Felldu út heimild fyrir 1,5 milljarða láni til Íslandspósts

Breyt­ing­ar­til­laga um láns­heim­ild­ina var dregin til baka við umræður um fjár­laga­frum­varp næsta árs á Alþingi í gær. Lánið átti að mæta lausa­fjár­vanda fyr­ir­tæk­is­ins.

Felldu út heimild fyrir 1,5 milljarða láni til Íslandspósts
Fá ekki lán Heimild til handa rík­is­sjóði til að lána Íslands­pósti 1,5 millj­arða króna var dregin til baka á Alþingi í gær. Mynd: Af Facebook-síðu fyrirtækisins

Breyt­inga­til­laga meiri­hluta fjár­laga­nefndar Alþingis, sem kvað á um að rík­is­sjóði yrði heim­ilað að lána Íslands­pósti 1,5 millj­arða króna, var dregin til baka við aðra umræðu um fjár­laga­frum­varp næsta árs á þingi í gær­kvöldi. Fyr­ir­tækið hafði þegar fengið vil­yrði fyrir láni upp á hálfan mill­lj­arð króna og átti að auka við þá upp­hæð, til að mæta lausa­fjár­vanda þess.

Stundin hefur greint ítar­lega frá rekstr­ar­vanda Íslands­pósts síð­ustu vikur. Í hálfs­árs­upp­gjöri fyr­ir­tæk­is­ins sem birt var í lok sum­ars kom fram að Íslands­póstur hefði tapað 161,2 millj­ónum króna á fyrri helm­ingi þessa árs. Þá væri áætlað að tekjur fyr­ir­tæk­is­ins myndu drag­ast saman um allt að 400 millj­ónir króna á árinu vegna fækk­unnar bréfa­send­inga.

Í Frétta­blað­inu í dag er rætt við Pál Magn­ús­son nefnd­ar­mann í fjár­laga­nefnd sem lýsir því að meiri­hluti nefnd­ar­innar hafi tekið þá ákvörðun að draga breyt­ing­ar­til­lögu til baka og skoða málið betur. „Það er til skoð­unar hvort ein­hver frek­ari skil­yrði verði sett fyrir þess­ari heim­ild til lán­veit­ing­ar. Þá kæmi breytt breyt­ing­ar­til­laga inn á milli ann­arrar og þriðju umræðu. Nefndin vildi skoða málið betur og kalla eftir frek­ari skýr­ingum áður en þessi heim­ild yrði veitt.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár