Jóhanna spyr hvort Drífa verði næsti forseti ASÍ

Þrýst á Drífu Snædal um að gefa kost á sér. Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, spyr hvort í henni sé ekki kom­inn næsti for­seti Alþýðu­sam­bands­ins. Drífa vill hvorki segja af eða á um fram­boð.

Jóhanna spyr hvort Drífa verði næsti forseti ASÍ
Næsti for­seti ASÍ? Fullyrt er að þrýst sé á Drífu Snædal að gefa kost á sér sem for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands á sam­bands­þingi í haust. Hún játar því hvorki né neitar að hún hygg­ist fara fram.

Fullyrt er að þrýst sé á Drífu Snædal, fram­kvæmda­stýru Starfs­greina­sam­bands­ins, um að gefa kost á sér í stól for­seta Alþýðu­sam­bands Íslands á sam­bands­þingi í haust. Síðast í gær velti Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, því upp á Facebook hvort Drífa yrði ekki næst til að setj­ast í þann stól. Uppskar færsla Jóhönnu ánægju meðal les­enda. Drífa vill hvorki segja af né á í sam­tali við Stundina.

Tilefni þess að Jóhanna veltir upp þess­ari hug­mynd er sú að Drífa tjáði sig í gær um fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar og er ekki par hrifin. Drífa birti kafla úr áætl­un­inni þar sem sagði að rík­is­stjórnin leggði áherslu á að gott sam­starf tæk­ist milli stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins „til að varð­veita efna­hags­legan stöð­ug­leika og efla vel­ferð. Þannig megi stuðla að far­sælli nið­ur­stöðu í kjara­samn­ingum næstu ára sem varð­veiti óvenju mikla kaup­mátt­ar­aukn­ingu síð­ustu ára með hóf­legum launa­hækk­unum og skili heim­il­unum áfram auknum kaup­mætti.“ Í fram­hald­inu spurði Drífa: „Ha? Hóf­legum launa­hækk­un­um? Án þess að nýta skatt­kerfið til tekju­jöfn­unar heldur þvert á móti ýkja mis­skipt­ing­una? Stöð­ug­leika hvers er verið að vernda? Vel­ferð hvers? Hvaða góða sam­starf á að byggja á þessum grunn­i?“

Kemur að því að taka þarf ákvörðun

Drífa var í sam­tali við Stundina ekki til­búin til að játa því að hún hyggði á fram­boð í for­seta­stól­inn. Hún neit­aði því hins vegar ekki að það kæmi til greina. „Það er ekki tíma­bært núna að segja af eða á um það en sá tíma­punktur kemur að ég þarf að hugsa þetta, eða taka ákvörðun. Sá tíma­punktur er samt ekki núna.“

„Það er ákveð­inn sam­kvæm­is­leikur í gangi um hvað verður í haust“

Spurð hvort hún hafi fengið áskor­anir um að gefa kost á sér vildi Drífa lítið gefa út um það. „Það er ákveð­inn sam­kvæm­is­leikur í gangi um hvað verður í haust. Ég held ég segi ekki meira í bili, ég er ekki búin að taka ákvörðun.“

Þegar gengið var enn frekar á Drífu og blaða­maður sagði að af svörum hennar mætti þó greina að hún afsegði ekki fram­boð hló hún við. „Ég held að það segi eng­inn nei á þessum tíma­punkti, það eru ýmis nöfn nefnd og þannig er nú bara það.“

Miklar deilur innan ASÍ

Mikill styrr hefur staðið innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar upp á síðkastið og hefur Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, legið undir háværri gagn­rýni af hálfu for­svars­manna sumra stærstu aðild­ar­fé­laga sam­bands­ins. Þannig vilja fjórir for­ystu­menn verka­lýðs­fé­laga að for­ystu ASÍ verði skipt út á sam­bands­þing­inu í haust og fer Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, einna fremstur þar í flokki. Ragnar hefur verið afar gagn­rýn­inn á Gylfa síð­ustu miss­eri, svo mjög að Gylfi sjálfur lýsti því sem per­sónu­legri heift og norna­veiðum í við­tali við Stundina. Í téðu við­tali var Gylfi hins vegar ekki til­bú­inn að segja til um hvort hann hyggð­ist gefa kost á sér áfram sem for­seti í haust.

Drífa hefur starfað sem fram­kvæmda­stýra Starfs­greina­sam­bands­ins frá árinu 2012. Áður starf­aði hún meðal ann­ars sem fram­kvæmda­stýra Vinstri­hreyf­ing­ar­innar græns fram­boðs og Samtaka um kvenna­at­hvarf auk þess sem hún var for­maður Iðn­nema­sam­bands Íslands. Drífa er við­skipta­fræð­ingur með meistara­gráðu í vinnu­rétti frá Háskól­anum í Lundi en einnig er hún mennt­aður tækni­teikn­ari.

„Eins og að éta skít“

Það vakti mikla athygli þegar Drífa sagði sig úr Vinstri grænum í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Ástæðan fyrir úrsögn Drífu var ákvörð­unin um rík­is­stjórn­ar­sam­starf flokks­ins með Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki. Drífa hafði átt sam­leið með flokknum allt frá stofnun hans og var um tíma vara­þing­maður hans. Hún sagði í bréfi til flokks­manna að henni væri óvært í flokknum eftir ákvörð­un­ina um rík­is­stjórn­ar­sam­starfið. „Við og við vellur gröft­ur­inn upp í formi frænd­hygli, inn­herj­a­við­skipta, skatta­skjóla, auð­valds­dek­urs, útlend­ing­ar­andúðar eða skjald­borgar um ofbeld­is­menn. Þá verður VG í þeirri stöðu að verja sam­starfs­flokk­inn og mörkin munu sífellt fær­ast til í sam­starf­inu líkt og í ofbeld­is­sam­bandi. Þetta verður eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil, ef stjórnin end­ist svo lengi,“ skrif­aði Drífa.

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár