Heillandi tilhugsun að gefa hárið

Harpa Óskar­dóttir hefur í mörg ár verið með æxli við heila­d­ingul­inn sem hafa valdið ýmsum ein­kennum. Fyrir aðgerð í vetur ákvað hún að klippa síða hárið og gefa það til hár­kollu­gerðar.

Heillandi tilhugsun að gefa hárið
Harpa Ósk­ars­dóttir Hárið á Hörpu var fléttað þegar hún var mætt á hár­greiðslu­stof­una svo hún gæti farið með flétt­una. Hún sendi svo flétt­una til sam­tak­anna Little Princess Trust í Bret­landi, sem gefa hár­kollur til barna sem hafa misst hárið. Mynd: Heiða Helgadóttir

Harpa Ósk­ars­dóttir er í veik­inda­leyfi frá meist­ara­námi í líf- og lækna­vís­indum en hún hefur í mörg ár verið með æxli við heila­d­ingul­inn sem valda Cushings-heil­kenni.

„Einkenni sjúk­dóms­ins eru marg­þætt, svo sem óút­skýrð þyngd­ar­aukn­ing, háþrýst­ingur, þung­lyndi, kvíði, svefn­leysi, pirr­ingur, þunn húð, húð­slit, þrótt­leysi í vöðvum, bein­þynn­ing og lélegt ónæm­is­kerfi – ég hef fengið flestar pestir sem hafa gengið og er lengi að jafna mig eftir þær.

„Ég fór árið 2016 í aðgerð til að láta fjar­lægja heila­d­ing­ulsæxli en þá voru tvö æxli fjar­lægð í gegnum nefið“

Það er erfitt að greina þennan sjúk­dóm en ég var í grein­ing­ar­ferli í þrjú ár og búin að vera veik mikið lengur. Það end­aði með rann­sókn í Svíþjóð árið 2016 og var þrætt frá nára upp að heila­d­ingli til að mæla horm­ónin á mis­mun­andi stöðum í lík­am­anum. Þá var loks­ins 100% ljóst að það væru æxli við heila­d­ingul­inn. Æxlin eru …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár