Móðir stúlku sem kærði lögreglumann fyrir kynferðisbrot lýsir vonbrigðum með eftirlitsnefnd

Halldóra Bald­urs­dóttir, móðir stúlku sem kærði lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­brot, sendi kvörtun vegna máls­með­ferðar kyn­ferð­is­brota­kærunnar til nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu fyrr á árinu. Hún lýsir miklum von­brigðum yfir nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar og skorar á dóms­mála­ráð­herra að ráð­ast til umbóta. Tvær aðrar stúlkur hafa kært sama lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­brot.

Móðir stúlku sem kærði lögreglumann fyrir kynferðisbrot lýsir vonbrigðum með eftirlitsnefnd
Halldóra Bald­urs­dóttir Halldóra er móðir einnar þriggja kvenna er kærðu lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­brot Mynd:

Halldóra Bald­urs­dóttir hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hún lýsir miklum von­brigðum yfir ákvörðun nefndar um eft­ir­lit með lög­reglu (NEL). Halldóra er móðir Helgu Elínar Her­leifs­dóttur, sem er ein þriggja kvenna sem kærði lög­reglu­mann fyrir kyn­ferð­is­brot. Meint brot átti sér stað í sum­ar­bú­stað þegar Helga var tíu ára. Halldóra sendi nefnd­inni kvörtun fyrr á árinu sem nefndin hefur nú svarað, og snúa von­brigði Halldóru að ákvörðun NEL að vísa frá þeim hluta erindis hennar sem snýr beint að óvand­aðri rann­sókn lög­reglu. Hún skorar á dóms­mála­ráð­herra að beita sér fyrir því að innan lög­regl­unar starfi eng­inn sem gerst hefur sekur um sví­virði­legt athæfi eða rýrt það traust sem lög­reglu­menn verða almennt að njóta.

Sendi erindi til nefndar um eftirlit með lögreglu

Í febr­úar 2018 beindi Halldóra erindi til NEL vegna ákvörð­unar rík­is­sak­sókn­ara um að fella niður rann­sókn á meintu kyn­ferð­is­broti lög­reglu­manns gegn dóttur hennar, en málið var fellt …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lögregla og valdstjórn

Lögreglan segir að gildandi lög hafi heft rannsókn á meintum ISIS-liða
FréttirLögregla og valdstjórn

Lög­reglan segir að gild­andi lög hafi heft rann­sókn á meintum ISIS-liða

Þrír menn voru hand­teknir 12. jan­úar síð­ast­lið­inn í umfangs­mik­illi lög­reglu­að­gerð á Akureyri. Tveimur var sleppt en sá þriðji, sem var grun­aður um aðild að ISIS-hryðju­verka­sam­tök­unum, var sendur úr landi ásamt fjöl­skyldu sinni. Lögregla hefur lítið tjáð sig um málið vegna rann­sókn­ar­hags­muna. Í svörum lög­reglu við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar er þess þó getið að lög­regla hafi ekki verið heim­i­ilt að nota allar upp­lýs­ing­arnar sem var miðlað til hennar við rann­sókn máls­ins vegna gild­andi lagaum­hverfis.
Helmingur yfirstjórnenda lögreglunnar fékk stöðuna án auglýsingar
FréttirLögregla og valdstjórn

Helm­ingur yfir­stjórn­enda lög­regl­unnar fékk stöð­una án aug­lýs­ingar

Ítrekað er vik­ist undan meg­in­regl­unni um aug­lýs­inga­skyldu þegar ráðið er í yfir­manns­stöður hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. „Eins og þið þekkið eru breyt­ingar og aug­lýs­ingar á yfir­manna­stöðum sér­stak­lega vel til þess fallnar að stuðla að óró­leika hjá emb­ætt­inu,“ sagði lög­reglu­stjóri í bréfi til starfs­manna. GRECO hefur gagn­rýnt verk­lagið.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár