Lögreglan rannsakar eggjasmygl í Norrænu

Maður reyndi að flytja flórgoðaegg í óleyfi á milli landa. Segir sjálfur að eggja­smygl sé eins og smygl á hassi og komist sjaldnast upp.

Egg úr flórgoða
Egg úr flór­goða Meðal eggj­anna sem mað­ur­inn ætli að lauma úr landi voru egg flór­goða.

Lögreglan á Akureyri hefur lokið rannsókn á smygli á eggjum úr friðuðum íslenskum fuglum. Embætti Toll­stjóra sendi rannsókn á smyglinu til rann­sóknar hjá lögreglunni á Norður­landi eystra. Hið meinta eggja­smygl átti sér stað um borð í Norrænu í ágúst árið 2017. 

Málið var sent til lögreglunnar í mars í fyrra eftir að Toll­stjóri hafði verið með málið til meðferðar um hríð. „Rannsókn málsins hjá Toll­stjóra lauk með því að ákveðið var að kæra hið meinta afbrot til lögreglu­stjórans á Norður­landi eystra og var málið sent lögreglu­stjóranum,“ segir í tölvu­pósti frá Gísla Gíslasyni, deildar­stjóra rannsóknar­deildar Toll­stjóra.  

Egg úr friðuðum fuglum geta gengið kaupum og sölum á dýru verði meðal safnara erlendis. Einnig er mögulegt að selja egg með ungum í erlendis, til dæmis fálkaegg, en búið var að blása úr þessum eggjum og var því um að ræða ætlaða safngripi.

Sjald­gæftAfar sjald­gæft er …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fugla- og eggjasmygl

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár