Bragi Guðbrandsson fékk góða kosningu

Fulltrúi Íslands og Norð­ur­land­anna fékk afburða­kosn­ingu en kvart­anir barna­vernd­ar­nefnda undan afskiptum hans af ein­stökum barna­vernd­ar­málum eru enn í rann­sókn­ar­far­vegi innan vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins.

Bragi Guðbrandsson fékk góða kosningu
Bragi Guð­brands­son Fyrr í dag var Bragi kjör­inn í nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barns­ins til næstu fjög­urra ára.

Bragi Guð­brands­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu, var kjör­inn í nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barns­ins til fjög­urra ára á fundi aðild­ar­ríkja barna­sátt­mál­ans sem fram fór í New York í dag.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, fagnar nið­ur­stöðu kosn­ing­anna en Bragi hlaut 155 atkvæði af 195.

„Ég er ánægður með þessa nið­ur­stöðu. Ísland hefur nú fengið rödd á þessum mik­il­væga vett­vangi þar sem talað er fyrir rétt­indum barna og bættri stöðu þeirra á grund­velli Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Áratuga reynsla og þekk­ing Braga Guð­brands­sonar á mál­efnum barna og þátt­taka hans í alþjóð­legu sam­starfi á þessu sviði mun án efa nýt­ast vel í störfum barna­rétt­ar­nefnd­ar­innar,“ segir Ásmundur Einar í frétta­til­kynn­ingu.

Þá er haft eftir Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni utan­rík­is­ráð­herra að í nið­ur­stöðu kosn­ing­anna felist því mikil við­ur­kenn­ing á frammi­stöðu Íslands á sviði barna­rétt­ar­mála. Aðeins fáeinir mán­uðir eru liðnir síðan vel­ferð­ar­ráðu­neytið sendi þremur barna­vernd­ar­nefndum bréf þar sem full­yrt var að ekki ríkti trún­aður og traust milli aðila innan barna­vernd­ar­kerf­is­ins á Íslandi og komin væri upp „alvar­leg staða“ í barna­vernd­ar­starfi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. 

Bréfið var skrifað í kjöl­far kvart­ana undan hátt­semi og fram­göngu Braga og starfs­manna Barna­vernd­ar­stofu. Ráðu­neytið skoð­aði málið og komst að þeirri nið­ur­stöðu að til að end­ur­heimta traust og trúnað innan mála­flokks­ins væri þörf á aðgerðum. Í þeim fólst meðal ann­ars að fengnir voru utan­að­kom­andi aðilar til skoða hvernig bæta mætti barna­vernd­ar­kerfið. Um leið var ákveðið að Bragi Guð­brands­son tæki sér leyfi sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu og ynni um tíma á vegum vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins og yrði boð­inn fram til barna­rétt­ar­nefndar. 

Alvarlegar ásakanir enn í rannsóknarfarvegi

Mál Braga Guð­brands­sonar eru enn í rann­sókn­ar­far­vegi innan vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins eftir að ljóst varð að ráðu­neytið van­rækti rann­sókn­ar­skyldu sína við fyrri athugun og mistókst að leiða fram stað­reyndir þegar barna­vernd­ar­nefndir kvört­uðu undan ítrek­uðum óform­legum afskiptum Braga af ein­stökum barna­vernd­ar­málum. 

Í frétta­til­kynn­ingu sem birt­ist á vef for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins þann 2. maí síð­ast­lið­inn kom fram að óháðum sér­fræð­ingum hefði verið falið að vinna úttekt á „til­teknum málum á sviði barna­verndar“ og að gera athugun á „máls­með­ferð við­kom­andi stjórn­valda, þ.e. þeirra barna­vernd­ar­nefnda sem tengj­ast við­kom­andi málum, Barna­vernd­ar­stofu og vel­ferð­ar­ráðu­neytis“. 

Tilefni úttekt­ar­innar var hávær umræða á Alþingi og í fjöl­miðlum eftir að Stundin hafði greint með ítar­legum hætti frá afskiptum Braga Guð­brands­sonar af barna­vernd­ar­máli í Hafn­ar­firði þar sem Bragi hafði beitt sér fyrir því að faðir fengi að umgang­ast dætur sínar þrátt fyrir grun­semdir barna­vernd­ar­nefndar og með­ferð­ar­að­ila um að fað­ir­inn hefði mis­notað þær kyn­ferð­is­lega.

Eins og úttektin stað­festi byggði umfjöllun Stund­ar­innar frá því í lok apríl á einu skráðu sam­tíma­gögn­unum sem til eru um afskipti Braga af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu sem svo er kallað. Bragi við­ur­kenndi sjálfur að hafa beitt sér sím­leiðis í umræddu máli án þess þó að hafa „áhuga á að vita“ af hugs­an­legum kyn­ferð­is­brotum sem voru til skoð­unar. Hann kom svo aftur að mál­inu á síð­ari stigum, með óvenju­legum hætti, eins og Stundin greindi frá.

Úttektin var kynnt þann 8. júní þar sem fram kom að vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefði van­rækt rann­sókn­ar­skyldu sína við með­ferð á kvört­unum barna­vernd­ar­nefnda og láðst að leiða í ljós hvað hæft væri í þeim ásök­unum sem bornar voru á Braga Guð­brands­son. Þótt fram kæmi í úttekt­inni að Bragi hefði fal­ast eftir end­ur­upp­töku máls­ins brást Bragi við úttekt­inni með því að segja mál­inu lokið og kvarta undan dylgjum og fals­fréttum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

Segir ríkisstjórnina skulda æsku landsins afsökunarbeiðni: „Það væri bragð af því!“
InnlentBarnaverndarmál

Segir rík­is­stjórn­ina skulda æsku lands­ins afsök­un­ar­beiðni: „Það væri bragð af því!“

„Fólk sem getur ekki komið sér saman um aug­ljósa hluti svo sem eins og að koma veiku barni til aðstoðar hugsar ekki skýrt. Það skiptir engu hver gerði hvað, klukkan hvað – það er aðeins eitt í stöð­unni hvað Yasan varðar, um það ættu allir, ef við höfum ekki full­kom­lega tapað glór­unni að geta verið sam­mála.“ Þannig hefst Facebook-færsla Stein­unnar...
Samstöðufundur fyrir Yazan boðaður í fyrramálið: „Ofbeldi gegn börnum er aldrei boðlegt“
Innlent

Sam­stöðu­fundur fyrir Yazan boð­aður í fyrra­málið: „Ofbeldi gegn börnum er aldrei boð­legt“

Boðað hefur verið til sam­stöðu­fundar fyrir utan rík­is­stjórn­ar­fund í fyrra­málið. Aðgerð­ar­sinnar hafa boðað til sam­stöðu­fundar fyrir Yazan Tamimi í fyrra­málið klukkan 8:15. Safnast á fyrir framan Hverf­is­götu 4 þar sem rík­is­stjórnin hyggst funda. Eins og alþjóð veit var gerð til­raun til að vísa hinum 11 ára Yazim úr landi í nótt en á síð­ustu stundu var ákveðið að fresta því,...
Lögreglan sótti Yazan á Barnaspítalann í nótt – Mótmæli boðuð á Keflavíkurflugvelli
Innlent

Lög­reglan sótti Yazan á Barna­spít­al­ann í nótt – Mótmæli boðuð á Kefla­vík­ur­flug­velli

Lög­reglan sótti Yazan Tamimi af Barna­spít­al­anum rétt í þessu og ætlar sér að brott­vísa honum í fyrra­málð til Spánar. Mótmæli hafa verið boðuð. Samtökin No Borders Iceland boða mót­mæli á Kefla­vík­ur­flug­velli í nótt vegna fregna af því að lög­reglan hafi komið inn á Barna­spít­al­ann í nótt og sótt þar Yazan Tamimi, 11 ára dreng á flótta frá Palest­ínu. Rík­is­stjórn Bjarna...
Fjölmennur samstöðufundur með Yazan litla haldinn í gær – Verður vísað úr landi á allra næstu dögum
InnlentBarnaverndarmál

Fjöl­mennur sam­stöðu­fundur með Yazan litla hald­inn í gær – Verður vísað úr landi á allra næstu dögum

Fjöl­mennur sam­stöðu­fundur var hald­inn til stuðn­ings Yazan Tamimi, 12 ára fötl­uðum drengi frá Palest­ínu sem yfir­völd hyggj­ast reka frá landi á næstu dögum. Vinir Yazans stóðu aftur fyrir sam­stöðu­fundi með Yazan Tamimi, fötl­uðum dreng sem vísa á úr landi, þrátt fyrir að það geti haft afger­andi áhrif á heilsu hans og líf. Samkvæmt síð­ustu fréttum gæti það gerst með mjög...
Tíu ára drengur þóttist dauður þegar móðir hans reyndi að drekkja honum – Vildi búa hjá föður sínum
HeimurBarnaverndarmál

Tíu ára drengur þótt­ist dauður þegar móðir hans reyndi að drekkja honum – Vildi búa hjá föður sínum

Tíu ára drengur í Alabama „þótt­ist dauður“ til að lifa af eftir að móðir hans er sögð hafa reynt að drekkja honum í baðk­ari. Samkvæmt PEOPLE var móð­irin, Ashley Elizabeth Jones, 34, hand­tekin á þriðju­dag og ákærð fyrir gróft barn­a­níð. Eins og fram kemur í yfir­lýs­ingu, sem frétta­mið­il­inn fékk í hendur, sagði sonur Jones við yfir­völd að mamma hans hafi...
Kyrrlát nótt á Hólmsheiði – Óljóst með örlög Eddu
InnlentBarnaverndarmál

Kyrrlát nótt á Hólms­heiði – Óljóst með örlög Eddu

Hópur fólks á 20 bif­reiðum freist­aði þess í nótt að stöðva lög­regl­una í því að flytja Eddu Björk Arn­ar­dóttur á flug­völl­inn í Keflavík þaðan sem átti að senda hana til Noregs þar sem hún á að mæta fyrir dóm í for­sjár­máli. Um er að ræða for­ræð­is­deilu þar sem móð­irin Edda hefur verið dæmd fyrir norskum dóm­stólum til að skila börn­unum...

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár