Ráð­herra barna­verndar­mála lækar færslu um öfund­sjúka og eigin­gjarna barna­verndar­starfs­menn

Fólk sem fer með æðstu stjórn og eft­ir­lit barna­vernd­ar­mála á Íslandi tekur undir ummæli um að gagn­rýni á Braga Guð­brands­son sé knúin áfram af öfund og eig­in­hags­munum „frama­potara í barna­vernd­ar­geir­anum“.

Ráð­herra barna­verndar­mála lækar færslu um öfund­sjúka og eigin­gjarna barna­verndar­starfs­menn

Ólafur Þ. Harð­ar­son, pró­fessor við stjórn­mála­fræði­deild Háskóla Íslands, telur að öfund­sjúkt fólk hafi vegið að Braga Guð­brands­syni, nýkjörnum full­trúa Íslands í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna, und­an­farna mán­uði.

Gagnrýni á vinnu­brögð Braga megi rekja til þess að Bragi þori að „taka hags­muni barna fram yfir eig­in­hags­muni ýmissa með­ferð­ar­að­ila og frama­potara í barna­vernd­ar­geir­anum“. Þetta skrifar Ólafur á Facebook þar sem hann óskar Braga til ham­ingju með afburða­kosn­ingu á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna. 

Athygli vekur að einn þeirra sem læka færsl­una er Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra en kvart­anir barna­vernd­ar­nefnda undan vinnu­brögðum Braga eru nú í rann­sókn­ar­far­vegi innan ráðu­neytis sem lýtur yfir­stjórn Ásmundar. 

Nær­tæk­ast er að túlka orð Ólafs, sem Ásmundur Einar tekur undir, sem harða ádeilu á þá aðila innan barna­vernd­ar­kerf­is­ins sem leit­uðu til ráðu­neytis Ásmundar vegna ítrek­aðra óform­legra afskipta Braga Guð­brands­sonar af ein­stökum barna­vernd­ar­málum. Í færsl­unni sem ráð­herra lækar eru jafn­framt ónafn­greindum aðilum gerðar upp hvatir, þ.e. öfund­sýki og eig­in­hags­muna­semi. 

Nýleg úttekt hér­aðs­dóm­ara og dós­ents sýndi að vel­ferð­ar­ráðu­neytið van­rækti rann­sókn­ar­skyldu sína og mistókst að leiða fram stað­reyndir þegar barna­vernd­ar­nefndir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kvört­uðu undan vinnu­brögðum Braga Guð­brands­sonar.

Í úttekt­inni er ekki lagt heild­ar­mat á stjórn­sýslu Barna­vernd­ar­stofu og Braga Guð­brands­sonar í ein­stökum barna­vernd­ar­málum, en úttektin stað­festir að sú frá­sögn af afskiptum Braga af svoköll­uðu Hafn­ar­fjarð­ar­máli sem birt­ist í Stund­inni þann 27. apríl síð­ast­lið­inn byggði á einu skráðu sam­tíma­gögn­unum sem til eru um afskiptin.

Eins og Stundin greindi frá beitti Bragi sér fyrir því að faðir fengi að umgang­ast dætur sínar þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um að fað­ir­inn hefði mis­notað þær kyn­ferð­is­lega. „Ég vissi ekk­ert hvort pabb­inn í þessu til­viki hefði gert eitt­hvað á hlut þessa barns eða ekki. Ég var ekki dóm­bær á það og hafði ekki aðgang að neinum gögnum og hafði í raun og veru engan áhuga á að vita það,“ sagði Bragi í við­tali við Stundina um umrætt mál. 

„Þessi kosn­ing er mikið afrek og sýnir að útlend­ingar kunna að meta frá­bær störf Braga fyrir börnin í ver­öld­inni um ára­tuga­skeið,“ skrifar Ólafur Þ. Harð­ar­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor á Facebook. „Enda eru útlend­ing­arnir ekki partur af íslensku kunn­ingja­sam­fé­lagi, þar sem öfund­sjúkir hæl­bítar hafa gjammað að Braga síð­ustu mán­uði fyrir það eitt að hann þorir að taka hags­muni barna fram yfir eig­in­hags­muni ýmissa með­ferð­ar­að­ila og frama­potara í barna­vernd­ar­geir­anum. Stundum nær rétt­lætið fram að ganga ... :) Til ham­ingju, Bragi Guð­brands­son!“ 

Auk Ásmundar Einars eru Heiða Björg Pálma­dóttir, núver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu og Bragi Guð­brands­son sjálfur í hópi þeirra sem læka færsl­una. Þannig virð­ist sú skoðun ríkj­andi hjá þeim aðilum sem fara með æðstu stjórn og eft­ir­lit barna­vernd­ar­mála á Íslandi að ann­ar­legar hvatir með­ferð­ar­að­ila og barna­vernd­ar­starfs­manna hafi legið að baki athuga­semdum sem gerðar hafa verið við störf Braga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Barnaníðskæru dagaði uppi fyrir „mjög bagaleg mistök“
FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barnaníð
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár