Kröfu­ganga Fjór­menn­ing­arnir segja meiri hörku að vænta í kjara­bar­átt­una. Mynd: Pressphotos

Fjórmenningarnir vilja nýja forystu ASÍ og harðari stefnu

For­ystu­menn fjög­urra verka­lýðs­fé­laga vilja skipta út for­ystu ASÍ á sam­bands­þingi í haust og setja fram miklar kröfur þegar kjara­samn­ingar losna um ára­mótin. Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, varar við því að snúa aftur til þess tíma þegar verð­bólgan gleypti miklar launa­hækk­anir.

Kosning nýrrar for­ystu í tvö stærstu verka­lýðs­fé­lög lands­ins er fyr­ir­boði um upp­stokkun í Alþýðu­sam­bandi Íslands og rót­tæk­ari kröfur í næstu kjara­samn­ingum. Nýir for­menn VR og Eflingar, ásamt leið­togum Fram­sýnar og Verka­lýðs­fé­lags Akraness, hafa und­an­farið fundað saman sér­stak­lega og sent frá sér sam­eig­in­legar yfir­lýs­ingar. Félögin fjögur hafa meiri­hluta­vægi á sam­bands­þingi ASÍ í haust og stefna for­menn­irnir á breyt­ingar í þessum heild­ar­sam­tökum launa­fólks.

Gylfi Arn­björns­son, núver­andi for­seti ASÍ, telur að lít­ill ágrein­ingur sé á milli hans og for­mann­anna fjög­urra um mál­efni og bendir á árangur núver­andi stefnu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og mikla kaup­mátt­ar­aukn­ingu frá tíma þjóð­ar­sáttar. Hann hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort hann býður sig aftur fram til for­ystu, en ljóst er að per­sónu­leg óvild á báða bóga spilar inn í þessar deilur, sem oft fara fram á opin­berum vett­vangi.

Sam­bands­þing ASÍ fer fram í októ­ber og kjara­samn­ingar losna í fram­hald­inu um ára­mótin. Nái for­menn­irnir fjórir breiðri sam­stöðu á þing­inu um mál­efni …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Verkalýðsmál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár