Fjórfalt meiri hagnaður á bestu veitingahúsum Íslands: „Rosalega gott ár“

Í erlendum fjöl­miðlum er byrjað að tala um Ísland sem áfanga­stað fyrir áhuga­fólk um mat og veit­inga­staði. Við­snún­ingur í rekstri bestu veit­inga­húsa lands­ins var tals­verður í fyrra. Hrefna Sætran talar um að árið 2016 hafi verið ótrú­lega gott í veit­inga­brans­anum en árið 2017 lak­ara. DILL, fyrsti Michelin-staður Íslands, bætti afkomu sína um 40 millj­ónir í fyrra.

Fjórfalt meiri hagnaður á bestu veitingahúsum Íslands: „Rosalega gott ár“
Nærri tvö­faldur hagn­aður Hagn­að­ur­inn á Fisk­mark­aði Hrefnu Rósu Sætran nærri tvö­fald­að­ist á milli áranna 2015 og 2016 og fór upp í rúm­lega 120 millj­ónir króna. Mynd: Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Rekstr­ar­fé­lög fimm bestu veit­inga­staða Íslands skil­uðu sam­an­lagt rúm­lega fjórum sinnum meiri hagn­aði árið 2016 en árið 2015 sam­kvæmt úttekt Stund­ar­innar á rekstri þeirra. Um er að ræða þá veit­inga­staði á Íslandi sem kom­ast á tvo efstu lista veit­inga­húsa­síð­unnar White Guide um bestu veit­inga­staði Íslands en list­arnir kall­ast „Masters level“ og „Very fine level“.

Sam­an­lagður hagn­aður þess­ara fimm veit­inga­húsa – veit­inga­húsið VOX er ekki tekið með þar sem það er hluti af starf­semi risa­vöxnu hót­el­keðj­unnar Flug­leiða­hót­ela – er 180 millj­ónir króna en voru rúm­lega 43 millj­ónir króna árið 2015 sam­kvæmt úttekt Frétta­tím­ans á þessum veit­inga­stöðum í árs­lok í fyrra. Allir þessir staðir eru í Reykja­vík.  

Áfangastaður fyrir áhugamenn um mat

Ferða­manna­straum­ur­inn til Íslands hefur vit­an­lega jákvæð áhrif á rekstr­ar­af­komu veit­inga­húsa í borg­inni og koma stöðugt fleiri og fleiri ferða­menn til lands­ins. Byrjað er að tala um Reykja­vík sem mat­ar­borg í erlendum fjöl­miðlum og er talað um að ferða­menn …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Veitingahús

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár