Halla Hrund komin yfir 30 prósent og með mælanlega forystu í kapphlaupinu á Bessastaði

Það virð­ist vera sem sífellt fleiri séu að ákveða að kjósa annað hvort Katrínu Jak­obs­dóttur eða Höllu Hrund Loga­dóttur sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar.

Halla Hrund komin yfir 30 prósent og með mælanlega forystu í kapphlaupinu á Bessastaði
Tvær á toppnum Halla Hrund Loga­dóttir hefur bætt við sig mestu fylgi það sem af er kosn­inga­bar­átt­unnar og Katrínu Jak­obs­dóttur virð­ist ganga best ann­arra fram­bjóð­enda, að minnsta kosti eins og sakir standa, að halda sér í þokka­legu fylgi. Mynd: Golli

Halla Hrund Loga­dóttir orku­mála­stjóri mælist með 31 pró­sent fylgi í nýj­ustu kosn­inga­spá Heim­ild­ar­innar. Fylgi hennar jókst um fimm pró­sentu­stig á milli spáa og hefur nú rúm­lega sexfald­ast síðan að fyrsta kosn­inga­spáin var gerð 13. apríl. Halla Hrund leiðir nú kapp­hlaupið á Bessa­staði með tölu­verðum og mæl­an­legum mun, en Katrín Jak­obs­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, mælist með næst mest fylgi. Alls segj­ast 25 pró­sent að Katrín sé þeirra val sem næsti for­seti, eða sex pró­sentu­stigum færri en gerðu það rúmri viku eftir að hún lýsti yfir fram­boði sínu fyrir mán­uði síðan. 

Þær tvær virð­ast vera að skilja sig frá næstu tveimur fram­bjóð­endum, Baldri Þór­halls­syni, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, og Jóni Gnarr, leik­ara og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra í Reykja­vík. Fylgi Baldurs var afar stöðugt þangað til í lok apríl, eða um og yfir 27 pró­sent. Í síð­ustu kosn­inga­spám hefur það dalað hægt og rólega og er nú komið niður í 21,4 pró­sent. Baldur hefur aldrei mælst með minna fylgi síðan að hann til­kynnti fram­boð seint í mars­mán­uði. 

Vind­ur­inn virð­ist líka úr fram­boði Jóns Gnarr, að minnsta kosti tíma­bundið. Hann mæld­ist með 18 til 19 pró­sent fylgi í fyrstu kosn­inga­spám sem keyrðar voru en hefur hrapað síð­ustu daga og mælist nú með ein­ungis 11,2 pró­sent. Frá 13. apríl hefur hann því misst 41 pró­sent af fylgi sínu.

Sameiginlegt fylgi efstu tveggja eykst

Aðrir fram­bjóð­endur virð­ast nokkuð langt frá því að eiga raun­hæfa mögu­leika á að blanda sér af alvöru í bar­átt­una um að verða næsta for­seti, þótt taka verði til­lit til þess að enn er tæpur mán­uður til stefnu og meg­in­þorri hinnar hefð­bund­innar kosn­inga­bar­áttu framundan. 

Halla Tóm­as­dóttir, for­stjóri B Team sem bauð sig líka fram til for­seta árið 2016, mælist með 4,1 pró­sent fylgi og Arnar Þór Jónsson, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóm­ari, kemur þar á eftir með 3,6 pró­sent. Þau eru bæði að mæl­ast með minna fylgi en þau gerðu rétt fyrir miðjan síð­asta mánuð. Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir leik­kona mælist með 1,6 pró­sent fylgi en hefur ekki náð yfir tveggja pró­senta múr­inn síðan 22. apríl. Aðrir fram­bjóð­endur – alls fimm tals­ins – mæl­ast svo sam­an­lagt með 2,1 pró­sent fylgi. 

Það virð­ist vera sem að fylgið sé, hægt og rólega, að setj­ast á þá fram­bjóð­endur sem eru að mæl­ast hæst en sam­tals segj­ast 88,6 pró­sent að þeir ætli að kjósa ein­hvern þeirra fjög­urra efstu í kosn­ing­unum 1. júní næst­kom­andi. Það hlut­fall hefur aldrei verið hærra. 

Þá er athygl­is­vert að skoða sam­eig­in­legt fylgi Höllu Hrundar og Katrínar, þeirra tveggja fram­bjóð­enda sem mæl­ast með mest fylgi nú. Um miðjan síð­asta mánuð sögð­ust 36 pró­sent ætla að kjósa aðra hvora þeirra, 23. apríl var það sam­eig­in­lega fylgi komið í um 44 pró­sent en er nú í 56 pró­sent og hefur aldrei verið meira. 

Hvað er kosningaspáin?

Kosn­inga­spáin er unnin í sam­starfi við dr. Baldur Héð­ins­son. Hann hefur keyrt kosn­inga­spálíkan sem hann smíð­aði fyrir fyr­ir­renn­ara Heim­ild­ar­innar í öllum kosn­ingum sem fram hafa farið á Íslandi síð­ast­lið­inn ára­tug, og mun gera það í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna einnig. Líkanið miðar að því að setja upp­lýs­ingar sem skoð­ana­kann­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar reglu­lega í Heim­ild­inni, jafnt á prenti og vef, í aðdrag­anda kosn­inga.

Þær kann­anir sem teknar eru gildar í kosn­inga­spánni verða að upp­fylla lág­marks­skil­yrði töl­fræði­legrar aðferða­fræði. Þar er litið til stærðar úrtaks­ins, fjölda svar­enda, könn­un­ar­tíma­bils og þess hvort úrtakið stand­ist kröfur til að reyn­ast mark­tækt, svo fátt eitt sé nefnt.

Sjö þeirra sem sækj­ast eftir emb­ætti for­seta Íslands hafa þegar mætt í kapp­ræður í Pressu á Heim­ild­inni í tveimur aðskildum þáttum. Hægt er að horfa á þá hér að neðan: 

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár