Tollstjóri rannsakar smygl á eggjum úr friðuðum fuglum

Embætti Toll­stjóra er við það að ljúka rann­sókn á smygli eggja úr frið­uðum íslenskum fuglum. Einungis eitt slíkt mál hefur komið upp á Íslandi síð­ast­liðin ár, Nor­rænu­málið í fyrra. Eggja­smygl­ari segir að slíkt smygl sé lík­lega algeng­ara en mætti halda en að það kom­ist sjaldan upp.

Tollstjóri rannsakar smygl á eggjum úr friðuðum fuglum
Fyrsta málið í mörg ár Embætti Toll­stjóra rann­sakar nú eggja­smygls­mál sem kom upp í fyrra. Snorri Olsen er toll­stjóri. Mynd: Pressphotos.biz - (Geirix)

Embætti Toll­stjóra rann­sakar nú eitt til­felli eggja­smygls úr frið­uðum íslenskum fuglum. Þetta kemur fram í svörum frá emb­ætti toll­stjóra við spurn­ingum Stund­ar­innar. Toll­stjóri má ekki gefa sér­tækar upp­lýs­ingar um rann­sókn mála sem eru til skoð­unar hjá emb­ætt­inu en Gísli Rúnar Gíslason, starfs­maður rann­sókn­ar­deildar emb­ætt­is­ins, segir aðspurður að eitt slíkt mál sé til rann­sóknar. „Toll­stjóri hefur eitt mál til skoð­unar og rann­sókn þess er að ljúka.“ 

Embættið getur ekki gefið upp nán­ari smá­at­riði um eðli máls­ins.  

Flór­goða­egg í smygl­inuMeðal þeirra eggja sem Gunnar Gunn­ars­son reyndi að smygla úr landi voru egg úr flór­goða sem blásið hafði verið úr. Flór­goð­inn er frið­aður á Íslandi.

Eggjasmygl kemst sjaldan upp

Stundin hefur greint frá því að maður, Gunnar Gunn­ars­son sem búsettur er á Húsavík og var tek­inn með tugi eggja úr frið­uðum íslenskum fuglum í Norrænu í ágúst í fyrra, hafi ekki verið yfir­heyrður …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fugla- og eggjasmygl

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár