Sjö vilja verða næsti varaseðlabankastjóri

Sjö hafa sótt um stöðu vara­seðla­banka­stjóra fjár­mála­stöð­ug­leika. Þeirra á meðal eru Tómas Brynj­ólfs­son, fyrr­ver­andi tíma­bund­inn ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu, og Guðrún Johnsen hag­fræð­ingur.

Sjö vilja verða næsti varaseðlabankastjóri
Tómas Brynj­ólfs­son og Guðrún Johnsen Tómas var tíma­bundið ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu á þessu ári. Guðrún hefur starfað fyrir danska seðla­bank­ann síð­ast­liðið ár.

Sjö sækj­ast nú eftir því að verða vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika í Seðla­banka Íslands, en Gunnar Jak­obs­son baðst lausnar þegar enn var ár eftir af skip­un­ar­tím­anum. Hefur hann þáð starf í Mílanó á Ítalíu. Arnór Sig­hvats­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri og fyrr­ver­andi aðal­hag­fræð­ingur bank­ans, sinnir því stöð­unni þangað til ráðið verður í hana á ný.

Tómas vildi verða ráðuneytisstjóri 

Tómas Brynj­ólfs­son skrif­stofu­stjóri er einn þeirra sem vilja verða eft­ir­maður Gunnars. Hann varð ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu tíma­bundið í upp­hafi árs þegar Guð­mundur Árnason lét af störfum til að snúa sér að utan­rík­is­þjón­ustu.

Tómas sótti nýlega um það að verða var­an­legur ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu en þegar Sigurður Ingi Jóhanns­son tók við sem fjár­mála­ráð­herra var fallið frá ráðn­ing­ar­ferl­inu. Þess í stað fylgdi Hermann Sæmunds­son, ráðu­neyt­is­stjóri í inn­við­a­ráðu­neyt­inu, Sigurði Inga og tók við starf­inu.

Var látin hætta í stjórn Arion banka

Hag­fræð­ing­ur­inn Guðrún Johnsen sæk­ist einnig eftir emb­ætti vara­seðla­banka­stjóra fjár­mála­stöð­ug­leika. Hún hefur síð­ast­liðið ár starfað fyrir danska seðla­bank­ann en þar áður var hún lektor við Við­skipta­há­skól­ann í Kaup­manna­höfn og sat í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna.

Guðrún sat í stjórn Arion banka í tæp átta ár en var látin hætta árið 2017 eftir að hún greiddi atkvæði gegn umdeildri sölu á hlut bank­ans í Bakkavör í nóv­em­ber 2015. Hún lagði síðar til á fundi stjórnar að gerð yrði könnun á sölu­ferli eign­ar­hlut­ar­ins. Tillagan var felld.

Guðrún lét í ljós gagn­rýni á sölu rík­is­ins á 22,5% hlutar þess í Íslands­banka í mars 2022. Sagði hún að hún teldi lög hafa verið brotin við söl­una sökum þess að útboðið hefði verið lokað. Benti hún á að lögum sam­kvæmt ætti að leggja áherslu á opið sölu­ferli, gagn­sæi og hlut­lægni.

Aðrir umsækj­endur um starfið eru Bryndís Ásbjarn­ar­dóttir for­stöðu­maður, Eggert Þröstur Þór­ar­ins­son aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri, Gísli Ótt­ars­son fram­kvæmda­stjóri, Haukur C. Bene­dikts­son fram­kvæmda­stjóri og Lúðvík Elíasson for­stöðu­maður. 

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár