BBC fjallar um „klámfengið karlrembuspjall“ íslenskra þingmanna

Ísland ratar enn og aftur í erlenda fjöl­miðla vegna vand­ræða­legra hneyksl­is­mála stjórn­mála­manna.

BBC fjallar um „klámfengið karlrembuspjall“ íslenskra þingmanna

F

rétta­vefur BBC fjallar um Klaust­urs­málið í dag og greinir frá því hvernig íslenskir þing­menn köll­uðu konur tíkur, töl­uðu niður til þeirra með kyn­ferð­is­legum vís­unum og hædd­ust að þekktri bar­áttu­konu fyrir rétt­indum fatl­aðra.

Áður hafa norskir og sænskir miðlar fjallað um málið sem þykir hið sér­kenni­leg­asta. 

„Sagt er að á upp­tök­unni megi heyra einn úr hópnum hæð­ast að fötlun Freyju Har­alds­dóttur með því að herma eftir sel,“ segir í frétt BBC, en frétta­veitan tekur fram að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segi hljóðið koma frá stól sem sé verið að færa, ekki frá manni. 

BBC rifjar upp að Sig­mundur Davíð hafi kom­ist í hann krapp­ann og þurft að segja af sér eftir að fluttar voru fréttir upp úr Panama­skjöl­unum í apríl 2016. 

Haft er eftir Bryndísi Snæ­björns­dóttur, for­svars­konu Þroska­hjálpar, að sam­starfs­menn hennar og fatl­aðir Íslend­ingar séu í áfalli eftir frétta­flutn­ing und­an­far­inna daga. „Allir þing­menn­irnir sem þarna sátu ættu að segja af sér þing­mennsku,“ segir hún. 

Hún bendir á að örorku­bætur á Íslandi séu lægri en atvinnu­leys­is­bætur. „Nú veltum við því fyrir okkur hvort það sé vegna við­horfa þing­manna. Við treystum ekki þessu fólki. Þetta er ófyr­ir­gef­an­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár