Þriðjudaginn síðasta birti Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, yfirlýsingu um mál Hauks Hilmarssonar vegna opins bréfs til hennar sem birt var daginn áður, undirritað af rúmlega 400 manns. Yfirlýsing Katrínar veldur okkur, nokkrum vinum Hauks sem meðal annarra skrifuðum undir bréfið, miklum vonbrigðum — enda vonuðumst við til þess að hún tæki mark á þeim áhyggjum sem í því eru viðraðar og þeim áskorunum sem þar eru settar fram.
Sérstaklega þykir okkur alvarlegt að Katrín skuli virða að vettugi þær rökstuddu áhyggjur aðstandenda Hauks (sem sagt er frá í fyrsta tölulið áskorunarinnar) að Utanríkisráðuneytið hafi ekki framkvæmt ítarlega athugun á uppruna og sannleiksgildi frétta sem fyrst birtust af málinu.
Annars vegar er þar um ræða samhljóma frásagnir fjölda tyrkneskra fjölmiðla þann 6. og 7. mars sl. um að lík Hauks verði sent til Íslands. Í þeim er ekki sagt berum orðum að lík Hauks sé í höndum tyrkneskra yfirvalda, en í ljósi yfirlýsinga varnarsveita Kúrda um að þeim hafi ekki tekist að finna ummerki um Hauk — lífs eða liðinn — geta umræddir fjölmiðlar varla átt við annað. Hins vegar er um að ræða frásögn kúrdíska blaðamannsins Mohammed Hassan sem ræddi við Morgunblaðið þann 8. mars og sagðist hafa staðfestar heimildir fyrir því að Tyrkir væru með lík Hauks og kæmu til með að nota það í líkaskiptum við varnarsveitir Kúrda á komandi misserum.
Samskipti Utanríkisráðuneytisins við fjölskyldu Hauks og sá hluti gagna málsins sem aðstandendum var nýlega veittur aðgangur að — og nú einnig yfirlýsing forsætisráðherra — gefa ekki til kynna að þetta hafi verið rannsakað með fullnægjandi hætti. Enda virðist athugun málsins byggja á skjalfestum leiðbeiningum tyrkneskra lögregluyfirvalda um að íslensk stjórnvöld rannsaki hvarf Hauks fyrst og fremst með diplómatískum samskiptum við tyrknesk stjórnvöld — þau sömu og að öllum líkindum bera ábyrgð á hvarfi, fangelsun eða jafnvel andláti Hauks.
Við krefjumst heiðarlegra vinnubragða og biðjumst undan hverskyns útúrsnúningum á borð við svar upplýsingafulltrúa Utanríkisráðuneytisins við spurningu Stundarinnar um þetta sama efni í gær. Stundin hefur eftir honum að „leitað hefði verið til tyrkneskra, kúrdískra og sýrlenskra yfirvalda með það að marki að reyna að grafast fyrir um hvaðan umræddar upplýsingar kæmu en án árangurs.“ Með öðrum orðum svarar upplýsingafulltrúinn því ekki hvort reynt hafi verið með öllum tiltækum ráðum að komast að því hvaðan tyrknesku fjölmiðlarnir og kúrdíski blaðamaðurinn fengu sínar upplýsingar — og hvort þær eigi við rök að styðjast. Þess í stað endurtekur hann gamlar fréttir af samskiptum ráðuneytisins við önnur stjórnvöld. Og það staðfestir síður en svo að ráðuneytið hafi „leitað allra leiða til að komast að afdrifum Hauks,“ eins og segir í yfirlýsingu Katrínar.
Við stöndum við áskorunina til Katrínar Jakobsdóttur og ítrekum hana hér með.
Almar Erlingsson
Anna Þórsdóttir
Helga Katrín Tryggvadóttir
Jason Thomas Slade
Jón Levy Guðmundsson
Jórunn Edda Helgadóttir
Lárus Páll Birgisson
Saga Ásgeirsdóttir
Snorri Páll Jónsson
Steinunn Gunnlaugsdóttir
Sunneva Ása Weisshappel
Athugasemdir