Katrín sat í ríkisstjórninni sem innleiddi bankaskattinn en segir nú að hann „grafi undan hagsmunum ríkisins“

Katrín Júl­í­us­dóttir, fyrr­ver­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sem nú sinnir hags­muna­gæslu fyrir fjár­mála­fyr­ir­tæki, hvetur rík­is­stjórn­ina til að afnema banka­skatt­inn, enda bitni hann á eigna­litlum og fyrstu kaup­endum. Vinstri­st­jórnin kynnti skatt­inn til sög­unnar, en var gjald­hlut­fallið miklu lægra en það er í dag.

Katrín sat í ríkisstjórninni sem innleiddi bankaskattinn en segir nú að hann „grafi undan hagsmunum ríkisins“

Katrín Júl­í­us­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja og fyrr­ver­andi vara­for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að banka­skatt­ur­inn grafi undan hags­munum rík­is­ins sem stærsta eig­anda fjár­mála­kerf­is­ins og legg­ist þyngst á hina eigna­minni og fyrstu kaup­endur. Hún hvetur til þess að skatt­ur­inn verði afnum­inn með öllu.

Þetta kemur fram í pistli sem Katrín birtir í Frétta­blað­inu í dag. Boð­skap­ur­inn er athygl­is­verður í ljósi þess að Katrín Júl­í­us­dóttir sat sjálf í rík­is­stjórn­inni sem inn­leiddi banka­skatt­inn á sínum tíma og greiddi atkvæði með lög­fest­ingu skatts­ins. Þá voru þó uppi sér­stakar aðstæður í efna­hags­líf­inu og rík­is­fjár­málum. Gjald­hlut­fallið var í fyrstu 0,041 pró­sent en skatt­ur­inn var hækk­aður í rík­is­stjórn­ar­tíð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Bjarna Bene­dikts­sonar til að dekka kostn­að­inn vegna leið­rétt­ing­ar­innar svoköll­uðu og er í dag 0,376 pró­sent. Samkvæmt fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar stendur til að lækka hann í skrefum niður í 0,145 pró­sent. 

Sam­fylk­ingin tal­aði fyrir afnámi banka­skatts í aðdrag­anda síð­ustu þing­kosn­inga en und­an­farna mán­uði hefur flokk­ur­inn gagn­rýnt þá for­gangs­röðun sem felst í áformum rík­is­stjórn­ar­innar um að lækka hann. „Þá telur 2. minni hluti það vera sér­kenni­lega for­gangs­röðun að lækka banka­skatt­inn svo­kall­aða en sú lækkun kostar um 7,3 millj­arða kr,“ segir til að mynda í nefnd­ar­á­liti Ágústs Ólafs Ágústs­sonar, full­trúa flokks­ins í fjár­laga­nefnd, um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Endurtók hann þessa gagn­rýni þegar fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar kom fram. 

„Banka­skatt­ur­inn er íþyngj­andi skattur sem skaðar hags­muni við­skipta­vina einnar teg­undar lána­fyr­ir­tækja og grefur undan hags­munum rík­is­ins sem stærsta eig­anda fjár­mála­kerf­is­ins,“ segir í grein Katrínar Júl­í­us­dóttur í dag. „Afnám skatts­ins væri skil­virk leið fyrir stjórn­völd til þessa ná niður vaxta­stig­inu sem heim­ilum og fyr­ir­tækjum stendur til boða í banka­kerf­inu.“ 

Hún bendir á að hinum eigna­mestu standi til boða hag­stæð­ari kjör líf­eyr­is­sjóða sem ekki þurfa að greiða banka­skatt á meðan hinir eigna­minni og fyrstu kaup­endur þurfi að bera banka­skatt­inn. „Í aðdrag­anda kjara­samn­inga hefur nokkuð verið rætt um mik­il­vægi þess að ná niður vaxta­stig­inu og þar af leið­andi fjár­magns­kostn­aði heim­ila og fyr­ir­tækja. Ein leið til þess væri að fella niður banka­skatt­inn og ráð­ast í end­ur­skoðun á skatta­stefnu stjórn­valda gagn­vart fjár­mála­fyr­ir­tækjum.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár