Yfir og allt um kring Jónas Garð­ars­son hefur verið yfir og allt um kring í Sjó­manna­fé­lagi Íslands svo til óslitið allt frá árinu 1994. Mynd: Morgunblaðið/Hari

Yfirgáfu ASÍ eftir að þeir voru krafðir um ársreikninga

Sjó­manna­fé­lag Íslands sagði sig úr heild­ar­sam­tökum launa­fólks eftir að ASÍ gerði þá kröfu á aðild­ar­fé­lög sín að þau skil­uðu af sér lög­gildum árs­reikn­ingum. Félags­menn kvarta undan ólýð­ræð­is­legum vinnu­brögðum stjórnar og vilja betri yfir­sýn yfir fjár­mál félags­ins. Saga þess er sam­ofin sögu for­manns­ins, Jónasar Garð­ars­sonar.

Jónas Garð­ars­son, sitj­andi for­maður Sjó­manna­fé­lags Íslands, er hæst­laun­aði verka­lýðs­leið­togi lands­ins, sam­kvæmt úttekt Stund­ar­innar, en hann var með rúm­lega 1,9 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun á árinu 2016. Þá var Bergur Þor­kels­son, gjald­keri félagsin,s með rúmar 1,2 millj­ónir króna í mán­að­ar­laun á sama ári. Árs­tekjur þeirra voru því rétt rúmar 38 millj­ónir króna, ef marka má upp­lýs­ingar frá rík­is­skatt­stjóra sem nálg­ast má á vef­síð­unni tekjur.is. Jónas og Bergur eru einu starfs­menn félags­ins, ef frá er tal­inn rit­ari á skrif­stofu þess, en félags­menn eru um það bil 600 tals­ins. Jónas hefur ekki svarað fyr­ir­spurn Stund­ar­innar þess efnis hvort tekjur hans komi alfarið frá Sjó­manna­fé­lagi Íslands.

Félagið hefur verið mikið í umræð­unni að und­an­förnu, sér­stak­lega eftir að Heiðveig María Ein­ars­dóttir, sjó­maður og við­skipta­lög­fræð­ingur, var gerð brott­ræk þaðan á þeirri for­sendu að hún hefði skaðað hags­muni félags­ins …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kjarabaráttan

Kjaraviðræður stranda á forsenduákvæðum og breiðfylkingin fundar um mögulegar verkfallsaðgerðir
GreiningKjarabaráttan

Kjara­við­ræður stranda á for­sendu­á­kvæðum og breið­fylk­ingin fundar um mögu­legar verk­falls­að­gerðir

Formaður VR fékk í gær sam­þykkta heim­ild til þess að grípa til aðgerða og félög innan breið­fylk­ing­ar­innar hafa blásið til fundar í dag þar sem rætt verður um næstu skref. Um tals­verðan við­snún­ing er að ræða frá því að kjara­við­ræður hófust fyrst. Nú hafa við­ræð­urnar harðnað og er það fyrst og fremst vegna ósættis um for­sendu­á­kvæði í langa­tíma­kjara­samn­ingnum.
Af hverju dó hamingjan milli breiðfylkingarinnar og Samtaka atvinnulífsins?
GreiningKjarabaráttan

Af hverju dó ham­ingjan milli breið­fylk­ing­ar­innar og Samtaka atvinnu­lífs­ins?

Allt annar tónn hefur verið í kjara­bar­átt­unni nú en síð­ustu miss­eri. Við­semj­endur ætl­uðu að taka höndum saman og auka stöð­ug­leika í efna­hags­líf­inu. En svo heyrð­ist lítið af fram­gangi. Í þess­ari viku var við­ræðum slitið og deil­unni vísað til rík­is­sátta­semj­ara. Margir klór­uðu sér í hausnum og spurðu hvað hefði eig­in­lega gerst? Svarið við því er: ansi margt.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár