Guðrún Johnsen ráðin til danska seðlabankans

Stjórn­ar­maður í Líf­eyr­is­sjóði verzlunarmanna mun hætta í stjórn­inni sam­hliða því að hún tekur við ráð­gjaf­ar­starfi hjá erlendum seðla­banka.

Guðrún Johnsen ráðin til danska seðlabankans
Nýtt starf Guðrún Johnsen starf­aði frá 2009 til 2010 hjá Rann­sókn­ar­nefnd Alþing­is. Mynd: Heiða Helgadóttir

Guðrún Johnsen hag­fræð­ingur hefur verið ráðin sem ráð­gjafi yfir­stjórnar danska seðla­bank­ans í mál­efnum Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins (IMF) og Alþjóða­greiðslu­bank­anum (BIS). Hún hefur und­an­farin ár starfað sem lektor við Við­skipta­há­skól­ann í Kaup­manna­höfn (CBS) og setið í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna. Guðrún, sem greindi frá vista­skipt­unum á LinkedIn, mun hætta í stjórn sjóðs­ins sam­hliða því að hún tekur við nýju starfi. Hún hefur setið í stjórn líf­eyr­is­sjóðs­ins, sem er sá næst stærsti á Íslandi, síðan sum­arið 2019. 

Guðrún á að baki yfir 20 ára feril sem háskóla­kenn­ari og kenndi áður við Háskóla Íslands, Háskól­ann í Reykja­vík og við Osló­ar­há­skóla. Auk þess sem hefur hún starfað sem rann­sak­andi á sviði fjár­mála og efna­hags­mála hjá alþjóð­legum stofn­un­um. Frá 2009-2010 starf­aði Guð­rún hjá Rann­sókn­ar­nefnd Alþing­is og gaf út bók­ina „Bringing Down the Banking System – Lessons from Iceland“ árið 2014.

Hún hefur lokið dokt­ors­prófi í hag­fræði frá ENS í Frakk­landi og meist­ara­gráðum í bæði töl­fræði og hag­nýtri hag­fræði frá Uni­versity of Michigan. Frá 2009-2010 starf­aði Guð­rún hjá Rann­sókn­ar­nefnd Alþing­is, en eftir hana liggja margar grein­ar, bók­arkaflar og bók um fjár­málakrepp­una miklu.“ Þá var hún um tíma stjórn­ar­for­maður Gagnsæis, sem í dag Heitir Transparency International á Íslandi.

Áberandi í umræðunni

Guðrún hefur verið áber­andi í umræðu um efna­hags­mál og við­skipti á und­an­förnum árum. Hún sat í stjórn Arion banka í tæp­lega átta ár en var látin hætta þar síðla árs 2017 eftir að hafa greitt atkvæði í stjórn­­inni gegn umdeildri sölu á hlut bank­ans í Bakka­vör í nóv­­em­ber 2015 og lagði það síðan til á fundi stjórnar Arion banka 14. nóv­­em­ber 2018 að ­gerð yrði könnun á sölu­­­ferli eign­­­ar­hlut­­­ar­ins. Sú til­­­laga var felld. 

Í minni­blaði sem Banka­­sýsla rík­­is­ins skrif­aði Bjarna Bene­dikts­­syni, fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, vegna þeirrar sölu, sem stofn­unin mat að rík­­is­­sjóður hafi tapað 2,6 millj­­örðum króna á, kom fram að degi eftir að Guð­rún lagði fram til­­lög­una hafi henni verið tjáð að „breyt­ingar væru fyr­ir­hug­að­ar á stjórn bank­ans og [henn­­­ar] að­komu væri ekki óskað“. 

Í fyrra var hún gagn­rýnin á sölu rík­is­ins á 22,5 pró­sent hlut í Íslands­banka sem fram fór í mars í fyrra í lok­uðu útboði með til­boðs­leið. Guðrún hefur meðal ann­ars sagt að hún telji að lög hafi verið brotin við söl­una þar sem lögum sam­kvæmt eigi að leggja áherslu á opið sölu­ferli, gagn­sæi, hlut­lægni, að leitað sé hæsta verðs, að til­boðs­gjafar njóti jafn­ræðis og að salan efli virka og eðli­lega sam­keppni á fjár­mála­mark­aði. Því hafi ekki verið að skipta þegar hlut­ur­inn í Íslands­banka var seldur.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár