Sjö ára barni birt stefna á hendur móður þess

Umboðs­maður barna segir um skýrt brot á lögum sé að ræða. Bæði sé verið að brjóta lög um með­ferð einka­mála og barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Móðirin segir sér gjör­sam­lega mis­boðið

Sjö ára barni birt stefna á hendur móður þess
Brotið gegn barna­sátt­mál­anum Óheimilt er sam­kvæmt lögum um með­ferð einka­mála að afhenda börnum undir fimmtán ára stefnur. Það að sjö ára dreng hafi verið afhent stefna í gær er einnig brot á barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna. Myndin er svið­sett. Mynd: Shutterstock

Stefnu­vottur Sýslu­manns­ins á Suð­ur­nesjum afhenti í gær sjö ára gömlum dreng stefnu á hendur móður hans í Reykja­nesbæ. Slíkt er með öllu óheim­ilt en ekki má afhenda neinum stefnu nema við­kom­andi hafi náð fimmtán ára aldri hið minnsta. Umboðs­maður barna hyggst senda árétt­ingu til allra sýslu­manns­emb­ætta vegna þessa.

Í gær­kvöldi, 28. maí, brá Sigrún Dóra Jóns­dóttir sér út á bílaplan við heim­ili sitt í Reykja­nesbæ með fjög­urra ára gömlum syni sínum, þar sem dreng­ur­inn var að æfa sig að hjóla. Á meðan að Sigrún var úti við bank­aði stefnu­vottur Sýslu­manns­ins á Suð­ur­nesjum upp á og fór annar sonur Sigrúnar, sjö ára gam­all, til dyra. Þegar dreng­ur­inn hafði upp­lýst stefnu­vott­inn um að móðir sín væri ekki heima rétti stefnu­vottur honum stefn­una og sagði honum að afhenda móður sinni skjalið.

Sigrún segir í sam­tali við Stundina að henni sé algjör­lega mis­boðið vegna vinnu­bragð­anna. „Það varð svo sem eng­inn skaði af þessu í gær­kvöldi, sonur minn er aðeins sjö ára og átt­aði sig ekki á hvað var um að ræða. Ef eldri sonur minn, þrettán ára sem líka var heima, hefði farið til dyra og tekið á móti þessu er ég hins vegar hrædd um að hann hefði tekið þetta nærri sér.“

„Þú réttir ekki barni svona póst“

Sigrún hafði sam­band við Lög­regl­una á Suð­ur­nesjum í gær og til­kynnti um málið enda seg­ist hún telja að um lög­brot sé að ræða. Þá sendi hún erindi á Sýslu­mann­inn á Suð­ur­nesjum, Umboðs­mann barna, Sviðs­stjóra Vel­ferð­ar­sviðs Reykja­nes­bæjar, dóms­mála­ráð­herra og vel­ferð­ar­nefnd Alþingis þar sem hún vekur athygli á mál­inu.

Sigrún seg­ist ekki ætla að opna stefn­una enda líti hún svo á að henni hafi ekki borist með rétt­mætum hætti. Þar í ofaná­lag hafi ekki verið kvittað fyrir mót­töku hennar enda ekki við því að búast að sjö ára barn kvitti fyrir slíkt. „Þetta er bara rangt og menn hljóta að átta sig á því, sama hvern er um að ræða og sama hvað lögin segja, þú réttir ekki barni svona póst.“

Guðríður Bolla­dóttir, lög­fræð­ingur hjá emb­ætti Umboðs­manns barna, segir þessi vinnu­brögð með öllu óheimil. „Það er ekki heim­ilt að birta stefnu fyrir barni sem er yngra en fimmtán ára. Það kemur bara fram í lögum um með­ferð einka­mála. Að afhenda barni stefnu með þessum hætti er brot á rétt­indum barns­ins. Embætti umboðs­manns barna lítur svo á að þetta sé ekki ein­göngu brot á lögum um með­ferð einka­mála heldur jafn­framt í ósam­ræmi við eina af meg­in­reglum Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna, um að það sem sé barn­inu fyrir bestu eigi alltaf að vera í for­gangi. Við erum í þessum töl­uðu orðum að leggja loka­hönd á erindi til allra sýslu­manns­emb­ætta lands­ins þar sem við áréttum þessi sjón­ar­mið og brýnum fyrir sýslu­mönnum að þeir sem sjái um stefnu­birt­ingu sé kunn­ugt um þessar reglur og þeir fari að þeim. Þarna hefur orðið ein­hver mis­brestur á því.“

Guðríður segir að sér sé ekki kunn­ugt um að við­líka hafi áður komið fyrir, þó hún vilji ekki full­yrða það. Umboðs­maður barna muni svara erindi Sigrúnar og fylgj­ast áfram með mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár