Slekkur á símanum í klukkutima á dag

Meðal þess sem ástr­alski uppi­stand­ar­inn Jonathan Duffy gerir til að auðga líf sitt er að umgang­ast fólk sem er ekki hrætt við að láta hann vita þegar hann hegðar sér eins og skít­hæll. Þá varð hann líka ham­ingju­sam­ari eftir að hann fór að slökkva á sím­anum stöku sinnum og hlusta á hugs­anir sínar í stað­inn.

Slekkur á símanum í klukkutima á dag
Jonathan Duffy Hann mælir með því að fólk hætti að taka sjálft sig svona alvar­lega. Við megum ekki gleyma því að við erum öll bara kjöt­flykki á grjót­hnull­ungi sem hringsnýst um eld­hnött. Mynd: Heiða Helgadóttir

1. Hrein­skilnir vinir. Það er frá­bært að hafa skemmti­legt fólk í kringum sig sem kemur manni til að hlæja, fólk sem er gaman að drekka bjór með, en að mínu mati er líka mik­il­vægt að umvefja sig fólki sem veigrar sér ekki við að láta þig vita þegar þú hegðar þér eins og skít­hæll. Fólki sem þekkir galla þína og heldur þér á jörð­inni. Vini sem eru til í að hlusta á þig segja sögu um þjón sem sýndi þér dóna­legt við­mót en spyrja samt: „Og hvað gerðir þú svo sem gerði það að verkum að hann var svona dóna­legur?“

2. Tími án sím­ans. Nýlega fór ég í Hydra Flotation Spa, en þar flýtur maður um í þyngd­ar­leysi í lík­ams­heitu vatni í eina klukku­stund. Þú heyrir ekk­ert og sérð ekk­ert. Fyrir víraða mann­eskju eins og mig hljóm­aði þetta skelfi­lega. En satt að segja mæli ég með þessu. Þetta var …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár