Björn Bragi hættir í Gettu betur

Stígur til hliðar úr spyrils­hlut­verk­inu og seg­ist með því vilja axla ábyrgð á því að hafa áreitt 17 ára stúlku kyn­ferð­is­lega.

Björn Bragi hættir í Gettu betur
Stígur til hliðar Björn Bragi er hættur sem spyrill í Gettu betur.

B

jörn Bragi Arn­ars­son hefur ákveðið að hætta sem spyrill í spurn­inga­keppn­inni Gettu betur. Björn Bragi við­ur­kenndi að hafa áreitt 17 ára stúlku kyn­ferð­is­lega um helg­ina. Hann segir að með því að stíga til hliðar sem spyrill vilji hann axla ábyrgð sína.

Björn Bragi ját­aði í færslu á Facebook að hafa snert 17 ára stúlku „á ósæmi­legan hátt“ og baðst afsök­unar í nótt. Myndband sem sýnir atvikið fór á dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum í gær­kvöldi. Brot Björns Braga gætu varðað við allt að tveggja ára frang­elsi sam­kvæmt almennum hegn­ing­ar­lögum.

Björn Bragi hefur síð­ustu fimm ár verið spyrill í Gettu betur, spurn­inga­keppni fram­halds­skóla, í Rík­is­sjón­varp­inu. Dag­skrár­stjóri sjón­varps, Skarp­héð­inn Guð­munds­son, sagði í tölvu­pósti til Stund­ar­innar í morgun að ekki væri búið að taka ákvarð­anir um stöðu Björns Braga hjá Rík­is­út­varp­inu. Björn Bragi hefur nú sjálfur lýst því að hann sé hættur. Færslu hans má lesa hér að neðan.

 „Vegna þess atviks sem nú er til umræðu hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem spyrill í Gettu betur. Með þess­ari ákvörðun vil ég axla ábyrgð í verki.

Ég vil ekki að þetta atvik eða umræða um það varpi skugga á það frá­bæra prógram sem Gettu betur er. Ég hef rætt við Skarp­héð­inn Guð­munds­son dag­skrár­stjóra og greint honum frá ákvörðun minni, sem hann virðir og styður.

Ég hef átt fimm góð ár í hlut­verki spyrils. Þátt­ur­inn mun halda áfram að blómstra með nýjum spyrli og því ynd­is­lega fólki sem vinnur að þætt­inum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár