Brynjar segir GRECO ekki hlutlausa nefnd heldur pólitíska

Nefnd Evr­ópu­ráðs­ins gegn spill­ingu bendir á 18 atriði sem stjórn­völd á Íslandi ættu að bæta. Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, segir vinnu nefnd­ar­innar ekki fag­lega og er ósam­mála nið­ur­stöð­unum.

Brynjar segir GRECO ekki hlutlausa nefnd heldur pólitíska

GRECO, nefnd Evr­ópu­ráðs­ins gegn spill­ingu, er ekki hlut­laus og fag­lega skipuð nefnd heldur þvert á móti póli­tískt skipuð og ber að líta á störf hennar í því ljósi. Þetta segir Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins en Brynjar sat í Íslands­deild Evr­ópu­þing­ráðs­þings­ins árið 2013. „Svona nefndir eru póli­tískt skip­aðar og snú­ast ekki um sér­fræð­inga og fag­fólk,“ segir Brynjar í sam­tali við Stundina.

GRECO birti nýlega skýrslu um úttekt á spill­ing­ar­vörnum Íslands á vett­vangi æðstu hand­hafa fram­kvæmd­ar­valds og lög­gæslu. Þar er að finna 18 form­legar ábend­ingar til stjórn­valda um úrbætur. Meðal ann­ars er bent á að ráð­herrar séu tregir til að segja af sér emb­ætti séu þeir staðnir að mis­gjörðum, að vald­hafar sem brjóti reglur þurfi að sæta við­ur­lögum og að styrkja þurfi lög­regl­una sem að sama skapi sé of ber­skjölduð fyrir póli­tískum afskiptum.

Pólitík sveipuð skikkju hlutleysis

Brynjar segir að ekki sé skortur á alþjóð­legum stofn­unum og sam­tökum sem kenni sig við mann­rétt­indi og hvers konar góð­mennsku og nefnir hann Evr­ópu­ráðið og GRECO í því sam­hengi. „Margir halda að hér sé um að ræða ein­hverjar hlut­lausar nefndir skip­uðu fag­fólki, sem geti leið­beint okkur. Það er mik­ill mis­skiln­ingur. Þarna er póli­tíkin alls­ráð­andi þótt hún sé sveipuð skikkju hlut­leysis, fræða og vís­inda.“ Brynjar segir jafn­framt að nefndir eins og GRECO séu póli­tískt skip­aðar og umræða um þær verði að taka mið af því. „Evr­ópu­ráðið er byggt bara upp eins og venju­legt, póli­tískt þing og menn eru kosnir þar inn af þjóð­þing­unum. Í eðli sínu er það því póli­tískt þing þó það fjalli um afmörkuð mál­efni. Ég starf­aði með Evr­ópu­ráð­inu um nokk­urra ára skeið og ég var bara þar starf­andi með flokka­grúppu hægri manna. Aðrir voru í sós­í­alista­grúppum eða grænum grúppum og svo fram­vegis. Allir þessir aðilar eru að til­nefna í nefndir eins og GRECO, þannig að sú nefnd er póli­tísk, alveg eins og þing­nefndir hér heima.“

Brynjar gerir einnig athuga­semd við það hvernig skýrsla GRECO er unnin. „Það er bara talað við ein­hverja ein­stak­linga, sem sjálfir hafa póli­tískar skoð­anir, og maður sér það alveg á nið­ur­stöð­unni. Því velti ég fyrir mér hversu fag­lega þetta sé unnið, hvernig kom­ast menn að þess­ari nið­ur­stöðu. Það virkar þannig á mig að það sé bara tekið spjall við fólk og svo sé lýst áhyggjum af því að hlut­irnir séu svona og svona á Íslandi. Menn mega ekki mis­skilja mig samt þannig að það komi ekki oft margar góðar ábend­ingar úr þessu. Ég er bara að und­ir­strika að þetta sé ekki hlut­laust eða fag­legt heldur er þetta póli­tísk vinna. Það þarf að taka skýrslu GRECO með þeim fyr­ir­vara. Það er ekki þar með sagt að þetta geti ekki allt verið rétt. Ég tel samt ekki að svo sé og ég held að menn séu að taka of mikið upp í sig til að geta staðið undir því.“

Segir engin tengsl milli Sjálfstæðisflokks og lögreglu

Spurður hvort að ábend­ing GRECO um óeðli­leg tengsl lög­regl­unnar á Íslandi við einn stjórn­mála­flokk, sem aug­ljós­lega er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sé ástæðan fyrir því að Brynjar bendi á þetta svarar hann því til að það sé eitt þeirra atriða sem hann telji að GRECO sé úti á túni með.

„Það eru engin tengsl á milli Sjálf­stæð­is­flokks­ins og lög­regl­unnar. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur auð­vitað verið mjög lengi og oft við völd og verður því auð­vitað fyrir gagn­rýni, eðli­lega. Við höfum lengi haldið á dóms­mála­ráðu­neyt­inu til að mynda,“ segir Brynjar. „Ég hef starfað mjög mikið með lög­regl­unni alveg frá því ég útskrif­að­ist úr laga­deild fyrir meira en þremur ára­tugum en ég hef aldrei orðið var við nein óeðli­leg tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn, hvað þá neina spill­ingu. Í litlu sam­fé­lagi, þar sem fólk er tengt og allir þekkja alla, þá er auð­velt að reyna að búa til ein­hver óeðli­legt tengsl en þau eru bara ekki til staðar. Mér finnst þetta bara vera píp.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár