Enginn Stalín, enginn Hitler

Illugi Jök­uls­son segir frá gríska prins­inum Georg sem olli ólýs­an­legum hörm­ungum á 20. öld þegar hann barg lífi frænda síns, Niku­lásar Rússa­keis­ara, og greinir einnig frá ófull­nægðri prinsessu og fleira fólki.

Enginn Stalín, enginn Hitler
Georg prins af Grikk­landi Gríski prins­inn Georg barg lífi frænda síns, Niku­lásar krón­prinsi Rúss­lands, og olli með því gíf­ur­legum hörm­ungum í ver­ald­ar­sög­unni og dauða tug­millj­óna manna. Það er í það minnsta það sem Illugi Jök­uls­son heldur fram. Mynd: Wikipedia

Fyrir skemmstu rakti ég á þessum vett­vangi sög­una af því þegar ungur grískur prins af dönskum ættum bjarg­aði lífi Niku­lásar krón­prins Rússa þegar þeir voru í heim­sókn í Japan árið 1891. Að honum hafði ráð­ist jap­anskur líf­vörður hans og hugð­ist sneiða af Nikulási höf­uðið af ástæðum sem verða að telj­ast óljósar. En gríski prins­inn Georg, frændi Niku­lásar, barg sem sé lífi krón­prins­ins og olli með því gíf­ur­legum hörm­ungum í ver­ald­ar­sög­unni og dauða tug­millj­óna manna.

Því vil ég að minnsta kosti halda fram. 

Þröngsýnn og illa gefinn keisari

Merg­ur­inn máls­ins er sá að þremur árum seinna dó Alex­ander Rússa­keis­ari fyrir aldur fram og af því Nikulás hafði ekki verið afhaus­aður í Japan, þá tók hann við völdum af föður sínum. Og það hefði betur aldrei gerst. Þó Nikulás hafi verið rólyndur ungur maður og ekk­ert ill­menni, svona per­sónu­lega, þá þverskall­að­ist hann algjör­lega við því að bæta stjórn­ar­farið í Rúss­landi sem löngu var orðið tíma­bært. Og hann var heldur ekki svo vel gef­inn að hann átt­aði sig á að hann flaut sof­andi að feigðar­ósi. Eig­in­kona hans var ekki síður þröng­sýn og stapp­aði í hann stál­inu. Rak svo Rússland upp í brim­garð bylt­ingar 1917 og þá var ástandið orðið svo slæmt að öfga­hópur komm­ún­ista gat rænt völdum og sigr­aði síðan í grimmi­legu borg­ara­stríði og kúg­un­ar­stjórn Leníns og síðan Stalíns var komið á.

Og þarf von­andi ekki að orð­lengja um hví­líkar hörm­ungar það hafði í för með sér og gætir áhrif­anna enn.

En ef Georg Grikkja­prins hefði ekki náð að trufla Tsuda Sanzo þegar hann reiddi sam­úræjasverð sitt yfir hálsi Niku­lásar 1891, þá hefði margt farið öðru­vísi.

Er Alex­ander dó hefði Nikulás þá auð­vitað ekki tekið við völdum, heldur hefði orðið Rússa­keis­ari yngri bróðir hans, Georg, nafni frænd­ans frá Grikk­landi.

 

„Kannski hefði Georg auðn­ast að bæta svo kjör almenn­ings í land­inu að hinir blá­snauðu hefðu ekki nán­ast verið neyddir í fang Leníns“

Og sá mik­il­vægi munur var á bræðr­unum Nikulási og Georg að sá síð­ar­nefndi var að minnsta kosti þokka­lega gáf­aður en það var Nikulás ekki. 

Ástandið hefði aldrei orðið jafn slæmt

Þótt ástæðu­laust sé að gera ein­hvern dýr­ling úr Georg Rússa­prins, þá má heita 100 pró­sent víst að ef hann hefði orðið Rússa­keis­ari þá hefði hann hvorki neitað að deila valdi sínu, líkt og Nikulás gerði, né látið reka svo á reið­anum hvað snerti fram­farir og umbætur og raunin varð undir stjórn bróður hans. Það er auð­vitað ómögu­legt að segja hverju hefði fram undið í smá­at­riðum en með Georg í hásæt­inu í Kreml hefði lend­ingin í Rúss­landi þó aldrei orðið jafn slæm og raun varð og Rússar súpa enn seyðið af. Kannski hefði Georg auðn­ast að bæta svo kjör almenn­ings í land­inu að hinir blá­snauðu hefðu ekki nán­ast verið neyddir í fang Leníns, kannski hefði Georg jafn­vel haft vit á að afsala sér sjálfur völdum og koma á þing­ræði. 

Enginn kommúnismi, enginn nasismi

Bylt­ingin í Rúss­landiUpp­veðraðir rúss­neskir her­menn í bylt­ing­unni árið 1917.

Og ef valda­rán komm­ún­ista hefði ekki átt sér stað í Rúss­landi, þá er eig­in­lega úti­lokað að nasim­inn hefði risið í Þýska­landi í kjöl­far fyrri heims­styrj­aldar og kallað Hitler til valda. Því nas­ism­inn nærð­ist jú á komm­ún­ista­stjórn­inni í hinum nýju Sov­ét­ríkjum eins og blóð­suga.

Nið­ur­staðan er því sú að ef Georg Grikkja­prins hefði ekki bjargað lífi Niku­lásar þá hefði Georg nafni hans orðið Rússa­keis­ari og Evr­ópu­menn hefðu sloppið við bæði Stalín og Hitler, Gúlag­fanga­búð­irnar og hel­för­ina, jafn­vel kalda stríðið og Donald Trump.

Ó, að hann hefði hugsað sig betur um hann gríski Georg þegar Sanzo lyfti sverð­inu og sagt við sjálfan sig:

„Á ég ekki bara að láta þetta afskipta­laust?“ 

Engir andans menn

Málið er reyndar aðeins flókn­ara en ég hef látið í veðri vaka. Georg Rússa­prins var nefni­lega heilsu­veill. Hann hafði lagt af stað með Nikulási og gríska Georg í ferð­ina um Asíulönd en orðið að snúa heim vegna þess að hann fékk slæman bronkítis og 1899 lést hann skyndi­lega eftir að hafa spúð blóði. Vísast var hann með ein­hverja teg­und af berklum. Nú má vera að ef Georg hefði orðið keis­ari að föður sínum látnum 1894, þá 23 ára gam­all, þá hefði heilsu hans verið betur gætt, en það verður að telj­ast ólík­legt. Lang­lík­leg­ast er að hann hefði eftir sem áður dáið úr blóð­spýju og ekki haft neinn tíma til að hefja svo veru­lega umbætur í Rúss­landi að það hefði nægt til að koma í veg fyrir valda­töku Leníns og Stalíns.

Mikhaíl IIHefði Nikulás II verið háls­höggv­inn í Japan og Mikhaíl orðið Rússa­keis­ari má leiða af því líkum að eng­inn Lenín, eng­inn Stalín og þar af leið­andi eng­inn Hitler hefði komið til sög­unnar. Ef og hefði.

En ef Georg hefði dáið sem Rússa­keis­ari árið 1899, vænt­an­lega án þess að hafa náð að eign­ast son og erf­ingja, þá hefði bróðir hans, yngsti sonur Alex­and­ers III, orðið keis­ari, Mikhaíl, þá 21 árs. Og þótt Mikhaíl hafi vissu­lega ekki verið mik­ill and­ans maður, frekar en þeir voru flestir Roma­novarnir, þegar þarna var komið sögu, þá var hann langt frá því sami þver­girð­ing­ur­inn og Nikulás og hefði – líkt og Georg bróðir hans – áreið­an­lega látið undan kröfum um aukið lýð­ræði og bætt kjör almenn­ings. Þannig að nið­ur­staðan hefði í grund­vall­ar­at­riðum orðið hin sama og ef Georg hefði lifað lengi í hásæt­inu: Enginn Lenín, eng­inn Stalín og þar af leið­andi eng­inn Hitler. 

Vildi ekki krúnuna

Af Mikhaíl varð heil­mikil kvenna­fars­saga seinna meir. Hann varð ást­fang­inn af ýmsum konum sem Nikulás bróðir hans bann­aði honum að eiga. Að lokum gekk hann í ber­högg við vilja bróður síns og kvænt­ist Natalíu nokk­urri Brasóvu, sem keis­ara­fjöl­skyldan kall­aði „blóðsugu“ en Mikhaíl gat ekki án verið. Þegar fyrri heims­styrj­öldin braust út sætt­ust Nikulás og Mikhaíl en yngri bróð­ir­inn reyndi ákaft að fá Nikulás til að slaka á klóm ein­ræð­is­ins og hefja umbætur, ella væri keis­ara­stjórnin dauða­dæmd.

Það kom fyrir ekki og þegar Nikulás neydd­ist til að segja af sér í byrjun árs 1917 reyndi hann að afsala sér keisara­krún­unni til Mikhaíls. Mikhaíl vildi þó enga krúnu fá og bráða­birgða­stjórn tók við, uns komm­ún­istar rændu völdum. Komm­ún­istar tóku síðan Mikhaíl höndum og drápu hann eins og flestalla af hinum höt­uðu Roma­novum, sem þeir náðu í. „Blóðsugan“ slapp til Vest­ur­landa en þeir Roma­novar sem einnig komust undan vildu ekk­ert með hana hafa og hún dó blá­fá­tæk í örlít­illi íbúð­ar­kompu í París 1952.

Þau Mikhaíl og Natalía höfðu átt einn son en hann dó í bílslysi tví­tugur að aldri. Hann hét auð­vitað Georg. 

Hvað varð um örlagavaldinn?

En hvað um Georg prins hinn gríska, þann mikla örlaga­vald, þótt hann hafi áreið­an­lega ekki gert sér grein fyrir því sjálfur hve rosa­leg áhrif hann hafði? Hann átti nú ekki sér­lega við­burða­ríka ævi. Árið 1898 var hann að vísu gerður að land­stjóra yfir Krít en eyjan var þá að brjót­ast undan valdi Tyrkja, tæpum 70 árum á eftir meg­in­hluta Grikk­lands. Georg reyndi að halda frið­inn milli krist­inna og íslamskra íbúa og um tíma leit út fyrir að Krít kynni að verða sjálf­stætt ríki. Georg von­að­ist til að verða þar kon­ungur.

Svo fór þó ekki því grískir þjóð­ern­is­sinnar fengu að ráða því að Krít sam­ein­að­ist Grikk­landi og Georg yfir­gaf eyj­una 1906. Eftir það bjó hann að mestu í Grikk­landi, Danmörku eða Frakk­landi og gerði fátt sögu­legt. Hann var yfir­leitt gæf­lyndur maður og átaka­fæl­inn.

Merkileg konaMarie Bonap­arte var merki­leg kona og afrek­aði meðal ann­ars að bjarga Sigmund Freud úr klóm nas­ista og koma honum út úr Aust­ur­ríki árið 1938.

Aftur á móti átti hann merki­lega konu, franska prinsessu sem hét Marie Bonap­arte. Langafi hennar var Lucien Bonap­arte, yngri bróðir Napól­e­ons keis­ara. Marie var for­rík en auð­æfin komu úr móð­ur­ætt­inni, því móð­ur­afi hennar var mað­ur­inn sem reisti spila­vítið í Monte Carlos og rak­aði saman pen­ingum í bók­staf­legri merk­ingu.

Til þess var tekið að gríski Georg gerði enga kröfu til að öðl­ast yfir­ráð yfir fjár­munum konu sinnar og stýrði hún eignum sínum sjálf til ævi­loka. Georg lét sér líka að mestu í léttu rúmi liggja þótt kona hans yrði víð­fræg fyrir ást­ar­sam­bönd sín og ýmissa karla, en Marie var gríð­ar­lega áhuga­söm um allt sem að kyn­lífi laut. Georg var reyndar ekki alveg trúr og tryggur heldur, því hann átti í djúpu ástar- og kyn­ferð­is­sam­bandi við föð­ur­bróður sinn, Valdimar prins í Danmörku. 

Skurðaðgerð til að fá fullnægju

Marie var læri­meyja Sigmunds Freuds og stund­aði sjálf sál­könnun og skrif­aði mikið og hugs­aði um kyn­ferð­is­lega full­næg­ingu kvenna, sem hún kvaðst aldrei hafa upp­lifað. Ekki vildi hún þó kenna Georg eða öðrum elsk­hugum sínum um það, heldur væri ástæðan fyrst og fremst lík­am­leg. Meðal ann­ars gekkst hún undir skurð­að­gerð til að reyna að auka lík­urnar á full­næg­ingu en hún mun ekki hafa tek­ist sem skyldi.

Þegar Marie var farin að stunda sál­grein­ingu af krafti var Georg nóg boðið og hann bað konu sína að hætta þessu og fara að sinna heim­il­inu og tveim börnum þeirra en hún þvertók fyrir það. Þá lét hann kyrrt liggja og hún fór sínu fram sem fyrr. 

Holdlegar kenndir móður og sonar

Reyndar var ekki hefð fyrir því að grískar prinsessur sinntu börnum sínum og Marie kom lítið sem ekk­ert nálægt upp­eldi barna sinna. Er sonur þeirra Georgs óx úr grasi áttu mæðginin erfitt með að bæla niður hold­legar kenndir hvort til ann­ars, en Marie bjó svo vel að þekkja helsta sér­fræð­ing þeirra tíma í slíkum kenndum, Freud gamla, og tók hann þau í með­ferð til að auð­velda þeim að pakka slíkum kenndum niður. Seinna gerði sá sami sonur allt vit­laust í fjöl­skyld­unni með því að kvæn­ast rúss­neskri konu af öngvum aðal­sættum og vildi Georg síðan ekk­ert með son sinn hafa en Marie tók þessu ljúf­mann­lega.

Hún átti manna mestan þátt í að Gyð­ingnum Freud tókst að sleppa frá Aust­ur­ríki 1938 þegar þýskir nas­istar undir stjórn Adolfs Hitlers höfðu náð þar völdum – bein­línis af því mað­ur­inn hennar hafði verið svo snöggur að bjarga lífi Niku­lásar 46 árum fyrr. Ekki veit ég þó til þess að Marie hafi áttað sig á því sam­hengi. 

Heillaði ungan Frakka

Francois Mitt­er­and

Síðast frétti ég til þeirra hjóna þegar Georg og Marie voru full­trúar grísku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar við krýn­ingu Elísa­betar Breta­drottn­ingar 1954. Við það tæki­færi varð frægt að Marie og sessu­nauti hennar, tæp­lega fer­tugum frönskum stjórn­mála­manni, leidd­ist svo þung­lama­leg athöfnin að þau tóku tal saman og voru brátt svo nið­ur­sokkin í að ræða sál­grein­ing­ar­kenn­ingar Freuds og fleira smá­legt að krýn­ingin fór fyrir ofan garð og neðan hjá þeim. Frakkinn hét Francois Mitt­er­and og varð síðar for­seti Frakk­lands.  

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár