Kolrangar fullyrðingar rötuðu í fréttatíma: „Þetta leit sérkennilega út“

Nemandi við Háskól­ann á Akureyri skil­aði loka­rit­gerð þar sem gengið var út frá því að tekjur af virð­is­auka­skatti væru aðeins örfáir millj­arðar. „Best hefði verið ef mér hefði tek­ist að benda honum á að sækja til toll­stjóra það sem þar er,“ segir leið­bein­andi nem­and­ans.

Kolrangar fullyrðingar rötuðu í fréttatíma: „Þetta leit sérkennilega út“

„Það verður örugg­lega farið yfir þetta hjá deild­inni,“ segir Helgi Gestsson, lektor við Háskól­ann á Akureyri og leið­bein­andi Jóhanns Magnúsar Elí­as­sonar, nýút­skrif­aðs við­skipta­fræð­ings sem fram kom í fréttum Stöðvar 2 um helg­ina og hélt því rang­lega fram, með vísan til eigin rann­sókna, að virð­is­auka­skattur skil­aði nær engum tekjum í rík­is­sjóð. 

Í loka­rit­gerð Jóhanns er full­yrt að tekjur rík­is­ins af virð­is­auka­skatti hafi ein­ungis numið tæpum 19 millj­örðum árið 2012. Með upp­flett­ingu í rík­is­reikn­ingi má hins vegar sjá að tekjur af virð­is­auka­skatti námu sam­tals 142,4 millj­örðum árið 2012 og voru 27,1 pró­sent af heild­ar­tekjum rík­is­sjóðs. Í rit­gerð­inni er ein­vörð­ungu byggt á Excel-skjali frá rík­is­skatt­stjóra sem sýnir inn­skatt og útskatt hjá ýmsum atvinnu­greinum en ekki þann virð­is­auka­skatt sem almennir neyt­endur greiða vegna kaupa á vöru og þjón­ustu. Fékk rit­gerðin sér­staka vigt í frétta­tíma Stöðvar 2 þar sem rætt var við Jóhann og nið­ur­stöður hans kynntar með mynd­rænum hætti.

Jóhann þakkar Helga Gests­syni leið­bein­anda sínum sér­stak­lega fyrir gott sam­starf fremst í rit­gerð­inni. „Leið­bein­anda mínum Helga Krist­ín­ar­syni Gests­syni þakka ég alveg sér­stak­lega fyrir að hafa aðstoðað mig og leitt mig áfram við þetta verk­efni og þegar ég fór aðeins af réttri leið leið­rétti hann stefn­una jafn­óðum,“ skrifar Jóhann Magnús. 

Stundin hafði sam­band við leið­bein­and­ann. „Í rit­gerð­inni koma fram fyr­ir­varar og í nið­ur­stöðukafl­anum segir að þarna sé notað gagna­safn frá rík­is­skatt­stjóra um skatt­skylda veltu og und­an­þegna veltu. Það er út frá því sem álykt­an­irnar eru dregnar,“ segir Helgi Gestsson. „Því miður þá er ekki inn í þeim gögnum það sem inn­heimt er hjá toll­stjóra, en allt annað er þarna. Ég reyndar hljóp inn í þetta á miðju tíma­bili og þá var hann búinn að vinna tölu­vert í þess­ari sund­ur­liðun sem hann er með. Þá kemur í ljós að töl­urnar eru dálítið skrítnar. Þess vegna eru settir þessir fyr­ir­varar, sú for­senda að nið­ur­stöð­urnar mið­ist við það gagna­safn sem hann not­aði. Hann dregur svo álykt­anir út frá þessu, en í við­tal­inu alhæfir hann um virð­is­auka­skatt almennt.“ 

Helgi seg­ist hafa haft sam­band við rík­is­skatt­stjóra til að fá gögnin stað­fest. „Því þetta leit sér­kenni­lega út og þess vegna komu fyr­ir­var­arnir og út frá þeim for­sendum vinnur hann verk­efnið. Ekki skal ég þó sleppa því að við­ur­kenna að best hefði verið ef mér hefði tek­ist að benda honum á að sækja til toll­stjóra það sem þar er.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Háskólamál

FréttirHáskólamál

Rektor Háskóla Íslands segir til­boð ráð­herra hafa gert erf­iða fjár­hags­stöðu skól­ans verri

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Háskóla Íslands, segir að til­boð háskóla­ráð­herra til sjálf­stætt starf­andi háskóla vera umfangs­mikla stefnu­breyt­ingu í fjár­mögnun háskóla­kerf­is­ins. Ekkert sam­ráð hafi verið haft við stjórn­endur skól­ans en ljóst þykir að breyt­ingin muni að óbreyttu hafa nei­kvæð áhrif á fjár­hags­stöðu skól­ans sem sé nú þegar erfið. HÍ sé far­inn að hug­leiða að leggja niður náms­leiðir.
Fréttir

Viðmiðum alþjóða­stofn­ana ekki fylgt í samn­ingi háskól­ans og Útlend­inga­stofn­unar um ald­urs­grein­ingar

Háskóli Íslands hyggst festa í sessi umdeildar lík­ams­rann­sóknir á hæl­is­leit­endum sem stand­ast ekki kröfur Evr­ópu­ráðs­ins, Barna­rétt­ar­nefndar SÞ og UNICEF um þver­fag­legt mat á aldri og þroska. Tann­læknar munu fá 100 þús­und krónur fyrir hvern hæl­is­leit­anda sem þeir ald­urs­greina sam­kvæmt drögum að verk­samn­ingi sem Stundin hefur undir höndum.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár