Kolbeinn ákærður fyrir að hafa strokið kynfæri barns

Fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu var í jan­úar ákærður fyrir nauðgun og kyn­ferð­is­brot gegn barni sem átti sér stað fyrir tæpum tveimur árum síðan. Heim­ildin hefur ákæruna undir höndum.

Kolbeinn ákærður fyrir að hafa strokið kynfæri barns
Lands­liðs­maður Kolbeinn Sig­þórs­son var hluti af gull­ald­ar­liði íslenska lands­liðs­ins í knatt­spyrnu. Mynd: EPA

Kolbeinn Sig­þórs­son, fyrr­ver­andi lands­liðs­maður og atvinnu­maður í knatt­spyrnu, er ákærður fyrir að hafa dregið niður nær­bux­urnar á barni og strokið kyn­færi þess „fram og til baka mörgum sinnum.“ Hið meinta brot átti sér stað sunnu­dag­inn 26. júlí 2022, eða fyrir tæpum tveimur árum síðan.

Kolbeinn er ákærður fyrir nauðgun og kyn­ferð­is­brot gegn barni fyrir að hafa með ólög­mætri nauð­ung haft það sem kallað er „önnur kyn­ferð­is­mök“ við stúlk­una. Hann hafi nýtt sér yfir­burði sína gagn­vart stúlkunni við brotið en aldur hennar hefur verið afmáður úr ákæru sem Heim­ildin hefur undir höndum. 

Í ákærunni kemur fram að Kolbeinn sé grun­aður um brot gegn 194. og 202. grein almennra hegn­ing­ar­laga. Fyrri greinin segir að hver sem hefur „sam­ræði eða önnur kyn­ferð­is­mök við mann án sam­þykkis hans ger­ist sekur um nauðgun og skal sæta fang­elsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum.“ Sú síð­ari segir að hver sem hefur „sam­ræði eða önnur kyn­ferð­is­mök við barn, yngra en [15 ára], skal sæta fang­elsi [ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum].“

Móðir þol­and­ans krefst þriggja millj­óna króna miska­bóta fyrir hönd dóttur sinnar. Ákæran var gefin út 11. jan­úar síð­ast­lið­inn.

Ákæran í mál­inuEmbætti hér­aðs­sak­sókn­ara gaf út ákæru í mál­inu í jan­úar. Ekki er hægt að sjá aldur barns­ins en ljóst er að það var undir 15 ára aldri þegar hið meinta brot átti sér stað.
Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár