Ríkisútvarpið gefur ekkert upp um stöðu Björns Braga

Björn Bragi Arn­ars­son, spyrill í Gettu Betur, hefur játað að hafa áreitt 17 ára stúlku kyn­ferð­is­lega um liðna helgi. Dag­skrár­stjóri sjón­varps RÚV seg­ist með­vit­aður um málið og það sé í skoðun.

Ríkisútvarpið gefur ekkert upp um stöðu Björns Braga
Spyrill í Gettu betur Björn Bragi, fyrir miðju, er spyrill í spurn­inga­keppn­inni Gettu betur, sem er þáttur um og fyrir nem­endur í fram­halds­skólum. Björn Bragi hefur játað að hafa áreitt 17 ára stúlku kyn­ferð­is­lega um liðna helgi. Mynd: RÚV

Skarp­héð­inn Guð­munds­son, dag­skrár­stjóri sjón­varps Rík­is­út­varps­ins, segir í svari til Stund­ar­innar að þar inn­an­húss sé fólk með­vitað um mál Björns Braga Arn­ars­sonar. Það sé í skoðun en meira sé ekki hægt að gefa upp að svo stöddu. Björn Bragi hefur játað að hafa áreitt 17 ára stúlku kyn­ferð­is­lega um liðna helgi.

Í gær fór á flug mynd­band sem sýndi Björn Braga áreita stúlk­una kyn­ferð­is­lega, með því að snerta hana á ósæmi­legan hátt og án hennar vilja. Töluverð umræða varð á sam­fé­lags­miðlum um málið og var Björn Bragi gagn­rýndur harka­lega fyrir vikið. Björn Bragi birti svo í nótt yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu sinni þar sem hann játar hegð­un­ina, segir hana óásætt­an­lega og að hann sé miður sín yfir því. Hann lýsti því að hann hefði sett sig í sam­band við stúlk­una og fjöl­skyldu hennar í gær­kvöldi og beðið afsök­unar á hegð­un­inni.

Björn Bragi er skemmti­kraftur og sjón­varps­maður og meðal ann­ars gegnir hann stöðu spyrils í spurn­inga­keppn­inni Gettu betur, sem er þáttur um og fyrir fram­halds­skóla­nema. Stundin sendi Skarp­héðni Guð­munds­syni og Magnúsi Geir Þórð­ar­syni útvarps­stjóra fyr­ir­spurn vegna máls­ins. Þar var óskað svara við eft­ir­far­andi spurn­ingum um hegðun Björns Braga:

-Hvaða augum lítur Rík­is­út­varpið hegðun sem þessa af hendi starfs­fólks síns?

-Hvaða reglur eru í gildi innan Rík­is­út­varps­ins þegar kemur að málum sem þessum?

-Mun Rík­is­út­varpið bregð­ast við í mál­inu með ein­hverjum hætti?

-Mun Björn Bragi eftir sem áður gegna hlut­verki spyrils í spurn­inga­keppn­inni Gettu betur, þætti um og fyrir fram­halds­skóla­nema?

-Mun málið hafa ein­hver frek­ari áhrif á stöðu eða störf Björns Braga innan Rík­is­út­varps­ins?

 Skarp­héð­inn svar­aði fyr­ir­spurn Stund­ar­innar með eft­ir­far­andi hætti: „Við erum að sjálf­sögðu með­vituð um málið og það er í skoðun eins og gefur að skilja. Meira getum við ekki gefið upp að svo stöddu.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár