Óglatt eftir lestur Moggans og segir að Davíð og Halldór séu „ógeðslegir gamlir karlar“

Í Stak­steinum Morg­un­blaðs­ins er birt frá­sögn Halldór Jóns­sonar verk­fræð­ings af því hvernig hann „reyndi allt“ til að vanga, „trukka“ og kom­ast í „sleik“ á mennta­skóla­ár­unum án „mik­illar mót­spyrnu“. Halldór og rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins hæð­ast að Demókrötum í Banda­ríkj­unum fyrir að taka nauðg­unará­sak­anir gegn dóm­ara­efni Donalds Trump alvar­lega.

Óglatt eftir lestur Moggans og segir að Davíð og Halldór séu „ógeðslegir gamlir karlar“

Stak­steinar Morg­un­blaðs­ins í dag hafa vakið mikla hneykslan, en þar er end­ur­birtur pist­ill eftir Halldór Jónsson verk­fræð­ing þar sem hann lýsir því hvernig hann hegð­aði sér gagn­vart stúlkum á dansæf­ingum í MR sem ungur maður og setur það í sam­hengi við nauðg­unará­sak­anir gegn Brett Kavan­augh, dóm­ara­efni Repúblik­ana í Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna og karl­rembu­menn­ingu hjá Orku­veitu Reykja­víkur.

Benedikt Jóhann­es­son, stofn­andi Við­reisnar og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, segir að sér hafi orðið óglatt þegar hann las pistil­inn. „Tveir ógeðs­legir gamlir karlar sleikja botn­inn á mykju­haugnum, annar með því að halda að það sé snið­ugt að skrifa svona, hinn með því að halda að það sé snið­ugt að birta svona skrif,“ skrifar hann á Facebook. 

Í pistl­inum sem er end­ur­birtur í Stak­steinum rifjar Halldór Jónsson verk­fræð­ingur upp hvernig hann hegð­aði sér á dansæf­ingum á mennta­skóla­ár­unum. „Búinn að tendra sig upp á brenni­víni og Camelsmók bauð maður stelp­unum upp og reyndi allt til að vanga þær og trukka og helst að kom­ast í sleik,“ skrifar hann og  bætir við: „Þessi hegðun myndi koma í veg fyrir að ég yrði sam­þykktur í emb­ætti ef Trump myndi vilja hygla mér eins og Kawanough eða hvernig það er stafað. Sá kall hegð­aði sér eitt­hvað svona á mennta­skóla­böllum fyrir einum þrjá­tíu árum. Nú ætla demókrat­arnir að nota það til að hindra að þessi dóni kom­ist í Hæsta­rétt Banda­ríkj­anna.“

Þarna vísar hann til dóm­ara­efnis Repúblik­ana sem hefur verið sak­aður um til­raun til nauðg­unar, að hafa veist að stúlku á fram­halds­skóla­ár­unum, haldið henni niðri og reynt að þvinga hana til kyn­maka. 

„Ef bara hefðu verið dömu­frí í MR í gamla daga hefði mér lík­lega sjaldnar verið boðið upp en þeim mynd­ar­legri.  Fyrir bragðið hefði ég lík­lega minna á sam­visk­unni varð­andi mögu­legt emb­ætt­is­gengi og færri stelpur hefði talið sig geta hankað mig á ein­hverju, þó svo að ég hafi ekki orðið var við mikla mót­spyrnu þeirra á þeim tíma. En kannski hef ég bara fattað þetta vit­laust eins og þeir í Orku­veit­unni,“ segir í pistli Halldórs.

„Ef bara konur mættu hafa kyn­ferð­is­legt frum­kvæði í formi almenns dömu­frís  en ekki þessir ólaungröðu kallar sem vaða all­staðar uppi, bæði prelátar, para­graffistar og póli­tíkusar, þá yrðu kannski færri vand­ræði en nú ríða all­staðar húsum.“ 

Rit­stjórar Morg­un­blaðs­ins, þeir Davíð Oddsson og Haraldur Johann­es­sen, töldu ástæðu til að end­ur­birta pistil­inn á síðum Morg­un­blaðs­ins. Þar bæta þeir eft­ir­far­andi athuga­semd við: „Frábært hve flokkur þeirra Kennedys og Clintons er orð­inn heil­agur.“ John F. Kennedy og Bill Clinton voru báðir staðnir að fram­hjá­haldi í for­seta­tíð sinni. Clinton hefur verið sak­aður um kyn­ferð­is­brot, en slíkar ásak­anir komu aldrei fram gegn Kennedy. Að þessu leyti virð­ist stak­steina­höf­undur leggja fram­hjá­hald að jöfnu við nauðg­un­ar­mál. 

Þórður Snær Júl­í­us­son, rit­stjóri Kjarnans, er einn þeirra sem tjá sig um rit­stjórn­ar­skrif Morg­un­blaðs­ins. „Rit­stjórn­ar­grein í Mbl. Um pistil sem lýsir því yfir að það sé bölvað vesen og rét­trún­aður að mega ekki lengur drekka sig í gang til að „trukka“ og troða sér í sleik við konur sem vilja það ekki. Illa farið með rétt kalla til að brjóta á og nið­ur­lægja konur. #gaml­ir­hvít­irkarlar,“ skrifar hann á Twitter. Benedikt Jóhann­es­son seg­ist enn einu sinni sjá eftir því að vera búinn að segja upp áskrift að Morg­un­blað­inu, því þá geti hann ekki gert það í dag. „Mér varð bók­staf­lega óglatt að lesa um þetta,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kynbundið ofbeldi

Þórhildur Sunna: „Í hvaða veruleika búa þau eiginlega?“
Fréttir

Þór­hildur Sunna: „Í hvaða veru­leika búa þau eig­in­lega?“

Lögregla taldi ekki til­efni til að hefja rann­sókn á meintri nauðgun þegar maður sagð­ist hafa sett lim í enda­þarm sof­andi 17 ára stúlku sem vildi ekki enda­þarms­mök. Þingkona Pírata og for­maður Laga- og mann­rétt­inda­nefndar Evr­ópu­ráðs­þings­ins segir að afstaða ákæru­valds­ins og málið allt valdi henni veru­legum áhyggjum af stöðu kyn­ferð­is­brota­mála í íslensku rétt­ar­vörslu­kerfi.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár