Bill Cosby fær allt að tíu ára fangelsisdóm

Bill Cosby hefur verið dæmdur í 3 til 10 ára fang­elsi fyrir brot sín gegn Andreu Constand. Rétt­ar­höldin höfð­ust vegna ummæla ann­ars grínista um Cosby. Fyrstu rétt­ar­höldin yfir frægum ein­stak­ling eftir #MeToo bylt­ing­una.

Bill Cosby fær allt að tíu ára fangelsisdóm
Bill Cosby ásamt lög­manni Rétt­ar­höldin hafa meðal ann­ars taf­ist um nokkra mán­uði vegna lög­manna­skipta Cosby.

Bill Cosby var í gær dæmdur til þriggja til tíu ára fang­els­is­vistar.  Hann var einnig dæmdur til að skrá sig sem "kyn­ferð­is­af­brota­maður" og til fram­búðar. Hann var sak­felldur í þriggja liða lík­ams­árás gegn Andreu Constand í apríl síð­ast­liðnum. Allt að sex­tíu konur hafa ásakað Cosby um kyn­ferð­is­brot á tíma­bili sem nær yfir fjóra ára­tugi. Umrætt atvik gegn Constand átti sér stað á heim­ili Cosby árið 2004. 

Rétt­ar­höldin hafa taf­ist og árið 2017 voru þau dæmd ómerk vegna þess að kvið­dóm­ur­inn gat ekki komið sér um sekt eða sak­leysi. Byrjað var upp á nýtt í apríl árið 2018. 

Ákæru­lið­irnir sem sak­fellt var fyrir þann 26. apríl síð­ast­lið­inn voru lík­ams­árás í þremur liðum, en Cosby byrl­aði Constand ólyfjan eftir að hún hafði drukkið áfengi, og braut gegn henni kyn­ferð­is­lega. Svipaða sögu er að segja um reynslu hinna kvenn­ana, þær tala margar um að Cosby hafi gefið þeim lyf til að slaka á og vaknað svo eftir kyn­ferð­is­brot, en sumar segj­ast aðeins muna eftir að hafa fengið vín­glas eða annan drykk frá Cosby og vaknað svo nokkrum klukku­stundum síðar.

Andrea Constand hafði áður kært Cosby en rétt­ar­höldin fóru fram fyrir borg­ara­legum dóm­stól og hafði Constand fjórtán vitni til að leiða fram í rétt­ar­höldum yfir honum. Cosby samdi um að greiða henni til­tekna upp­hæð fyrir utan rétt­ar­höldin og varð ekki meira úr því.

Almenningsálit breytt vegna uppistands

Tveir atburðir urðu til þess að mál gegn Cosby voru tekin upp á ný. Grínist­inn Hannibal Buress tal­aði um Cosby í uppi­standi sínu árið 2014, þar sem hann minn­ist á hvernig Cosby tal­aði niður til ungra grínista og gagn­rýndi þá á ósann­gjarnan hátt. Hann hvatti svo áhorf­endur sína til þess að slá upp „Bill Cosby rape“ í leit­ar­vélum eftir sýn­ing­una, og skjótt breytt­ist almanna­á­lit á Cosby, en hann hafði ára­tugum saman verið álit­inn föð­ur­legur grín­ari. 

Cosby hóf að tala um ásak­an­irnar og þver­neit­aði fyrir þær allar. Viðbrögð almenn­ings var að gera „meme“ myndir af honum þar sem gert var mikið úr því að sýna hvernig hann væri í raun nauð­gari. 

Athygli almenn­ings var vakin, en #MeToo bylt­ingin átti loka­höggið. Frá­sagnir kvenna af kyn­ferð­is­legri mis­notkun náði um alla kima netheims og fóru konur að tjá sig um mis­notkun Cosby á hendur þeim. Allt að sex­tíu konur komu fram með ásak­anir á hendur honum. 

Við­brögðin settu af stað atburða­rás sem end­aði á ásök­unum og loks ákæru Constand á hendur Cosby, þar sem þver­neitun hans á öllum ásök­unum var talið brot á trún­að­ar­samn­ingnum sem þau bæði und­ir­rit­uðu þegar samið var um fyrra málið árið 2005. Constand var dæmt í hag sem gerði henni kleift að kæra Cosby fyrir glæpa­dóm­stólum, en ekki fyrir borg­ara­legum rétti eins og tíu árum áður. 

Réttarhöldin löng og erfið

Sakfellt var í apríl en að þeim tíma höfðu rétt­ar­höldin ýmist verið lengd um vikur eða mán­uði, til að mynda vegna þess að Cosby skipti út lög­mönnum sínum. Daginn fyrir dóm­inn dróg­ust rétt­ar­höldin enn fremur vegna ágrein­ings um það hvort skikka ætti Cosby til að skrá sig sem kyn­ferð­is­brota­mann eftir dóm­inn. Ákveðið var að gera það að lokum.

Einnig var erfitt að ákveða hversu löng fang­els­is­vist ætti að vofa yfir Cosby. Ákæru­valdið krafð­ist tíu ára fyrir hvern lið, sam­tals þrjá­tíu ára fang­elsis, sem var að lokum lækkað í tíu ár að hámarki þegar ákæru­lið­irnir voru sam­ein­aðir. Verjandi Cosby fór fram á að mögu­leg refs­ing verði að hámarki fimm ára stofu­fang­elsi vegna ald­urs og hrak­andi heilsu Cosby, en hann er 81 árs gam­all. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hildur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lögregla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðgun þegar maður sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þingkona Pírata og for­maður Laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins segir að afstaða ákæru­valds­ins og málið allt valdi henni veru­legum áhyggjum af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í íslensku rétt­ar­vörslu­kerfi.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár