Á kóngurinn að borga málninguna?

Á danski kóng­ur­inn að ákveða hvenær eigi að mála vegg­ina í höll­inni og hvort skipta þurfi um vask í eld­hús­inu? Og borga? Þessar spurn­ingar og margar fleiri varð­andi fjár­mál fjöl­skyld­unnar á Amali­en­borg ræða danskir þing­menn þessa dag­ana.

Á kóngurinn að borga málninguna?
Við höll Kon­ungs­hjónin Friðrik X og Mary drottn­ing við Amali­en­borg, þar sem móðir hans býr enn.

Eins og flestum mun lík­lega kunn­ugt er Friðrik, eldri sonur Mar­grétar Þór­hildar drottn­ingar og Henriks drottn­ing­ar­manns, tek­inn við bús­for­ráðum á Amali­en­borg. Margrét Þór­hildur hafði margoft lýst yfir að hún hygð­ist sitja sem þjóð­höfð­ingi til ævi­loka (ind­til jeg falder af pinden) og þess vegna kom yfir­lýs­ing hennar í nýárs­ræð­unni 31. des­em­ber sl. mjög á óvart. Þar til­kynnti hún að 14. jan­úar myndi hún afsala sér krún­unni, nákvæm­lega 52 árum eftir að hún varð drottn­ing við frá­fall föður hennar, Friðriks IX.  

Við krúnu­skiptin varð Friðrik, sem Danir hafa allar götur frá 1972 kallað krón­prins, orð­inn Friðrik X og eig­in­konan Mary drottn­ing. Danir eru vel haldnir hvað drottn­ingar varðar því Margrét Þór­hildur heldur áfram drottn­ing­ar­titl­inum og býr áfram í höll­inni á Amali­en­borg. Í höll­inni við hlið­ina, höll Friðriks VIII, búa kon­ungs­hjónin eins og þau hafa gert frá árinu 2010. Þau hafa þó um fleiri bústaði að velja og hafa reyndar sér­stakt dálæti á Kans­ellí­hús­inu við Fredens­borg­ar­höll­ina á Norður-Sjálandi en þar dvöldu þau meðan kór­óna­veiran herj­aði.

Úr nógu að velja og enginn kotungsbragur

Kon­ungs­fjöl­skyldan ræður sam­tals yfir átta höllum, fjórum á Amali­en­borg, Fredens­borg á Sjálandi, Gråsten á Jótlandi, Eremita­geslot á Sjálandi og Det Gule Palæ (fast við Amali­en­borg). Auk þess hluta Krist­jáns­borg­ar­hallar. Til skamms tíma til­heyrði enn fremur Sor­gen­fri Slot á Sjálandi hirð­inni en gerir það ekki lengur. 

Eins og áður var getið eru hall­irnar á Amali­en­borg fjórar. Margrét Þór­hildur býr í einni þeirra, önnur höll er eins konar gesta- og mót­töku­hús, í þeirri þriðju býr Bene­dikte, systir Mar­grétar Þór­hildar, þegar hún er í bænum og í þeirri fjórðu kon­ungs­hjónin. 

Amali­en­borg er aðal­að­setur kon­ungs­fjöl­skyld­unnar en Margrét Þór­hildur hefur um ára­bil dvalist í höll­inni á Fredens­borg vor og haust, gjarnan upp undir þrjá mán­uði í senn. Gråsten-höllin á Suður-Jótlandi hefur verið sum­ar­dval­ar­staður drottn­ingar en Eremita­geslot var byggt sem veiði­hús og er notað sem slíkt enn þann dag í dag. Det Gule Palæ er bústaður hof­mar­skálks­ins, helsta aðstoð­ar­manns og ráð­gjafa þjóð­höfð­ingj­ans. Sá hluti Krist­jáns­borg­ar­hallar sem til­heyrir hirð­inni er einkum not­aður undir stórar veislur. Bygg­ing­arnar fjórar á Amali­en­borg, með bak­görðum, eru um 36 þús­und fer­metrar, Fredens­borg með til­heyr­andi skrúð­garði 31 þús­und fer­metrar en sam­tals eru rétt um 77 þús­und fer­metrar á könnu hirð­ar­innar ef svo mætti að orði kom­ast. Rétt er að nefna að Mar­selis­borg í Árósum er einka­eign Mar­grétar Þór­hildar sem gjarnan hefur dvalist þar á jólum og páskum með fjöl­skyld­unni. Við þetta bæt­ist svo Kongeski­bet Dannebrog, en það er í umsjá sér­stakrar deildar innan hirð­ar­innar, en stærstur hluti áhafn­ar­innar er ungt fólk sem gegnir her­skyldu. Af fram­an­sögðu er ljóst að það er eng­inn kot­ungs­bragur á búskapnum hjá fjöl­skyld­unni á Amali­en­borg. Það er líka ljóst að rekstrar- og við­halds­kostn­aður á þessum húsa­kosti kostar sitt og í fram­haldi af krúnu­skipt­unum hafa orðið miklar umræður um þau mál á danska þing­inu, Fol­ket­inget.

Óbreytt fyrirkomulag frá 1972 þangað til nú

Þótt hirðin hafi umráð yfir húsa­kost­inum sem að framan var getið eru hall­irnar allar í eigu rík­is­ins. Með krúnu­skipt­unum færð­ist hús­bónda­valdið frá Margréti Þórhildi til Friðriks. Varðandi hús­eignir rík­is­ins gilda ákveðin lög, þar á meðal að þegar skipt er um leigj­anda, eða umráða­mann eignar, skal gera svo­kall­aða ástandskönnun (syns­forretn­ing) á eign­inni. Í því felst að yfir­fara ástand við­kom­andi eignar, hvort því við­haldi sem leigj­and­anum ber að sinna hafi verið sinnt, utan dyra og innan. Þetta snýr að öllu því sem kall­ast má eðli­legt við­hald á hús­eign­inni.

Þegar Margrét Þór­hildur tók við veld­is­sprot­anum árið 1972 var kveðið á um það í „húsa­leigu­samn­ingnum“ að inni í árlegri fjár­veit­ingu til hirð­ar­innar væri gert ráð fyrir við­haldi, einkum inn­an­dyra, á hús­eignum sem hirðin hefði til afnota. Þetta fyr­ir­komu­lag hefur að mestu verið óbreytt þau 52 ár sem Margrét Þór­hildur hefur verið þjóð­höfð­ingi Dan­merkur. Um síð­ustu alda­mót var nánar til­greint hvað væri á könnu hirð­ar­innar ann­ars vegar og rík­is­ins hins vegar.

„Nokkrir danskir fjöl­miðlar fylgd­ust grannt með hvað þeim málum liði, en fengu lítil svör þegar eftir var leitað“

Engin ástandsskoðun og hærra framlag

Lögum sam­kvæmt hefði ástands­skoðun á húsa­kynnum hirð­ar­innar átt að fara fram þegar Friðrik tók við krún­unni. Nokkrir danskir fjöl­miðlar fylgd­ust grannt með hvað þeim málum liði, en fengu lítil svör þegar eftir var leitað. Snemma í apríl kynnti rík­is­stjórnin frum­varp um fjár­veit­ingar til hirð­ar­innar, sam­kvæmt því er gert ráð fyrir að fjár­veit­ingin á þessu ári nemi 144 millj­ónum danskra króna (2,9 millj­arðar íslenskir) sem er umtals­verð hækkun frá fyrra ári. Auk þess komi sér­stök auka­fjár­veit­ing sem nemi 29 millj­ónum danskra króna, hún er til­komin vegna krúnu­skipt­anna. Nú hefur komið fram að ekki standi til að ástands­skoða húsa­kost hirð­ar­innar, án þess að það hafi verið skýrt nánar.

Ríkið taki yfir viðgerðir og viðhald

Þegar frum­varpið um fjár­veit­ingar til hirð­ar­innar var lagt fram var þar gert ráð fyrir einni veiga­mik­illi breyt­ingu. Hún var sú að fram­vegis verði allt við­hald og end­ur­nýjun húsa­kosts kon­ungs­fjöl­skyld­unnar á vegum rík­is­ins og þannig aðskilið frá beinum fjár­veit­ingum til hirð­ar­innar. Rökin fyrir þess­ari breyt­ingu eru sögð að ríkið hafi yfir að ráða sér­fræð­ingum varð­andi við­gerðir og við­hald og eðli­leg­ast sé að sama fyr­ir­komu­lag gildi um húsa­kost hirð­ar­innar og aðrar rík­is­eignir að þessu leyti. 

Opinn tékki

Í þing­inu urðu miklar umræður um málið þegar það var lagt fram. Fram kom að all­miklar end­ur­bætur og við­gerðir af ýmsu tagi væru nauð­syn­legar og þótt það væri ekki sagt berum orðum mátti skilja að slíkt hefði verið í lág­marki á síð­ustu árum. Þegar fram kom að ekki væri til­tekin upp­hæð sem ætluð væri til við­halds og við­gerða sögð­ust margir þing­menn ósáttir við það að þarna væri það sem þeir köll­uðu „opinn tékka“. Per Nikolaj Bukh, pró­fessor í fjár­mála­stjórn við Ála­borg­ar­há­skóla, sagði mjög óvenju­legt að þingið sam­þykki laga­breyt­ingu án þess að fram komi hvað slíkt kosti.

Peder Elgaard arki­tekt, sem hefur áður haft eft­ir­lit með við­gerðum á húsa­kosti hirð­ar­innar, telur að sumar bygg­ingar hirð­ar­innar séu í góðu standi en ann­ars staðar þurfi margt að gera. Hann sagði að við­hald bygg­inga, eins og halla hirð­ar­innar, kosti mikla pen­inga, „þetta eru meira og minna alfrið­aðar bygg­ingar og þar má ekki kasta til höndum“.

Nær öruggt að frumvarpið verði að lögum

Ýmsir úr hópi þing­manna segj­ast ósáttir við „fjár­aust­ur­inn til hirð­ar­innar“ eins og þeir orða það. „Þessi fjöl­skylda sem er á fram­færslu þjóð­ar­innar kostar ein­fald­lega allt of mikið,“ sagði einn þing­maður Ein­ing­ar­list­ans og bætti við að „auð­vitað á þessi fjöl­skylda að sjá um við­hald og end­ur­nýjun húsa­kosts­ins, rétt eins og við hin“.

Flestir þing­menn sem tjáðu sig í umræðum lýstu sig fylgj­andi frum­varp­inu og sumir höfðu orð á að þótt kóngur og drottn­ing væru smekk­fólk, líkt og Margrét Þór­hildur, væri óeðli­legt að það væri í þeirra höndum að ákveða hvenær komið væri að hinum og þessum við­gerðum og við­haldi.

Fyrsta umræða um frum­varpið fór fram 19. apríl og þaðan fór það til með­ferðar í þing­nefnd.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár