­fólk og inn­flytj­endur sé verið að fram­selja full­veldi þjóð­ar­innar.

Vara­þing­mað­ur­inn Jón Þór Þor­valds­son, sem kom inn á Alþingi í gær í stað Bergþórs Ólasonar, þing­manns Mið­flokks­ins sem far­inn er í ótíma­bundið frí vegna Klaust­urs­upp­tak­anna, segir samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um flótta­fólk og inn­flytj­endur, sem til stendur að sam­þykkja á fundi í Marrakech í Marokkó í næstu viku vera aðför að hinum vest­ræna heimi.

Jón Þór lýsti þess­ari skoðun sinni í umræðum um störf þings­ins á Alþingi í dag. Um er að ræða samn­ing sem nefn­ist  Global Compact for Safe, Orderly and Regular Migration upp á ensku. Samn­ing­ur­inn er milli­ríkja­samn­ingur sem er unn­inn undir for­ystu Sam­ein­uðu þjóð­anna og á að snerta allar hliðar fólks­flutn­inga í heim­inum á heild­rænan hátt. Samn­ing­ur­inn verður hins vegar ekki bind­andi sam­kvæmt alþjóða­lögum.

Að mati Jóns Þórs myndi yfir­gnæf­andi meiri­hluti íslenskur þjóð­ar­innar setja spurn­inga­merki við samn­ing­inn ef tæki­færi gæf­ist til að taka afstöðu til hans. Landa­mæri Íslands myndu við sam­þykkt hans þannig opn­ast  fyrir nán­ast öllum íbúum jarðar sem kjósa að flytja hingað burt séð frá stöðu, sagði Jón Þór. Við lestur á yfir­liti samn­ings­ins og ann­arra heim­ilda er ekki aug­ljóst hvað styður við þær yfir­lýs­ingar Jóns Þórs.

Jón Þór sagði að fljótt á litið mætti ætla að um mann­úð­ar­mál væri að ræða en full­trúar þjóða sem kynnt hefðu sér samn­ing­inn „segja hann aðför að hinum frjálsa vest­ræna heimi því að í samn­ingnum felst að þeir sem hann und­ir­rita skuli inn­leiða lög í heima­landi sínu sem upp­fylla það sem í samn­ingnum felst, m.a. að tján­ing gegn því sem í samn­ingnum felst skuli flokk­ast undir hat­urs­orð­ræðu og að við­ur­lög verði að loka megi fjöl­miðlum sem ger­ast sekir um að taka þátt í slíkri umræðu.“ Með því væri verið að fram­selja full­veldi þjóð­ar­innar að mati Jóns Þórs.

Athygli vekur að fyrri­hluti ræðu Jóns Þórs var nálega orð­rétt hinn sami og upp­haf blogg­pistils Valdi­mars H. Jóhann­ess­sonar, fyrr­ver­andi blaða­manns auk ann­ars, frá því síð­ast­lið­inn sunnu­dag. Þar að auki sótti Jón Þór tals­verða hluta af seinni helm­ingi ræðu sinnar í umræddan blogg­pistil. Valdimar er stjórn­ar­for­maður félaga­sam­tak­anna Tján­ing­ar­frels­is­ins, sem árið 2016 sendu hátt í eitt þús­und manns bók­ina „Þjóð­ar­plágan íslam“, þar á meðal til allra þáver­andi þing­manna. Í við­tali af því til­efni lýsti Valdimar því meðal ann­ars yfir að íslam væri sam­bæri­legt nas­isma. „Við erum ekki í stríði við múslima, við erum í stríði við íslam,“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár