Hanna Birna ein af 100 áhrifamestu í jafnréttismálum

Fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, er önnur tveggja íslenskra kvenna á lista Apolitical yfir 100 áhrifa­mestu í jafn­rétt­is­málum árið 2018. Hún sagði af sér ráð­herra­dómi og hætti í stjórn­málum eftir að hafa verið staðin að því að segja Alþingi marg­sinnis ósatt um mál er varð­aði brot gegn ein­stæðri móður frá Nígeríu.

Hanna Birna ein af 100 áhrifamestu í jafnréttismálum
Hanna Birna Krist­jáns­dóttir Hanna Birna hætti í stjórn­málum árið 2016. Mynd: Pressphotos

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, er önnur tveggja íslenskra kvenna á lista Apolitical yfir 100 áhrifa­mestu ein­stak­linga í jafn­rétt­is­málum fyrir árið 2018. Hún sagði af sér ráð­herra­dómi og hætti í stjórn­málum eftir að hafa verið staðin að því að segja Alþingi marg­sinnis ósatt um mál er varð­aði brot gegn ein­stæðri móður frá Nígeríu.

Listinn var kynntur í dag, en hin íslenska konan á honum er Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Apolitical er alþjóð­legur stefnu­mót­un­ar­vett­vangur, en á list­anum eru þeir ein­stak­lingar sem þykja hafa skarað fram úr þegar kemur að jafn­rétt­is­málum hvort sem er með rann­sóknum, stefnu­mótun, bar­áttu fyrir mál­efnum sem tengj­ast jafn­rétti eða öðru. Meðal þeirra eru Justin Trudeau, for­sæt­is­ráð­herra Kanada, Malala Yousafzai Nóbels­verð­launa­hafi, Emmanuel Macro, for­seti Frakk­lands og Melinda Gates.

Hanna Birna var kosin sem aðal­maður í stjórn Jafn­rétt­is­sjóðs Íslands á Alþingi í júní 2017 sem full­trúi sjálf­stæð­is­manna í sjóðnum. Þá er hún for­maður fram­kvæmda­stjórnar Women Political Leaders.

Sagði af sér í kjölfar lekamálsins

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir er fyrr­ver­andi vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og gegndi emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra árin 2013 til 2014. Hún sagði af sér ráð­herra­emb­ætti eftir að fram hafði farið lög­reglu­rann­sókn á ráðu­neyti hennar og póli­tískur aðstoð­ar­maður dæmdur í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir brot á þagn­ar­skyldu sem bitn­aði á tveimur hæl­is­leit­endum frá Nígeríu. Þá hafði ráð­herra marg­sinnis verið staðin að því að segja fjöl­miðlum og Alþingi ósatt um mála­vöxtu. Í árs­byrjun 2015 komst umboðs­maður Alþingis að þeirri nið­ur­stöðu að Hanna Birna hefði brotið lög og mis­beitt valdi sínu með því að hafa ítrekuð afskipti af lög­reglu­rann­sókn­inni sem beind­ist að hennar nán­ustu aðstoð­ar­mönnum og beita lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þrýst­ingi. Hún hætti á Alþingi sum­arið 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár