Næstmesti hagnaður bankanna frá því að þeir fengu nýjar kennitölur
Banka­stjór­arnir Benedikt Gíslason, Lilja Björk Ein­ars­dóttir og Jón Guðni Ómarsson stýra Arion banka, Lands­bank­anum og Íslands­banka.

Næstmesti hagnaður bankanna frá því að þeir fengu nýjar kennitölur

Vaxta­tekjur voru uppi­staðan í 83,5 millj­arða króna hagn­aði íslensku við­skipta­bank­anna þriggja á síð­asta ári. Á sama tíma jókst vaxta­kostn­aður heim­ila um rúm­lega 50 pró­sent. Banka­skattur, sem var lækk­aður veru­lega í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum, skil­aði rík­is­sjóði 5,8 millj­örðum króna í fyrra.

Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki högn­uð­ust sam­an­lagt um 83,5 millj­arða króna á síð­asta ári. Það er 25 pró­sent meiri hagn­aður en var af rekstri þeirra árið 2022 og meiri hagn­aður í krónum talið en var árið 2021, þegar bank­arnir þrír nutu þess að Seðla­bank­inn gerði pen­inga ódýr­ari en nokkru sinni fyrr til að örva hag­kerfið á far­ald­urs­tímum og þeir högn­uð­ust um 81,2 millj­arða króna.

Fyrstu árin eftir að bank­arnir voru end­ur­reistir á nýjum kenni­tölum eftir banka­hrunið haustið 2008 ein­kennd­ust upp­gjör þeirra af hagn­aði vegna svo­kall­aðra ein­skipt­isliða. Á grund­velli neyð­ar­laga höfðu fjöl­margar eignir verið færðar inn í þá og bank­arnir voru að koma þeim í verð á þessu tíma­bili. Um er að ræða, meðal ann­ars, stór fyr­ir­tæki sem annað hvort voru seld til nýrra eig­enda á verði sem var mun hærra en bók­fært virði eða voru skráð á markað til að koma þeim í nýtt eign­ar­hald. Árið 2015, sem …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Asmundur Richardsson skrifaði
    Hvaða útskýringar fá kjósendur frá sínum flokkum og láta þeir hug sinn í ljósi með atvkæði sínu? Hvaða réttlætingu er til á þessum veruleika og hvernig tengist það eðlilegum viðskiptaháttum, þegar raunveruleikinn er að minni þjónusta jafngildir hærri þjónustugjöldum ásamt og með heimild stjórnvalda til bankanna um vaxtaokur á almenning.
    0
  • Þorsteinn V. Sigurðsson skrifaði
    Óheiðarleg atvinnugrein
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár