Steinunn Ólína segist ekki bjóða sig fram gegn Katrínu vegna persónulegrar óvildar

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir sagð­ist í Pressu fara fram fyrir hönd þeirra sem upp­lifa valda­leysi gagn­vart stjórn­völdum. Taldi hún for­seta­kosn­ing­arnar vera afar póli­tískar að þessu sinni. Þrátt fyrir gagn­rýni sína á rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur, ítrek­aði Steinunn að fram­boð hennar væri ekki vegna per­sónu­legra óvildar hennar í garð Katrínu.

Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, segir framboð sitt ekki vera persónulegt gegn Katrínu þó svo hún hafi verið gagnrýnin um ríkisstjórn hennar. Hún segir forsetakosningarnar í ár vera afar pólitískar.

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir, sagð­ist í nýjasta þætti Pressu, ekki vera bjóða sig fram vegna per­sónu­legrar óvildar í garð Katrínu Jak­obs­dóttur.

Á meðan Katrín lá undir feldi um vænt­an­legt for­seta­fram­boð, birti Steinunn Ólína færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún sagð­ist ekki treysta Katrínu í emb­ætti for­seta Íslands, að feng­inni reynslu. Í færsl­unni lof­aði Steinunn að hún myndi bjóða sig fram gegn Katrínu, ákveði hún fari hún fram.

 „Mér fynd­ist það bera vott um oflæti og að auki fynd­ist mér hún með því sýna þingi, þjóð og öðrum fram­bjóð­endum óvirð­ingu og það get ég ekki sætt mig við.“

4. apríl, degi áður en Katrín Jak­obs­dóttir til­kynnti um fram­boð sitt, birti Steinunn Ólína ávarp á Facebook-síðu sinni þar hún til­kynnti um fram­boð sitt. Athygli vakti að í ávarp­inu var hvergi minnst á Katrínu. 

Spurð nánar út í for­send­urnar að baki fram­boði sínu og gagn­rýni hennar gagn­vart Katrínu seg­ist Steinunn Ólína ekki hafa verið gagn­rýnin á Katrínu sem ein­stak­ling. Hins vegar hafi hún verið gagn­rýnin á rík­is­stjórn hennar. 

„Það er eins og það sé ein­hver skömm af því að fylgj­ast með því sem ger­ist í sínu landi og skrifa um það. Ég hafna því. Það er bara hluti af því að vera þjóð­fé­lags­þegn að fylgj­ast með því sem fer fram og það vill svo til að hún var for­sæt­is­ráð­herra í þess­ari rík­is­stjórn sem ný, er nú breytt. En þetta er ekki vit­und per­sónu­legt,“ sagði Steinunn Ólína.

Vill forseta sem er ekki hluti af stjórnmála- og embættismannakerfinu 

Í þætt­inum sagði Steinunn Ólína að fólk hefði hvatt sig til að fara fram, meðal ann­ars vegna þess að hún stendur fyrir utan stjórn­málin, emb­ætt­is­manna­kerfið og hafi engra við­skipta­legra hags­muna að gæta.

Hins vegar hafi hún skoð­anir á ýmsum mál­efnum sem hún sé óhrædd við að tjá opin­ber­lega um. Þá seg­ist hún bjóða sig fram fyrir fólkið í land­inu sem upp­lifir valda­leysi gagn­vart stjórn­völdum. 

„Nú er á Íslandi, það má bara segja að ráð­herr­arnir haga sér eins og ríki í rík­inu. Á þing­inu fara fram leik­sýn­ingar sem eng­inn skilur um hvað ræðir og svo eru teknar ákvarð­anir af ráð­herrum og full­trúar þjóð­ar­innar í ýmsum flokkum, það er bara gert grín að þeim í stjórn­ar­and­stöð­unni þegar þau reyna vinna fyrir sína umbjóð­endur og koma þeirra áhyggju­efnum á fram­færi.“

Segir kosningarnar í ár vera mjög pólitískar

Steinunn Ólína telur hún að fram­bjóð­endur ættu ekki að fara í graf­götur með það að for­seta­kosn­ing­arnar í ár eru póli­tískar.

„Það eru mjög stór mál undir og það skiptir veru­legu máli að íslenska þjóðin, og þá er ég ekki að tala um sjálfa mig, íslenska þjóðin veljir sér for­seta sem getur staðið sjálf­stæður og lætur ekki grauta í sér af emb­ætt­is­manna­kerf­inu eða stjórn­mál­unum og getur staðið fast með hags­munum þjóð­ar­innar. Og, hags­munir þjóð­ar­innar eru mínir hags­munir.“   

Sjá má þátt­inn í heild sinni í spil­ar­anum hér:

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfsmönnum forsetaframboðsins laun: „Ég vil fá skýringar á því hvað þetta var“
InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
Ástþór þögull um fjármögnun á framboði Ásdísar: „Ég er langflottasti forsetinn“
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár