Ástandið í Grindavík dró úr gróða stóru bankanna

Dregið hefur úr hagn­aði hjá þremur stærstu við­skipta­bönk­unum. Í árs­hluta­skýrslum sem bank­arnir þrír birtu nýlega má sjá að arð­semi eig­in­fjár hjá bönk­unum þremur er undir 10 pró­sentum. Í til­felli Íslands­banka og Lands­banka, sem ríkið á hlut í, er hlut­fallið undir þeim kröfum sem ríkið gerir til þeirra. Jarð­hrær­ingar á Reykja­nes eru meðal ann­ars taldar hafa haft áhrif á afkomu bank­anna.

Ástandið í Grindavík dró úr gróða stóru bankanna
Jarð­hrær­ingar og eld­gos Grinda­vík var rýmd 10. nóv­em­ber í fyrra og síðan þá hefur ítrekað gosið við bæinn. Hraun flæddi inn fyrir bæj­ar­mörkin og íbúar hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sín. Þessi staða hefur bein áhrif á afkomu stóru við­skipta­bank­anna þriggja. Mynd: Björn Oddsson/almannavarnir

Á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs högn­uð­ust Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion Banki sam­an­lagt um rétt tæp­lega 17 millj­arða króna. Í sam­an­burði við hagn­að­inn sem við­skipta­bank­arnir þrír skil­uðu á fyrsta árs­fjórð­ungi í fyrra, er þetta nokkuð minni hagn­aður eða sem nemur rúm­lega þremur millj­örðum króna. 

Lands­bank­inn skilar mestum hagn­aði á þessum fjórð­ungi, eða um 7,7 millj­örðum króna. Íslands­banki kemur þar á eftir með 5,4 millj­arða króna hagnað og Arion rekur lest­ina með 4,4 millj­arða króna hagnað. 

Jarðhræringar á Reykjanesi ýta undir virðisrýrnun útlána

Í árs­hluta­reikn­ingum sem bank­arnir birtu fyrir skömmu eru jarð­hrær­ing­arnar á Reykja­nesi sagðar hafa haft tölu­verð áhrif á afkomu bank­anna á fyrstu mán­uðum árs­ins. Áhrifin komi einna helst fram í virð­is­rýrnun á útlánum bank­anna.

Í til­kynn­ingu Lands­bank­ans vegna birt­ingar á árs­hluta­reikn­ingi bank­ans segir að „virð­is­breyt­ingar útlána …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár