Þegar samúræinn hugðist hálshöggva Rússaprins

Illugi Jök­uls­son skrifar um til­ræði við Nikulás síðar Rússa­keis­ara í Japan 1891. Frændi Niku­lásar, Georg son­ar­sonur Krist­jáns X, kon­ungs Íslands og Dan­merkur, vann þá hetju­dáð mikla. Eða hvað?

Þegar samúræinn hugðist hálshöggva Rússaprins
Nikulás II Hefði Nikulás II Rússa­keis­ari verið háls­höggv­inn í Japan hefði sagan mögu­lega orðið allt önnur. Mynd: Shutterstock

Þann 11. maí árið 1891 var 22 ára gam­all grískur prins staddur í bænum Otsu við Biwa-vatn í miðju Japan. Þetta var reffi­legur ungur maður með há koll­vik og afar snyrti­legt yfir­skegg, sterk­legur og þrótt­mik­ill, og sá gildi göngu­stafur silf­ur­s­leg­inn sem hann bar var bara tískutildur. Prinsinn þurfti í raun­inni alls ekk­ert að styðja sig við hann. Georg hét hann, þessi prins, næstelsti sonur Georgs Grikkja­kóngs og Olgu drottn­ingar. Hvorugt þeirra mátti í raun­inni heita grískt; Georg kóngur var næstelsti sonur Krist­jáns IX Dana­kóngs og hafði verið dubb­aður upp í hásætið í Aþenu þegar Ottó Grikkja­kóngur var settur af 1862 og átti enga sonu; en Olga var son­ar­dóttir Niku­lásar I Rússa­keis­ara. 

Heimalningur leggur land undir fót

Nikulás II 18 ára

Það var einmitt vegna ætt­ar­tengsla við rúss­nesku keis­ara­fjöl­skyld­una sem Georg prins með göngustaf­inn var kom­inn til Japans. Honum hafði verið boðið að slást í för frænda síns og jafn­aldra, Niku­lásar krón­prins Rússa, sem hafði verið boð­inn í opin­bera heim­sókn til Japans. Ráðamenn í Japan voru þá í óða önn að rjúfa ein­angrun lands­ins sem staðið hafði óslitið öldum saman þangað til um miðja 19. öld og boðið til Niku­lásar krón­prins var einn þáttur í því. Krón­prins­inn var reyndar í miðri mik­illi reisu um ver­öld­ina og þeir Georg frændi höfðu þegar heim­sótt Egifta­land, Indland, Síam og Singapúr. Fram að þessu hafði Nikulás verið hálf­gerður heimaln­ingur í Moskvu og hafði litla sem enga þekk­ingu á umheim­inum. Alex­ander III faðir hans hafði heldur ekki sett hann inn í nein stjórn­ar­mál­efni svo hann þótti hel­stil fávís um flest, en frjáls­lyndir menn von­uðu að þessi ferð myndi opna augu krón­prins­ins fyrir ver­öld­inni og öðrum áhrifum en bara hinu feyskna rúss­neska ein­veldi Romanov-ætt­ar­innar. 

Krónprins fékk sér tattú

Og vissu­lega var ferðin upp­lifun fyrir þá frændur Nikulás og Georg og í Japan hafði þeim sann­ar­lega verið tekið með kostum og kynjum. Þeim var fengin sér­stök fylgd­ar­sveit þar sem voru leið­sögu­menn, túlkar og lög­reglu­menn og fór allt saman fram með ýtr­ustu kurt­eisi. Prins­arnir höfðu farið um ýmsar jap­anskar borgir og þar á meðal til hinnar fornu höf­uð­borgar þar sem ætt­leiddur sonur Jap­anskeis­ara tók á móti þeim og kapp­kost­aði að sýna þeim virð­ingu. Ekki höfðu prins­arnir þó enn gengið á fund Jap­anskeis­ara sjálfs.

Japanir mátu heim­sókn­ina mik­ils. Rússar höfðu á síð­ustu árum fært sig mjög upp á skaftið við landa­mærin að Kína og Kyrra­hafs­strönd­ina, og aukið þar her­afla sinn stór­lega, svo Japönum var í mun að efla við þá banda­lag. Þeir voru sjálfir í útþenslu­hug og litu Kóreu til dæmis hýru auga um þær og vildu tryggja að Rússar skiptu sér ekki af plönum þeirra þar. En Nikulás og Georg sátu ekki bara opin­berar veislur þar sem fyr­ir­menn hneigðu sig hver fyrir öðrum, uns alla var farið að sundla, heldur fóru þeir út á meðal almenn­ings, fengu sér snotur drekatattú á hand­legg og svo fram­vegis. Og svo lá leiðin að hinu ægi­fal­lega Biwa-vatni og ungu prins­arnir fóru í báts­ferð um kyrr­látt vatnið og nutu þess að teygja í sig nátt­úru­feg­urð­ina. 

Ráðist fram með sverð

En þá fór að kárna gam­anið. Eftir sigl­ing­una voru prins­arnir á leið að létti­vögnum sínum ásamt bæði eigin fylgd­ar­liði og hinum japönsku gest­gjöfum þegar Georg veitti því skyndi­lega athygli að einn japönsku líf­varð­anna var kom­inn með hár­beitt sam­úræja-sverð á loft og hjó nú sem skjót­ast að Nikulási Rússa­prins. Þetta gerð­ist svo óvænt að eng­inn fékk við ráðið, högg líf­varð­ar­ins kom á and­lit Niku­lásar sem féll við og blóð foss­aði úr sári hægra megin á enni hans. Og líf­vörð­ur­inn hafði nú stillt sér betur upp og lyfti sverði sínu á ný yfir höfði Niku­lásar. Nú bjóst hann til að hrein­lega sníða höfuð krón­prins­ins af búknum.

Allir stóðu sem steini lostnir og japönsku líf­verð­irnir höfðu ekki hreyft hönd eða fót rúss­neska gest­inum til varnar.

En þá kom Georg Grikkja­prins til skjal­anna. Hann einn var nógu skjótur að átta sig. Umsvifa­laust steig hann nú fram, lyfti silf­ur­búnu mont­priki sínu og náði að slá sverð­ber­ann svo fast í hand­legg­inn sem reiddi upp sverðið að högg hans geig­aði og Nikulás gat beygt undan gljá­fægðri egg­inni á síð­ustu stundu. Og nú runnu loks álögin af hinum japönsku líf­vörðum og þeir ráku upp skað­ræðisóp og teygðu sig eftir vopnum sínum svo til­ræð­is­mað­ur­inn lagði á snöggan flótta. Hann komst hins vegar ekki langt því tveir létt­vagna­hlauparar eltu hann uppi, stukku á hann og héldu honum föstum þar til hinir líf­verð­irnir komu aðvíf­andi og tóku hann höndum. 

Tilræðismaðurinn var samúræi

Þarna hafði hurð skollið nærri hælum fyrir Nikulás krón­prins Rússa. Hann var með 9 sentí­metra langt sár á höfð­inu sem mikið blæddi úr en ljóst var að það var ekki lífs­hættu­legt. Hins vegar átt­uðu allir sem á horfðu sig á því að næsta högg hefði drepið hann ef Georg Grikkja­prins hefði ekki slegið til­ræð­is­mann­inn með staf sínum svo honum fip­að­ist.

Til­ræð­is­mað­ur­inn reynd­ist vera 36 ára fyrr­ver­andi sam­úræi sem hafði verið í japönsku lög­regl­unni und­an­farið. Tsuda Sanzo hét hann og við yfir­heyrslur kvaðst hann hafa ákveðið að drepa Nikulás vegna þess að hann væri „ókurt­eis“. Með því að ganga ekki beint á fund keis­ar­ans við komu sína til Japans og votta honum virð­ingu sína, þá hefði Nikulás van­virt keisar­ann sem refsa bæri fyrir með líf­inu. Jafn­framt hélt hann ræður yfir þeim sem yfir­heyrðu hann um lymsku­full áform Rússa um að seil­ast til valda í Japan og skyldi svo aldrei verða. Sjón­ar­mið eins og þau sem Sanzo hélt fram voru ekki alveg óþekkt í Japan því mörgum fannst að í auknum sam­skiptum við útlönd fælist und­ir­gefni við erlend ríki. 

Beðið eftir kraftaverki?

Einnig heyrð­ist sú skýr­ing að Sanzo hefði til­heyrt sam­úræja­hópi sem von­að­ist eftir því krafta­verki að upp­reisn­ar­for­ing­inn Saigo Takamori myndi dúkka upp í fylgd­ar­liði Niku­lásar krón­prins. Takamori hafði gert upp­reisn í nafni gam­alla gilda árið 1877 og var felldur, en sumir fylg­is­menn vildu ekki trúa á dauða hans. Þeir trúðu því að hann hefði flúið til Rúss­lands og kæmi þaðan um síðir til að snúa aftur öllu til hefð­bundn­ari vega í Japan. Þegar Takamori birt­ist ekki í rúss­neska her­skip­inu sem flutti Nikulás og fylgd­ar­lið til Japans á Sanzo að hafa talið að Rússar hefðu komið sam­úræj­anum snjalla fyrir katt­ar­nef, og heitið hefndum.

En svo var því líka fleygt að Sanzo hefði ein­fald­lega hatað alla útlend­inga. Það var til í dæm­inu í Japan í þá daga. Og sumir full­yrtu að hann hefði ekki verið með öllum mjalla. 

Saumakona sker sig á háls

Tilræðið við Nikulás var Japönum mikið áfall. Keis­ar­inn ark­aði þegar á fund Niku­lásar og lét sig meira að segja hafa það að fara fálið­aður um borð í rúss­neskt her­skip í höfn­inni í Kobe, þangað sem Nikulás var kom­inn með sára­bindi um höfuð, en slíkt höfðu sumir af ráð­gjöfum hans talið mikið hættu­spil því Rússar myndu áreið­an­lega sæta færis að hneppa keisar­ann í gísl­ingu.

Í einu hér­aði voru nöfnin Tsuda og Sanzo bönnuð og skyldu þau aldrei brúkuð framar og þeir urðu að skipta um nöfn sem hétu þessum ógæfu­nöfnum. Sím­skeyti með óskum um góðan bata streymdu í þús­unda­tali til Niku­lásar frá háum sem lágum í Japan og þegar spurð­ist að Rússa­prins ætl­aði að halda heim­leiðis fyrr en til stóð vegna þess­arar árásar, þá skar ung sauma­kona sig á háls á opin­berum vett­vangi, og var það gert í yfir­bót­ar­skyni fyrir hönd japönsku þjóð­ar­innar. Og Japanir kunnu að meta þessa sjálfs­fórn og jap­anskir fjöl­miðlar lýstu hana val­kyrju. Vagna­hlaupararnir tveir sem hand­söm­uðu Sanzo urðu líka á skammri stundu þjóð­hetjur. Þeim var úthlutað gíf­ur­lega háum eft­ir­launum til ævi­loka, fengu verð­laun og orður og þóttu til marks um hetju­lund Japana. 

Olli gremja Nikulásar stríði?

Sanzo sjálfur var dreg­inn fyrir dóm og sak­sókn­ari fór fram á dauða­refs­ingu á mjög hæpnum for­sendum, en hæsti­réttur kvað upp úrskurð um ævi­langt fang­elsi. Þótti það til marks um að Japan væri orðið sann­kallað rétt­ar­ríki. Sanzo veikt­ist hins vegar og dó eftir fáeina mán­uði í haldi.

Bæði Nikulás og aðrir Rússar full­vissuðu Japani um að þeir bæru engan kala til japönsku þjóð­ar­innar eða stjórn­valda vegna til­ræð­is­ins. Sumir hafa þó leitt að því líkur að þegar Rússar lýstu yfir stríði gegn Japönum 1904 hafi gremja Niku­lásar vegna árás­ar­innar átt sinn þátt í því, en hann var þá orð­inn keis­ari í stað Alex­and­ers föður síns sem dó 1896. Japönum gramd­ist alla vega veru­lega við Rússa og virð­ast hafa rakið stríðið til til­ræð­is­ins í Otsu. Að minnsta kosti voru vagna­hlaupararnir tveir þegar í stað sviptir hinum ríf­legu eft­ir­launum sínum, þeir sættu ásök­unum fyrir að vera njósn­arar Rússa og lög­reglan ofsótti þá. 

Mikhaíl og „blóðsugan“

En spólum nú til baka til þeirrar stundar þegar Georg Grikkja­prins reiðir upp silf­ur­bú­inn staf­inn sinn og bjargar Nikulási frá bráðum bana. Það er auð­vitað alltaf afrek að bjarga manns­lífi en eftir á hyggja: Hefði Georg þá átt að standa afskipta­laus eins og hinir og leyfa Tsuda Sanzo að höggva höf­uðið af Rússa­prins?

„Því ef Nikulás hefði verið afhaus­aður þarna á bökkum Biwa-vatns, þá hefði Mikaíl, yngri bróðir hans, á end­anum orðið Rússa­keis­ari. Og þá hefði sagan orðið ansi mikið öðru­vísi en raun varð á.“ 

Þetta kann að virð­ast furðu­leg spurn­ing.

En sann­leik­ur­inn er sá að það má vel hugsa sér að hetju­dáð Georgs hafi í raun verið hörmu­legur bjarn­ar­greiði við bæði Rússa og allt mann­kynið í heild. Því ef Nikulás hefði verið afhaus­aður þarna á bökkum Biwa-vatns, þá hefði Mikaíl, yngri bróðir hans, á end­anum orðið Rússa­keis­ari. Og þá hefði sagan orðið ansi mikið öðru­vísi en raun varð á. Frá Mikaíl og mögu­legri keis­ara­tíð hans segir í næstu flækju­sögu eftir hálfan mánuð. Og hvað varð um Georg Grikkja­prins? Þar munu koma við sögu „blóðsugan“ Natalía Brasova og svo þeir kump­ánar Raspútín, Adolf Hitler, Jósef Stalín og Sigmund Freud svo aðeins fáir séu taldir.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár