Sendiherraefni Trump á Íslandi fær hræðilega dóma sem húðsjúkdómalæknir

Dr. Jeffrey Ross Gunter, sem Banda­ríkja­for­seti hefur til­nefnt sem sendi­herra á Íslandi, fær afleita dóma á vefnum Yelp.com fyrir störf sín. Hann er sagður dóna­legur svindl­ari af sjúk­lingum sínum.

Sendiherraefni Trump á Íslandi fær hræðilega dóma sem húðsjúkdómalæknir
Donald Trump Dr. Gunter hefur stutt fram­boð Trump fjár­hags­lega og verið virkur í Repúblikana­flokknum. Mynd: Shutterstock

Dr. Jeffrey Ross Gunter húð­sjúk­dóma­læknir var í gær til­nefndur af Donald Trump Banda­ríkja­for­seta sem sendi­herra á Íslandi. Sjúk­lingar Gunter bera honum ekki góða sögu á neyt­enda­vefnum Yelp.com þar sem hann er sagður dóna­legur svindl­ari og að þjón­usta hans sé eins og færi­band.

Dr. Jeffrey Ross Gunter

Gunter rekur lækna­stofu í Kali­forníu og hefur verið virkur í starfi Repúblikana­flokks­ins, meðal ann­ars sem leið­togi sam­taka gyð­inga í flokknum. Hann hefur stutt marga fram­bjóð­endur flokks­ins fjár­hags­lega, meðal ann­ars Trump, John McCain og Liz Cheney. Hann talar spænsku, frönsku og hol­lensku. Öld­ung­ar­deild Banda­ríkja­þings á eftir að stað­festa skipan hans sem sendi­herra. 

Á vefnum Yelp.com þar sem neyt­endur geta skrifað umsagnir um þjón­ustu­að­ila og gefið þeim stjörnur fær Gunter 1,5 af 5 mögu­legum stjörnum fyrir stofu sína í Lancaster, Kali­forníu. „Hann greip stans­laust fram í fyrir mér, tal­aði niður til mín eins og barns (ég er 27 ára), og var ótrú­lega dóna­legur,“ skrifar Jennifer K í þýð­ingu blaða­manns.

„Ó, sjáið hana, hún er að fara að gráta.“

„Dr. Gunter er RA$$, skýrt og ein­falt,“ skrifar S.W. Hún hafði verið beðin um að setja krem á háls­inn 30-45 mín­útum fyrir bók­aðan tíma, en þurfti að bíða í klukku­tíma á bið­stof­unni þar til henni sveið. „Ég nefndi hvernig húðin mín var eins og það væri kviknað í henni út af krem­inu og hann bók­staf­lega gerði grín að mér. „Ó, sjáið hana, hún er að fara að gráta.““

Sagði „BORING“ við sjúkling

„Ég ætla ekki að fara út í smá­at­riði en ég yrði ekki hissa ef honum yrði stefnt,“ segir Jo R. „Þessi maður þarf að setj­ast í helgan stein á bak­hlið tungls­ins.“ Reen K. segir ein­falda aðgerð til að fjar­lægja vörtu hafa skilið eftir risa­stórt ör. „Ég mun aldrei mæla með honum við neinn nema sá sé að leita sér að stríðsöri.“

„Þessi maður þarf að setj­ast í helgan stein á bak­hlið tungls­ins.“

Kokji A segir Gunter ekki hafa heilsað sér eða beðist afsök­unar á töf­inni eftir meira en klukku­tíma bið. „Ekki nóg með þennan dóna­lega, hræði­lega tíma, heldur sagði hann „BORING“ eftir að hafa skoðað tvo bletti á húð­inni minni,“ skrifar Kokji. „Hvers konar læknir segir „BORING“?“

Þá kemur fram í fjölda umsagna að lækna­stofa Gunters sé eins og færi­band og að hann yfir­bóki til að koma sem flestum að. Margir segja að þjón­ustan sé svindl og að hann geri allt til að losna við sjúk­ling­ana hratt. Cheryl T seg­ist hafa fengið ranga grein­ingu hjá honum. „Hann eyddi minna en fimm mín­útum með mér og gaf mér aldrei augn­sam­band!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Forsetatíð Donalds Trump

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár