Á 25 ára gamalli slóð höfuðpaurs fugla- og eggjasmygls á Norðurlandi

Er sam­hengi í eggja- og fugla­smygls­málum á Norð­ur­landi? Tveir menn hafa verið teknir við eggja- og fugla­smygl með 25 ára milli­bli. Báðir eru þeir búsettir á Húsavík í dag og þykir ólík­legt að þeir hafi verið einir að verki. Toll­stjóri verst frétta af eggja­smygl­máli sem kom upp í fyrra.

Slóðin liggur til Húsavíkur
Slóðin liggur til Húsa­víkur Báðir menn­irnir sem gripnir hafa verið við fugla- og eða eggja­smygl úr frið­uðum fuglum koma frá Húsavík. Ólíklegt er að menn­irnir hafi verið einir að verki.

Maðurinn sem tek­inn var um borð í Norrænu á leið úr landi með egg úr frið­uðum íslenskum fuglum vill ekki svara frá því hvort hann hafi staðið einn að smygl­inu. Sagt var frá máli manns­ins, Gunnars Gunn­ars­sonar á Húsavík, í fréttum í ágúst í fyrra og greindi Stundin frá því nú í febr­úar að hann hefði ekk­ert heyrt frá lög­regl­unni eða Toll­stjóra um málið. „Ann­að­hvort gengur þú ekki á öllum eða eitt­hvað. Hvað sagði ég þér síð­ast? No komment,“ segir Gunnar þegar Stundin spyr hann um vit­orðs­menn hans. 

Blaða­maður: „Af hverju viltu ekki segja frá því hvort þú stendur einn að þessu eða hvort ein­hver hafi verið með þér í þessu?“

Gunnar: „Heyrðu. Ég ítreka það sem ég sagði áðan. No komment.“

Gunnar ólík­legur höf­uð­paurVið­mæl­endur Stund­ar­innar á Húsavík segja ólík­legt að Gunnar Gunn­ars­son hafi verið einn að verki í eggja­smygl­inu í Norrænu í …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fugla- og eggjasmygl

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár