Segir ummæli Brynjars ófagleg og afvegaleiða umræðu

Vara­for­maður Gagnsæis, sam­taka gegn spill­ingu, gagn­rýnir Brynjar Níelsson harð­lega vegna ummæla um skýrslu GRECO. Brynjar sagður verja valda­kerfi sem hann sé sjálfur hluti af.

Segir ummæli Brynjars ófagleg og afvegaleiða umræðu
Gagnrýni Brynjars án rök­stuðn­ings Var­for­maður Gagnsæis, sam­taka gegn spill­ingu, segir Brynjar Níelsson, þing­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ekki setja fram nein rök til að styðja við gagn­rýni sína á skýrslu GRECO. Mynd: Pressphotos.biz

Gagnrýni Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á nýlega skýrslu GRECO, nefndar Evr­ópu­ráðs­ins gegn spill­ingu, er ófag­leg, til þess fallin að afvega­leiða umræðu og ekki studd neinum rökum. Þetta er mat Hall­gríms Ósk­ars­sonar, vara­for­manns Gagnsæis, sam­taka gegn spill­ingu. Hall­grímur segir að and­staða Brynjars við til­lögur GRECO til umbóta verði að skoð­ast í ljósi þess að þar sé sett fram gagn­rýni á kerfi sem Brynjar sé hluti af.

GRECO birti nýlega skýrslu um úttekt á spill­ing­ar­vörnum Íslands á vett­vangi æðstu hand­hafa fram­kvæmda­valds­ins og lög­gæslu. Í skýrsl­unni var að finna 18 form­legar ábend­ingar til stjórn­valda til úrbóta, meðal ann­ars var bent á að lög­reglan væri of ber­skjölduð fyrir póli­tískum afskiptum. Var nefnt að tengsl lög­reglu við einn stjórn­mála­flokk væru óeðli­lega mikil. Ekki þarf að velkj­ast í vafa um að þar var verið að vísa til Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Sagði nefndina pólitíska

Í við­tali við Stundina í síð­ustu viku sagði Brynjar GRECO ekki hlut­lausa eða fag­lega skip­aða nefnd. Hún væri þvert á móti póli­tískt skipuð. Þar í ofaná­lag gagn­rýndi Brynjar vinnu­lag nefnd­ar­innar, það virk­aði á hann eins og vinna við skýrsl­una færi þannig fram að verið væri að taka spjall við hinn og þennan um skoðun við­kom­andi á ástand­inu á Íslandi. Brynjar úti­lok­aði svo sem ekki að slíkum vinnu­brögðum, sem hann taldi að væru með þessum hætti af hálfu nefnd­ar­innar, væri hægt að kom­ast að réttri nið­ur­stöðu. „Ég tel samt ekki að svo sé og ég held að menn séu að taka of mikið upp í sig til að geta staðið undir því.“ Hvað varð­aði tengsl Sjálf­stæð­is­flokks­ins við lög­reglu svar­aði Brynjar því til að það væri bara eitt­hvað „píp“.

Tillögum GRECO víðast vel tekið

Hall­grímur Ósk­ars­sonVara­for­maður Gagnsæis segir Brynjar Níelsson afvega­leiða umræðu um spill­ingu inn á ómál­efn­an­legar brautir. „Það kann að þjóna hags­munum ein­hverra, en alls ekki hags­munum almenn­ings.“

Hall­gímur segir það sér­deilis ófag­legt hjá Brynjari að lýsa yfir van­trausti á GRECO bara sökum þess að hann sé ósam­mála nið­ur­stöðum skýrslu nefnd­ar­innar. Með því sé hann auk­in­heldur mögu­lega að lýsa því yfir að aðrar nefndir á vegum Evr­ópu­ráðs­ins séu ófag­legar því valið sé í þær flestar með svip­uðu lagi og í nefnd GRECO.

Í GRECO sé valið fólk, segir Hall­grímur, sem hafi fag­legan bak­grunn bæði úr stjórn­sýslu eða spill­ing­ar­tengdum málum. „Þetta er fólk sem hefur unnið á vegum Evr­ópu­ráðs, bæði í stofn­unum og í tengslum við Evr­ópu­þingið, en einnig fólk sem til­nefnt er á vegum borg­ara­sam­taka og fólks sem starfar að því að upp­ræta spill­ingu í helstu löndum Evrópu. Mikið af lyk­il­fólki í nefndum GRECO kemur einnig úr hinu akademíska umhverfi, starfar sem fræði­fólk í háskólum víða um Evrópu. Fólkið sem vinnur á vegum GRECO er því valið út frá fjöl­þættri reynslu og til­nefnt af mörgum aðilum sem láta sig spill­ing­ar­mál varða. Það er einmitt and­stæða þess að vera póli­tískt val­inn.“

Umræða í löndum þar sem GRECO hefur sett fram til­lögur til úrbóta hefur langoft­ast verið mjög jákvæð að sögn Hall­gríms og stjórn­völd tekið vel í til­lögur nefnd­ar­innar til úrbóta í þá átt að sporna við spill­ingu. „Enda er slíkt ein­kenni þess að vald­hafar hafi áhuga á að vinna fyrir hönd almenn­ings en ekki til að vernda fyr­ir­fram það kerfi sem stjórn­sýslan byggir á. Það er hins vegar skilj­an­legt að Brynjar sé á móti til­lögum GRECO því til­lög­urnar gagn­rýna kerfi sem Brynjar er hluti af. GRECO vill meðal ann­ars minnka hags­muna­á­rekstra hjá æðstu hand­höfum fram­kvæmd­ar­valds og gera siða­reglur ítar­legri. Það má því skilja gagn­rýni Brynjars sem svo að hann sé fyrst og fremst að lýsa því yfir að hann sé á móti slíku. Einnig virð­ist Brynjar ekki vera sáttur við að settar verði skýr­ari reglur um gjafir og önnur fríð­indi fyrir æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds og að hags­muna­skrán­ing sömu aðila verði bætt því það er annað sem GRECO vill benda á í skýrslu sinni.“

Þynnir út umræðuna

Hall­grímur segir það einnig aug­ljóst þegar gagn­rýni Brynjars sé skoðuð að hann nefni ekk­ert máli sínu til stuðn­ings, aðeins að honum sjálfum þyki lítt til til­lagna GRECO koma. „Yfir­lýs­ingar Brynjars eru því ekki svara­verðar og er þeim því alger­lega vísað á bug. GRECO er fag­leg nefnd fræði­fólks og fólks með reynslu af því að skoða spill­ing­ar­mál og spill­ing­ar­hvata og starfar GRECO í öllum löndum náið með mörgum þekk­ing­ar­að­ilum sem hafa skoð­anir á stöðu spill­ing­ar­mála í hverju landi fyrir sig. Á Íslandi hitti nefnd GRECO mjög marga sem að máli koma, bæði úr frjálsum félaga­sam­tökum, úr stjórn­sýslu og mennta­kerf­inu og svo einnig marga sem tengj­ast hinu póli­tíska kerfi. 

Það er ekki gott fyrir neitt land þegar þing­menn, kjörnir af almenn­ingi, svara ábend­ingum um að bæta ástandið með því að afvega­leiða umræð­una inn á ómál­efn­an­legar brautir. Slíkt gerir lönd veik­ari og umræðu útþynnt­ari. Það kann að þjóna hags­munum ein­hverra, en alls ekki hags­munum almenn­ings.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár