Móðurleg tilfinning og þakklæti knýr ekki ljósmæður lengur

Stuðn­ingur almenn­ings við ljós­mæður gefur kjara­bar­áttu þeirra byr undir báða vængi. Þetta segir for­maður kjara­nefndar ljós­mæðra. Lítillar bjart­sýni gætir þó í þeirra röðum fyrir fund með samn­inga­nefnd rík­is­ins hjá rík­is­sátta­semj­ara á mánu­dag.  

Móðurleg tilfinning og þakklæti knýr ekki ljósmæður lengur
Komnar með nóg Ljós­mæður eru ekki lengur til­búnar að fórna heilsu sinni og dýr­mætum tíma með fjöl­skyldu fyrir þau kjör sem þeim bjóð­ast. Um það er ein­hugur í þeirra röðum, segir Katrín Sif Sig­ur­geirs­dóttir, for­maður kjara­nefndar ljós­mæðra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Einhugur er á meðal ljós­mæðra um að standa fast á kröfum sínum and­spænis samn­inga­nefnd rík­is­ins. Þetta segir for­maður samn­inga­nefndar ljós­mæðra, Katrín Sif Sig­ur­geirs­dóttir. Samn­inga­nefnd­irnar funda á mánu­dag með rík­is­sátta­semj­ara. Ljós­mæður finna mik­inn stuðn­ing úr sam­fé­lag­inu sem eykst dag frá degi. Hátt í átján þús­und manns eru nú í hópnum mæður og feður styðja ljós­mæður á Facebook. Þangað hefur rignt inn reynslu­sögum og stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingum und­an­farna daga. Rauði þráð­ur­inn gegnum sög­urnar er hversu mik­il­væg þekk­ing ljós­mæðra, reynsla og inn­sæi, reyn­ist í með­göngu, fæð­ingu og sæng­ur­legu. Boðað hefur verið til sam­stöðu­fundar við fæð­ing­ar­staði klukkan tvö á laug­ar­dag, þar sem þung­aðar konur ætla að taka höndum saman og mynda keðju. Þá hafa vel á þriðja þús­und skrifað undir stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu mæðra og feðra sem styðja kjara­bar­áttu ljós­mæðra og verður hún afhent á næsta fundi samn­inga­nefndar rík­is­ins og ljós­mæðra, ef ekki semst fyrir þann tíma.

Sögurnar rista djúpt

Sögurnar hafa að Katrínar mati haft …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár