Per­sónu­legt níð Gylfi Arn­björns­son, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, segir að hann upp­lifi gagn­rýni Ragnars Þór Ing­ólfs­sonar, for­manns VR, sem per­sónu­legt níð í sinn garð. Ekki sé um að ræða mál­efna­legan ágrein­ing heldur sitji hann undir per­sónu­legum norna­veiðum sem hann kunni ekki skýr­ingu á. Mynd: Hörður Sveinsson

„Persónulegar nornaveiðar“ innan Alþýðusambandsins

Gylfi Arn­björns­son, for­seti ASÍ, vill aukna hörku í kjara­bar­átt­una. Hann segir stjórn­völd hafi rænt launa­fólk ávinn­ingi kjara­samn­inga og vill að settur verði á 65 pró­sent hátekju­skattur. Hann gagn­rýnir for­svars­fólk verka­lýðs­fé­laga fyrir að ala á óein­ingu innan Alþýðu­sam­bands­ins og segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­mann VR, fara fram með per­sónu­níð í sinn garð.

Gylfi Arn­björns­son hefur setið á stóli for­manns Alþýðu­sam­bands Íslands í ára­tug og það er óhætt að segja að hann hafi ekki allan þann tíma setið á frið­ar­stóli. Vaxandi óánægja innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar með kaup og kjör þeirra sem lægst hafa launin hefur síð­ustu miss­eri birst í harðri gagn­rýni á Gylfa af hálfu sumra for­ystu­manna aðild­ar­fé­laga Alþýðu­sam­bands­ins. Enginn hefur gengið harðar fram í þeim efnum en Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður stærsta aðild­ar­fé­lags sam­bands­ins, Versl­un­ar­manna­fé­lags Reykja­víkur (VR). Hefur sú gagn­rýni verið svo hörð að Gylfi seg­ist upp­lifa fram­göngu Ragnars sem per­sónu­legt níð í sinn garð, þar sé það ekki mál­efna­legur ágrein­ingur sem ráði för. And­staðan við Gylfa virð­ist nú orðin slík að hann safnar glóðum elds að höfði sér og for­ystu­fólk nokk­urra aðild­ar­fé­laga Alþýðu­sam­bands­ins talar í lítt duldum hót­unum um að honum verði komið frá á sam­bands­þingi í haust.

Gylfi seg­ist vel skilja að launa­fólk sé ósátt við það sem það hefur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár