Fulltrúi eigenda N1 vill lækka 5,8 milljóna króna hækkuð laun forstjórans

Formaður Félags vél­stjóra og málm­tækni­manna vill að Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi selji öll hluta­bréf sín í N1 til að mót­mæla launa­hækkun for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn VR krefst þess að aðrir starfs­menn N1 fái sam­bæri­legar launa­hækk­anir og for­stjór­inn.

Fulltrúi eigenda N1 vill lækka 5,8 milljóna króna hækkuð laun forstjórans
Guð­mundur Ragn­ars­son Telur til­gangs­lítið að hafa siða- og starfs­kjara­reglur ef ekki er farið eftir þeim. Mynd: Sandra Karls

Guð­mundur Ragn­ars­son, for­maður Félags vél­stjóra og málm­tækni­manna, vill að Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi selji öll hluta­bréf sín í N1. Guð­mundur situr í stjórn sjóðs­ins og vill með þessu mót­mæla launa­hækkun Eggerts Þórs Krist­ó­fers­sonar, for­stjóra N1. Laun og hlunn­indi hans hækk­uðu um rúm­lega eina milljón á mán­uði á síð­asta ári.

„Það gengur ekki lengur að gera siða- og starfs­kjara­reglur sem eng­inn fer eftir,“ segir Guð­mundur í pistli á vef­síðu félags­ins. „Við eigum ekki að biðja þá sem hlut eiga að máli, um að laga eða bæta. Ákvörð­unin er að baki og stjórn N1 verður að axla sína ábyrgð. Nú er kom­inn tími til að líf­eyr­is­sjóð­irnir, sem eru meðal helstu eig­enda, láti til sín taka.“

„Mat mitt er að lækka eigi veru­lega laun for­stjór­ans sem og laun stjórnar N1.“

Guð­mundur seg­ist setja stórt spurn­ing­ar­merki við hæfi for­stjór­ans og stjórnar félags­ins ef þau séu ekki hæf til að lesa inn í ástandið í sam­fé­lag­inu. „Hvernig fer þetta fólk að því að leggja mat á mark­að­inn sem fyr­ir­tækið starfar á, ef þau ná ekki að vera í sam­bandi við sam­fé­lagið sem þau búa í,“ skrifar Guð­mundur. „Mat á hæfi hlýtur að eiga virka í báðar áttir. Laun geti þá líka lækkað ef hæfnin er ekki til staðar. Mat mitt er að lækka eigi veru­lega laun for­stjór­ans sem og laun stjórnar N1.“

Stjórn VR sam­þykkti til­lögu þess efnis að aðrir starfs­menn N1 hljóti sam­bæri­legar launa­hækk­anir og for­stjór­inn, en Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna á 13,3% hlut í N1. Verður til­lagan lögð fram á aðal­fundi N1. „Aðal­fundur N1, hald­inn mánu­dag­inn 19. mars að Dalvegi 10-14 Kópavogi, ályktar að öllum starfs­mönnum N1 skuli tryggð sama kjara­hækkun og for­stjóri félags­ins fékk á árinu 2017,“ segir í til­lög­unni. „Laun for­stjóra voru á árinu 2017 70,4 m.kr., eða 5,8 m.kr. á mán­uði, og hækk­uðu þau um 20,6% milli áranna 2016 og 2017.“

Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er stærsti hlut­haf­inn í N1 og Gildi líf­eyr­is­sjóður sá næst stærsti. Sex aðrir líf­eyr­is­sjóðir eru meðal stærstu hlut­hafa. Hagnaður N1 voru rúmir tveir millj­arðar króna árið 2017, en hann drógst saman um 38% frá 2016, þegar hagn­aður nam tæpum 3,4 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lífeyrismál

InnlentLífeyrismál

Vilja bjarga per­sónu­af­slætt­inum: „Aðför að líf­eyr­is­þegum sem flúið hafa fátækt á Íslandi“

Flokkur fólks­ins segja yfir­völd hafa laumað laga­band­ormi inn rétt fyrir þing­lok síð­asta árs, sem svipti þús­undum líf­eyr­is­þega sem búa erlendis, lög­bundnum per­sónu­afl­sætti. Það sé aðför að líf­eyr­is­þegum sem flúið hafa fátækt á Íslandi. Frétta­til­kynn­ing barst fjöl­miðlum í morgun frá Flokki fólks­ins þar sem farið er yfir hug­myndir rík­is­stjórn­ar­innar um að hafa af líf­eyr­is­þegum sem búa erlendis, per­sónu­af­slátt­inn sem nemur allt...
InnlentLífeyrismál

Sjómenn fengu góðar fréttir eftir ára­mót – Eft­ir­laun hækka um 630 þús­und

Í jan­úar bár­ust sjó­mönnum góðar fréttir en líf­eyr­is­greiðslur til þeirra hækk­uðu umtals­vert. Hækkun varð í jan­úar á líf­eyr­is­greiðslum hjá flestum líf­eyr­is­sjóðum lands­ins en mis­mikið þó. Til að mynda fær mann­eskja sem náð hefur eft­ir­launa­aldri nú 7,18 pró­sent hærri líf­eyri en áður, sé hann að fá greitt út úr Líf­eyr­ir­sjóði Verzlunarmanna en 10,5 pró­sent hærri líf­eyri sé hann sjó­maður sem greiðir...
InnlentLífeyrismál

Sigurður fyrrum bæj­ar­stjóri: „Eldri konur eiga þetta ekki skilið!“

Sigurður var einn vin­sæl­asti Mogga­blogg­ari lands­ins og umdeildur sem slíkur. „Það sjá allir hversu mikið órétt­læti þetta er,“ segir Sigurður Jónsson, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Garði, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu. Þar skrifar hann um það órétt­læti sem hefur verið við lýði hér á landi í líf­eyr­is­málum und­an­farna ára­tugi. Sigurður bendir á að Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna hafi nú ákveðið að hækka líf­eyri...
InnlentLífeyrismál

Síma- og greiðslu­kerfi TR hrunið: Öryrkjar bíða eftir launum sínum

Símkerfi Trygg­ing­ar­stofn­unar er sprungið og sama gildir um vef­síð­una, en fjöl­margir líf­eyr­is­þegar bíða nú milli vonar og ótta eftir mán­að­ar­launum sínum. Á Facebook síðu Trygg­inga­stofn­unnar má lesa eft­ir­far­andi: Síma- og greiðslu­kerfi TR er hrunið vegna álags. Þessi má lesa á síðu TR á Facebook í dag Fáeinir hafa ritað athuga­semdir inn á Facebook síðu stofn­un­ar­innar og bendir meðal ann­ars einn...
InnlentLífeyrismál

Guðrún í Kjörís með eigur laun­þega

Guðrun Haf­steins­dóttir, einn eig­enda Kjöríss, sækir mikil völd í líf­eyr­is­sjóð­ina þar sem hún deilir og drottnar með eigur almennra laun­þega, meðal ann­ars sem vara­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna. Ákveðinn hópur atvinnu­rek­enda með Guðrúnu í önd­vegi hefur náð gríð­ar­legum völdum með því að koma sér inn í stjórnir sjóð­anna og það kerfi sem fer með eig­enda­vald á líf­eyri almenn­ings. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður...
InnlentLífeyrismál

„Líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hélt ég væri dauður“

Guðni Már Henn­ings­son, líf­eyr­is­þegi og fyrrum útvarps­maður, er ekki par hrif­inn af líf­eyr­is­sjóði sínum þar sem honum barst ekki greiðsla þaðan um nýliðin mán­að­ar­mót. Ástæðuna telur hann vera þá að sjóð­ur­inn hafi álitið hann lát­inn. „Einn líf­eyr­i­s­jóður borg­aði mér ekki núna um mán­aða­mótin. Þau héldu að ég væri dauður og hefði ekk­ert með pen­inga að gera í himna­ríki, hvað þá...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár