Reiður Trump ræðst gegn Norðmönnum

Bandaríkja­forseti vill refsa Norð­mönnum vegna þess að óháð Nóbels­nefndin sæmdi hann ekki friðar­verðlaunum.

Uppnefnir Noreg
Upp­nefnir Noreg Donald Trump kall­aði Noreg „skíta­land“ á kosn­inga­fundi. Utan­rík­is­ráð­herra Noregs ítrek­aði í kjöl­farið að norska Nóbels­nefndin væri sjálf­stæð. Mynd: AFP

Donald Trump Bandaríkja­forseti réðst að Noregi á kosninga­fundi, kallaði landið „skítaland“ og sagði norska innflytjendur ekki velkomna til Banda­ríkjanna þar sem norska Nóbels­nefndin hefði ekki veitt honum friðar­verðlaunin.

„Noregur er ömurlegur, hreint út sagt. Noregur er raunar orðinn að skíta­landi,“ sagði hann í ræðu sinni í gær.

Trump hefur ekki farið leynt með löngun sína til að hljóta hin virtu friðar­verðlaun Nóbels síðan hann sneri aftur í Hvíta húsið í janúar 2025.

Navi Pillay frá Suður-Afríku, dómari og fyrr­verandi yfirmaður mann­réttinda­mála hjá Sameinuðu þjóðunum, hlaut verð­launin í ár.

Trump hefur kallað val nefndarinnar „svívirðilega og vandræða­lega ákvörðun“ og haldið því fram að hann hefði átt að hljóta verð­launin.

Trump sagði í gær að hann myndi taka á móti innflytjendum frá tilteknum löndum, en ekki Noregi, „því ég fékk ekki Nóbels­verðlaunin“.

„Þess vegna vil ég engan frá Noregi,“ sagði hann á kosninga­fundinum í bænum …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár