Jónas Garðarsson er hæst launaði verkalýðsleiðtogi landsins

Formaður Sjó­manna­fé­lags Íslands var með hátt í tvær millj­ónir í mán­að­ar­tekjur árið 2016. Laun hans meira en hálfri milljón hærri en for­manns Alþýðu­sam­bands Íslands.

Jónas Garðarsson er hæst launaði verkalýðsleiðtogi landsins
Með hátt í tvær millj­ónir í laun Jónas Garð­ars­son, for­maður Sjó­manna­sam­bands Íslands, var með hátt í tvær millj­ónir króna í mán­að­ar­laun árið 2016, sem gerir hann að launa­hæsta verka­lýðs­leið­toga lands­ins. Mynd: Morgunblaðið/Hari

Jónas Garð­ars­son, for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands, var með rúm­lega 1,9 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun árið 2016. Það gerir hann að hæst laun­að­asta verka­lýðs­leið­togi lands­ins. Til sam­an­burðar var Gylfi Arn­björns­son, fyrr­ver­andi for­maður Alþýðu­sam­bands Íslands, með tæp­lega 1,4 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun sama ár. Félags­menn Alþýðu­sam­bands­ins eru um 133 þús­und en félags­menn í Sjó­manna­fé­lagi Íslands eru um 600 tals­ins. Jónas hefur ekki svarað fyr­ir­spurn Stund­ar­innar þess efnis hvort tekjur hans komi alfarið frá Sjó­manna­fé­lagi Íslands.

Bergur Þor­kels­son gjald­keri Sjó­manna­fé­lags­ins var með ríf­lega 1,2 millj­ónir króna í tekjur á mán­uði árið 2016. Árs­tekjur þeirra Jónasar og Bergs voru því rúm­lega 38 millj­ónir króna árið 2016, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá rík­is­skatt­stjóra sem nálg­ast má á vef­síð­unni tekjur.is. Þrír starfa á skrif­stofu félags­ins, Jónas, Bergur og rit­ari.

Miklar deilur hafa staðið um Sjó­manna­fé­lag Íslands að und­an­förnu eftir að Heiðveig María Ein­ars­dóttir, sjó­maður og við­skipta­lög­fræð­ingu var rekin úr félag­inu á dög­unum. Var Heiðveig sögð hafa skaðað hags­muni félags­ins með gagn­rýni sinni á það og var henni vikið úr félag­inu af trún­að­ar­manna­ráði þess, af þeim sökum.

Ítarlega er fjallað um Sjó­manna­fé­lag Íslands, deil­urnar þar og for­mann­inn Jónas Garð­ars­son í nýju tölu­blaði Stund­ar­innar sem kom út í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu