Brestir í hamborgaraútrás Búllunnar

Ham­borg­ara­búllan hefur lokað í Malmö, þriðju stærstu borg Sví­þjóðar. Sam­keppnin varð of mikil og fók­us­inn verður sett á Kaup­manna­höfn í stað­inn.

Brestir í hamborgaraútrás Búllunnar
Þurftu að loka Loka þurfti Ham­borg­ara­búllu Tómasar í Malmö vegna mik­illar sam­keppni við aðra ham­borg­ara­staði. Til stóð að stað­ur­inn við Kungspar­ken ætti að opna aftur nú í vor eftir vetr­ar­lokun en af því verður ekki.

Ham­borg­ara­búlla Tómasar hefur lokað veit­inga­staðnum sem opn­aður var í Malmö í Suður-Svíþjóð í maí árið 2016. Opnun Búll­unnar í Malmö vakti tals­verða athygli á sínum tíma og voru gefnir ham­borg­arar á opn­un­ar­dag­inn sem um 1400 manns biðu eftir að sporð­renna. Stað­ur­inn var í litlu húsi, skúr, eða búllu, við Kungspar­ken í Malmö. Frá þessu var greint í sænskum fjöl­miðlum nú í mars. 

Ham­borg­ara­búlla Tómasar er þekkt­asti íslenski ham­borg­ara­stað­ur­inn og lík­lega sá eini sem farið hefur í útrás til ann­arra landa með ham­borg­ara sína en stað­irnir í Berlín, Osló, London, Róm og Kaup­manna­höfn eru ennþá starf­andi. Önnur þekkt dæmi um útrás íslensks skyndi­bita­staðar er strand­högg Hlölla­báta í bens­ín­stöð­inni Listermacken í Mjällby, utan við smá­borg­ina Sölv­es­borg í Blekinge í suð­aust­ur­hluta Sví­þjóðar.   

Íslensk hamborgaramenning og Tommi

Búllan opn­aði árið 2004 og er kennd við Tómas Tómasson sem kalla má einn helsta guð­föður ham­borg­ar­ans á Íslandi. Tómas stofn­aði og rak veit­inga­stað­inn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Veitingahús

Fjórfalt meiri hagnaður á bestu veitingahúsum Íslands: „Rosalega gott ár“
FréttirVeitingahús

Fjórfalt meiri hagn­aður á bestu veit­inga­húsum Íslands: „Rosalega gott ár“

Í erlendum fjöl­miðlum er byrjað að tala um Ísland sem áfanga­stað fyrir áhuga­fólk um mat og veit­inga­staði. Við­snún­ingur í rekstri bestu veit­inga­húsa lands­ins var tals­verður í fyrra. Hrefna Sætran talar um að árið 2016 hafi verið ótrú­lega gott í veit­inga­brans­anum en árið 2017 lak­ara. DILL, fyrsti Michelin-staður Íslands, bætti afkomu sína um 40 millj­ónir í fyrra.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár