Ríkislögreglustjóri heimilaði lífvörðum sona Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, að koma með skotvopn inn í landið í gegnum Keflavíkurflugvöll samkvæmt heimildum Stundarinnar.
Yair og Avner Netanyahu lentu í Keflavík í dag, en koma þeirra er ekki opinber heimsókn að sögn ræðismanns Ísrael á landinu. Utanríkisráðuneytið hefur enga aðkomu að ferðum bræðranna, enda þeir ekki í opinberum erindagjörðum, að sögn Sveins H. Guðmarssonar upplýsingafulltrúa.
Bræðurnir eru fyrstu synir ísraelsks forsætisráðherra sem fá lífverði í boði hins opinbera. Fyrirkomulagið var umdeilt þegar það var kynnt og tryggir það þeim einnig bíl og bílstjóra, auk öryggisaðstoðar erlendis. Ekki er vitað hvernig dagskrá þeirra er háttað á meðan dvöl þeirra á Íslandi stendur.
Teljast VIP samkvæmt reglum Ríkislögreglustjóra
Samkvæmt reglum um valdbeitingu lögreglumanna og meðferð og notkun valdbeitingartækja og vopna þarf heimild Ríkislögreglustjóra fyrir vopnaburði …













































Athugasemdir