Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki ódýra leikskóla

Hildur Björns­dóttir fram­bjóð­andi flokks­ins í Reykja­vík segir mark­miðið vera að bjóða upp á áreið­an­lega leik­skóla. „Ódýr þjón­usta er gjarnan slæm þjón­usta“

Sjálfstæðisflokkurinn vill ekki ódýra leikskóla
Segir ódýra þjón­ustu gjarnan slæma Hildur Björns­dóttir, fram­bjóð­andi Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, segir Sjálf­stæð­is­flokk­inn ekki leggja áherslu á ódýra leik­skóla heldur áreið­an­lega. Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggur ekki áherslu á að leik­skóla­vist í Reykja­vík sé ódýr. Þetta kemur fram í aðsendri grein Hildar Björns­dóttur, sem skipar 2. sæti á lista flokks­ins fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, í Frétta­blað­inu. „Ódýr þjón­usta er gjarnan slæm þjón­usta,“ skrifar Hildur og segir að þess í stað vilji Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bjóða upp á áreið­an­lega leik­skóla, bestu leik­skól­ana.

Í grein­inni fjallar Hildur vítt og breitt um dag­vist­un­ar­úr­ræði, launa­mun kynj­anna og kynja­jafn­rétti. Hún bendir á að launa­munur kynj­anna, körlum í hag, sé ein ástæða þess að körlum sem nýta rétt sinn til fæð­ing­ar­or­lofs fari fækk­andi. Þá bíði hund­ruð barna eftir því að fá leik­skóla­vist í Reykja­vík og mæður þeirra taki á sig ábyrgð­ina við að sinna þeim í meira mæli en karlar, sökum þess að launum mæðr­anna sem sé fremur fórn­andi en feðr­anna.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggur ekki áherslu á ódýr­ari leik­skóla“

Nauð­syn­legt sé, skrifar Hildur, að tryggja örugga dag­gæslu strax að loknu fæð­ing­ar­or­lofi, sem væri æski­legt að lengja. Því hygg­ist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn styðja betur við bæði dag­for­elda og leik­skóla í borg­inni. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggur ekki áherslu á ódýr­ari leik­skóla. Okkar mark­mið er að bjóða áreið­an­lega leik­skóla,“ skrifar Hildur og nefnir að núver­andi meiri­hluti í borg­inni vilji bjóða ódýr­ustu leik­skól­ana. Ódýr þjón­usta sé hins vegar gjarnan slæm þjón­usta og það hafi nýlegar þjón­ustukann­anir sýnt.

Hildur er þar vænt­an­lega að vísa til þjón­ustukönn­unar Gallup, en greint var frá því í jan­úar síð­ast­liðnum að Reykja­vík­ur­borg mæld­ist neðst í könn­un­inni í sam­an­burði við önnur sveit­ar­fé­lög þegar kæmi að þjón­ustu leik­skóla. Mest ánægja var með þjón­ust­una í Garðabæ. Íbúar Reykja­víkur greiða hins vegar lægstu leik­skóla­gjöldin, um 146 þús­und krónum minna á árs­grund­velli heldur en íbúar Garða­bæjar.

Mikill munur á afstöðu eftir könnunum

Reykja­vík­borg tekur ekki þátt í þjón­ustukönn­un­inni en íbúar borg­ar­innar eru hins vegar hafði með í úrtaki Gallup til við­mið­unar við önnur sveit­ar­fé­lög. Ástæðan fyrir því að Reykja­vík tekur ekki þátt er sú að það er mat stjórn­enda innan borg­ar­kerf­is­ins að könn­unin end­ur­spegli við­horf íbúa til sveit­ar­fé­lags­ins en gefi ekki mynd af gæðum þjón­ust­unnar.

Borgin hefur hins vegar fram­kvæmt við­horfskönnun ein­göngu meðal for­eldra barna á öllum leik­skólum borg­ar­innar und­an­farin ár. Nið­ur­stöður könn­unar sem fram­vkæmd var á síð­asta ári og birt í maí 2017 var sú að 96 pró­sent for­eldra sögð­ust ánægðir með leik­skóla barna sinna. Sam­bæri­leg tala árið 2015 var 95 pró­sent, en þá var könn­unin aðeins lögð fyrir for­eldra á um helm­ingi leik­skóla borg­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
5
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár