Synir forsætisráðherra Ísraels staddir á Íslandi

Yair og Avner Net­anyahu, synir for­sæt­is­ráð­herra Íslands, eru staddir á Íslandi. Ræð­is­maður Ísrael á Íslandi segir að ekki sé um opin­bera heim­sókn að ræða.

Synir forsætisráðherra Ísraels staddir á Íslandi
Benjamin Net­anyahu For­sæt­is­ráð­herra Ísrael hefur sætt gagn­rýni, en yfir 100 Palest­ínu­menn hafa fallið í mót­mælum und­an­farið í skot­hríð Ísraela.

Yair og Avner Net­anyahu, synir for­sæt­is­ráð­herra Ísrael, Benjamin Net­anyahu, eru staddir á Íslandi sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar. 

Avner og stoltur faðirÞessi mynd var tekin af Avner Net­anyahu eftir að hann gekk í ísra­elska her­inn.

Hinn 27 ára Yair hefur verið við­loð­andi stjórn­mál í nokkur ár, meðal ann­ars í kosn­inga­bar­áttu Likud föður síns til þing­kosn­inga 2015. Hann er sagður hafa nokkur áhrif í ísra­elskum stjórn­málum, en vakti upp­nám í síð­ustu viku þegar hann birti á Instagram síðu sinni mynd af tyrk­neska fán­anum sem á stóð „Fuck Turkey“.

Yair hefur einnig sætt gagn­rýni fyrir mynd­birt­ingar á sam­fé­lags­myndum sem taldar voru daðra við gyð­inga­hatur, að sögn blaðs­ins Haaretz. Upptaka af ölv­uðum Yair að ræða kynni við vænd­is­konur og spill­ingu föður síns í tengslum við borun eftir nátt­úrugasi var birt opin­ber­lega í byrjun árs. Avner er 23 ára, lauk nýverið her­skyldu og starfar sem þjónn á veit­inga­stað í Jer­úsalem.

Fyrstir til að fá lífverði

Í fylgd með bræðr­unum eru líf­verðir, en þeir eru fyrstu synir ísra­elsks for­sæt­is­ráð­herra sem fá slíka aðstoð frá hinu opin­bera. Fyr­ir­komu­lagið var umdeilt þegar það var kynnt og tryggir það þeim einnig bíl og bíl­stjóra, auk örygg­is­að­stoðar erlendis, að sögn The Times of Israel.

Ræð­is­maður Ísraels á Íslandi, Páll Arnór Pálsson, segir heim­sókn bræðrana ekki vera opin­bera og að hann hafi ekki verið lát­inn vita af henni fyrir fram. „Líklega vilja þeir hafa þetta bara sem prí­vat mál,“ segir Páll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár